Morgunblaðið - 23.05.2004, Page 6

Morgunblaðið - 23.05.2004, Page 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ TRYGGVI Friðriksson, annar eig- enda Gallerís Foldar, segir óvissu ríkja á íslenskum listaverkamarkaði eftir dóm Hæstaréttar í málverka- fölsunarmálinu á miðvikudag. „Þessi dómur breytti því ekki að verkin eru jafnfölsuð og áður,“ segir Tryggvi. Hann segir ekki ljóst hvað verði nú um hin umdeildu málverk en hætta sé á að þau komist aftur í umferð eft- ir tiltekinn tíma. Hann fagnar þó ákvörðun menntamálaráðherra um að skipa nefnd til að fara ofan í þessi mál. „Eðlilegast væri að taka þessi verk úr umferð og geyma þau á öruggum stað þar sem engin hætta væri á að þau færu aftur í umferð,“ segir Tryggvi. „Það getur vel verið að eigendur verkanna samþykki slíkt, en það er ekki nokkur leið að taka þau eignarnámi. Verkin eru að sjálfsögðu verðlaus og ef þau fara aftur heim til eigenda sinna þá er hætt við því að þau komi fram á markaðinn eftir nokkra áratugi, þótt það hafi aldrei verið ætlun eig- endanna, heldur vegna þess að erf- ingjar eða seinni tíma fólk hefur verkin í höndunum og þarf að losa sig við þau,“ segir Tryggvi. „Það þarf ekkert að vera óeðlilegt við það þótt fólk vilji eftir 20 ár selja málverk sem var heima hjá afa og ömmu. Þetta er hið raunverulega vandamál og ef ekki tekst að ná þess- um verkum úr umferð, þá gerist það fyrr eða síðar að þau fara í sölu.“ Verður mikið vandamál í fram- tíðinni verði ekkert að gert „Eina lausnin að mínum dómi væri sú að fá eigendur til að samþykkja að yfirvöld, s.s. listasöfn, lögregla og ráðuneyti, fái að varðveita verkin. Ef rétt er að fölsuð verk séu 900 að tölu, þá er þetta meiri háttar framtíðar- vandamál. Ef ég ætti falsað verk, myndi ég ekki hafa geð í mér til að láta það hanga uppi. Ég myndi losa mig við það á líkan hátt og ólöglegt skot- vopn,“ segir Tryggvi Friðriksson í Galleríi Fold. Tryggvi Friðriksson, eigandi Gallerís Foldar Eðlilegast að taka listaverkin úr umferð STEFÁN Sigurðsson kennari frá Reyðará í Lóni andaðist á hjúkr- unarheimilinu Ljós- heimum á Selfossi að- faranótt 20. maí sl. Stefán fæddist 14. mars 1901 og var næstelstur karlmanna á Íslandi, 103 ára að aldri. Hann lauk kennara- prófi 1945 og var kennari í Melaskóla frá 1946–66 og stundakennari til 1968. Hann var virkur í starfi Esper- antosambandsins, IEA, og tók þátt í fjölmörgum alþjóðaþingum á veg- um þess og var heið- ursfélagi frá 1979. Stefán var afkasta- mikill þýðandi barna- bóka, smásagna og ljóða og þýddi meðal annars úr esperanto. Hann flutti Passíu- sálmana í útvarpi árið 1959. Eiginkona Stefáns var Vilborg Ingimars- dóttir kennari sem lést árið 1974. Börn Stefáns eru Þóra Ingi- björg og Anna Jór- unn. Stefán verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju þriðjudaginn 25. maí nk. kl. 13.30. Andlát STEFÁN SIGURÐSSON LANDSSAMBAND framsóknar- kvenna (LFK) gerir kröfu um að við væntanlegar breytingar á rík- isstjórn Íslands í haust verði kon- um ekki fækkað í ráðherraliði Framsóknarflokksins. „Það væri mikil afturför og stríðir gegn jafn- réttisáætlun flokksins sem flokks- þing framsóknarmanna hafa sam- þykkt og er jafnframt bundið í lög hans,“ segir í ályktun framsókn- arkvenna á málþingi LFK á Hótel Sögu á föstudag um stöðu kvenna í Framsóknarflokknum og stöðu þingkvenna við breytingar í rík- isstjórn Íslands. Samþykkt einróma „Þessi ályktun var alveg einróma samþykkt. Þetta eru skýr skilaboð til forystu flokksins,“ segir Una María Óskardóttir, formaður LFK. Í greinargerð með ályktuninni segir að ef konum yrði fækkað í ráðherraliði flokksins væri það mikið bakslag á áralangri baráttu framsóknarkvenna fyrir auknum hlut kvenna í stjórnmálum. „Jafn- rétti skipir máli í stjórnmálum eins og sjá má af niðurstöðum könnunar sem framkvæmd var á vegum flokksins í síðustu alþingiskosning- um, en þá kusu marktækt fleiri konur flokkinn, eða 19,1 % en 16,2% karlar. Að teknu tilliti til allra stjórnmálalegra og flokks- legra sjónarmiða sem líta ber til við val á ráðherrum eru engin rök sem hníga í þá átt að skerða hlut kvenna í ráðherraliði flokksins, mikilvægt er að nota tækifærið og efla hlut kvenna,“ segir í grein- argerðinni. Fyrirmyndir nauðsynlegar „Það er auðvitað einfalt mál að konur og við öll,“ segir Una María, „þurfum fyrirmyndir til að tileinka okkur ákveðna hegðun, þekkingu og viðhorf. Meðan konur eru ekki nógu margar í stjórnmálaflokki eins og í Framsóknarflokknum eykur það líkur á því að færri kon- ur tileinki sér skoðanir og viðhorf flokksins, þ.e.a.s. með því að fjölga konum í stjórnunarlegum stöðum innan flokksins aukast líkurnar á því fleiri konur kjósi flokkinn.“ Þá töldu framsóknarkonur brýnt að til LFK yrði ráðinn starfsmaður sem gegndi hlutverki jafnréttisfull- trúa. Hlutverk hans yrði fyrst og fremst að fylgja eftir jafnrétt- isáætlun flokksins, innan stofnana hans og hvetja og efla konur til stjórnmálalegra starfa og ábyrgðar innan Framsóknarflokksins. Landssamband framsóknarkvenna setur fram kröfugerð Konum verði ekki fækkað í ráðherraliðinu Morgunblaðið/Golli LFK telur það mikla afturför ef konum í ráðherraliði flokksins verður fækkað á hausti komanda. Konurnar fjölmenntu á Hótel Sögu. Þ egar blaðamaður kemur að sætaröðinni í Þjóðleikhúsinu stendur fólk upp til að hleypa honum framhjá. En það reyn- ist óþarfi, því blaðamaður sest í sætið á endanum. – Takk samt, muldrar hann og kinkar kolli. – Þú hefur fílað þig eins og forsetinn, segir maðurinn í næsta sæti, sposkur á svip. Salurinn er þéttsetinn af einstaklingum, hver með sín sérkenni. Þeir undirstrika sérstöðu sína með fatavali, hárgreiðslu, talsmáta, yfirbragði. Jafnvel ósjálfráð viðbrögð eins og hlátur frábrugðin frá einum til annars. En á sviðinu eru leikararnir einkennalausir; ekki einu sinni aðgreindir af hljóði, því þeir líða um sviðið í hljóðlausum dansi. Egglaga höfuð innan um hringlaga skálar fullar af vatni. Það heyrist þegar droparnir falla í skálarnar, svo mikil er þögnin í salnum. Og það myndast gárur í skál- unum sem áhorfendur bera á öxlunum. Svo er eins og rigni hósta ofan í kverkar áhorfenda. Búkhljóð áhorfenda verða svo æp- andi í þögninni. Allt í einu þurfa líka allir að hósta. Það er eins og maðurinn aftast hafi hóstað og beðið næsta mann um að láta það ganga. Jafnvel blaðamaður finnur undarlegan seiðing í hálsinum, – og hóstar. Japanska danssýningin Hibiki stendur yfir og sjald- an eða aldrei hefur verið hljóðlátara í Þjóðleikhúsinu. Svo varlega er farið í sakirnar að límt er með svörtu yfir ljósin í sviðs- stjóraborðinu, svo skíman slái ekki leikarana út af laginu. Og það læðast allir baksviðs. Á köflum í sýningunni ríkir fullkomin (lesist hægt): k y r r ð. Svo mikil kyrrð að einn leikara sýningarinnar biður um aðstoð við að loka búningsherbergi baksviðs, svo það heyrist ekki þegar hurðin skell- ur aftur. Á sviðinu eru hreyfingarnar svo hægar að þær hægja á hugs- uninni. En STUÐA taugaendana þegar springur kjarnorkusprengja; skál sem fyllist af blóði. Það er ekki síst í steinköldum hvítum andlitum leikaranna sem sársauki myndast. Andlitin hvítur strigi fyrir tilfinn- ingar áhorfenda. Einstaklingarnir í salnum verða eitt með leikurunum og upp í hugann kemur hending úr ljóði Kristjáns Karlssonar, Um af- ræktan veg: hið almenna skýrt en einkenni mannsins horfin. Olga Borodina er óperusöngkona með sérkenni. Hún er díva. Ekkert mikið að ræða við hljóðfæraleikarana á æfingum. Hún bara syngur. En líst þó ekki alveg á blikuna, nýkomin frá Metropolitan, þegar hún geng- ur inn í Háskólabíó. Næsta stopp La Scala. Hún lítur í kringum sig og hváir: – Eigið þið ekki annan sal? Hún notar líkamann sem tónleikahöll. Ísýningunni Körper eða Lík- amar er líka unnið með líkamann, stundum hálfnakinn, stundum alveg. Engu að síður er sýningin aldrei kynferðisleg; það tekst að færa líkam- ann úr nektinni og hvað er það þá sem snýr út? Eiginlega er líkaminn á röngunni og sett upp sýning í líkamsstarfseminni. Ragnar Kjartansson og Magnús Sigurðsson eru holdlegir englar á trúnó í Listasafni ASÍ. Næstum jafnheilagir og japönsku leikararnir í Hibiki. Nokkrar gelgjur í fatahenginu í Þjóðleikhúsinu. Ein þeirra að tala um þennan hæga sjón- leik, þar sem hreyfingarnar minna stundum á Matrix. – Hún hefði verið góð ef hún hefði verið fjörutíu mínútur. Morgunblaðið/ÞÖK Nekt í þágu listarinnar SKISSA Pétur Blöndal sótti viðburði Listahátíðar ENGIN börn eru á virkum biðlista eftir leikskólaplássi, samkvæmt upplýsingum sem lagðar voru fram á síðasta fundi skólanefndar Akur- eyrar. Lagðar voru fram upplýsingar um inntöku barna í leikskóla Ak- ureyrarbæjar og stöðu á biðlista eftir leikskóla. Þar kemur m.a. fram að 43 börn voru flutt á milli leikskóla að beiðni foreldra og að ný börn í leikskólunum eru 258. Þá er eftir að taka inn í 53 rými í nýjan leikskóla í Tröllagili. Það eru því engin börn á virkum biðlista. Skóla- nefnd samþykkti að börnum sem fædd eru 2003 verði boðið pláss í leikskólanum í Tröllagili í samræmi við innritunarreglur, í þau rými sem eru laus. Leikskólar Akureyrar Engin börn á biðlista

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.