Morgunblaðið - 23.05.2004, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 9
Laugavegi 32 sími 561 0075
Veiðihornið - Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Veiðihornið - Síðumúla 8 - sími 568 8410
Sendum samdægursMunið gjafabréfin
Varðstu blautur í síðasta veiðitúr?
Ron Thompson Lagoon neoprenvöðlur, 4mm þykkar, filt-
sóli, styrkingar á hnjám og brjóstvasi.
Ron Thompson Outbackjakki. Vatnsheldur jakki með
öndun. Stórir brjóstvasar, góð hetta. Tveir litir af jökkum í
boði; grænn/svartur eða khaki/svartur.
Ron Thompson vöðlutaska. Sérhönnuð taska fyrir vöðlur.
Net í loki sem loftar. Handfang og axlaról. Áföst motta til að
standa á þegar farið er í og úr vöðlunum úti.
Fullt verð kr. 27.790.
Vikutilboð Veiðihornsins aðeins kr. 19.995 fyrir allt þetta.
Takmarkað magn í boði
Þetta færðu í Veiðihorninu í Hafnarstræti 5 og Síðumúla 8 í
Reykjavík og Nýju veiðibúðinni á Fjölnisgötu 1, Akureyri.
Vikutilboð
OPIÐ Í DAG FRÁ KL. 10-17
Veiðihornið býður alltaf
meira úrval og alltaf
betra verð!
Ron Thompson veiðipakki
Ron Thompson Arezzo grafitflugustöng. Poki fylgir. Okuma Airframe „large arbour“
fluguveiðihjól með diskabremsu. Ein aukaspóla og 2 uppsettar línur frá Greys. Góður byrjendapakki.
Vikutilboð Veiðihornsins aðeins kr. 16.800 fyrir allt þetta.
Bættu við annarri aukaspólu og þriðju línunni fyrir aðeins kr. 4.800.
Takmarkað magn í boði
Þetta færðu í Veiðihorninu, Hafnarstræti 5 og Síðumúla 8 í Reykjavík og Nýju veiðibúðinni, Fjölnisgötu 1, Akureyri.
Ron Thompson veiðipakki
Ron Thompson Arezzo grafitkaststöng, 8 og 9 fet. Poki fylgir.
Okuma Sting Ray kasthjól, 3 kúlulegur. Aukaspóla fylgir.
Fullt verð kr. 9.990. Vikutilboð Veiðihornsins aðeins kr. 5.900 fyrir allt þetta. Takmarkað magn í boði.
Þetta færðu í Veiðihorninu, Hafnarstræti 5 og Síðumúla 8 í Reykjavík og Nýju veiðibúðinni, Fjölnisgötu 1, Akureyri
1 eða 2 vikur. Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina í júní hreint
ótrúlegum kjörum og tryggt þér síðustu sætin til Rimini, þessa vinsæla
áfangastaðar. Sumarið er komið á Ítalíu og hér getur þú notið lífsins við
frábærar aðstæður og nýtur traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann. Þú bókar ferðina og 3
dögum fyrir brottför færðu að vita
hvar þú gistir í fríinu.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð frá kr. 29.995
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug,
gisting, skattar. 3. júní, vika, netverð.
Símabókunargjald kr. 2.000 á mann.
Verð frá kr. 39.990
M.v. 2 í íbúð/stúdíó, flug, gisting, skattar.
3. júní, vika. Símabókunargjald kr. 2.000
á mann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Rimini
3. júní
frá kr. 29.995
VIÐMIÐ umboðsmanns Alþingis í
gagnrýni á meðferð dómsmálaráð-
herra við veitingu embættis hæsta-
réttardóma var í samræmi við hefð-
bundnar kröfur um rannsókn mála.
Þetta kom fram í máli Páls Hreins-
sonar lagaprófessors á aðalfundi
Vinnuréttarfélags Íslands á föstu-
dag.
Páll benti á að stjórnvöld hafi
frelsi til að velja á hvaða málefna-
legu sjónarmiðum þau ætli að
byggja ákvörðun sína um val á um-
sækjanda í opinbert starf. Frelsinu
séu þó settar skorður og stjórnvöld
þurfi að fara eftir lögum og óskráð-
um meginreglum.
Vantaði upplýsingar um
aðra umsækjendur
„Valið á sjónarmiðunum verður að
vera málefnalegt. Þá verða sjónar-
miðin að vera í nægjanlegum og eðli-
legum tengslum við það starf sem
verið er að ráða í,“ sagði Páll og
benti jafnframt á að það megi ekki
velja einungis eitt atriði til viðmið-
unar.
Páll sagði að við ráðningu hæsta-
réttardómara hafi auglýsing um
embættið ekki gefið tilefni til að til-
greina sérstaklega störf í Evrópu-
rétti en eins og áður hefur komið
fram var starfinu veitt þeim sem
hafði meistaragráðu í Evrópurétti.
„Því fellst ég á það með umboðs-
manni Alþingis að þörf hefði verið að
kalla eftir upplýsingum frá öðrum
umsækjendum
um þá menntun
og reynslu sem
lýtur að Evrópu-
rétti.“
Páll vildi meina
að túlkun um-
boðsmanns á
hlutverki Hæsta-
réttar sem um-
sagnaraðila sé
eðlileg enda eigi rétturinn ekki ein-
göngu að tjá sig um hæfi umsækj-
enda, þ.e. hvort þeir uppfylli skilyrði
til að gegna embættinu, heldur einn-
ig um færni þeirra til starfsins. Páll
tók því undir álit umboðsmanns Al-
þingis að „…ætli ráðherra að byggja
valið á þröngri sérþekkingu um-
sækjenda er ljóst að umsögn Hæsta-
réttar um hæfni og færni umsækj-
enda kemur ráðherra að litlum
notum fái rétturinn ekki að vita um
þau sjónarmið áður en umsögn er
samin.“
Markmikið er að tryggja
gegnsæi stöðuveitinga
Páll kom einnig inn á reynslu ná-
grannaþjóða okkar þar sem unnið er
markvisst að því að bæta undirbún-
ing og rannsókn mála áður en tekin
er ákvörðun um veitingu embættis
hæstaréttardómara. „Segja má að
það markmið sem þar er stefnt að sé
að tryggja gegnsæi um stöðuveit-
inguna þannig að hver skynsamur
maður geti helst sannfærst um að
færasti umsækjandinn hafi verið
ráðinn.“
Páll áréttaði að alls ekki megi gef-
ast upp við að vinna að bættri stjórn-
arframkvæmd og löggjöf. „Það er
leitt hversu mikil heift hefur verið í
umræðu um málið og hve þung orð
hafa verið látin falla um þann um-
sækjanda er starfið hlaut, umboðs-
mann Alþingis sem og aðra sem gef-
ið hafa sig að umræðunni. Það er
yfirleitt lítil von um að umræða beri
uppbyggilegan ávöxt þegar rökræð-
unni sleppir og heiftug kappræða
tekur við,“ sagði Páll Hreinsson pró-
fessor.
Páll Hreinsson lagaprófessor um gagnrýni á veitingu emb-
ættis hæstaréttardómara á aðalfundi Vinnuréttarfélagsins
Viðmið umboðsmanns
Alþingis voru eðlileg
Páll Hreinsson
mbl.isFRÉTTIR
VEIÐISKAPUR er kominn á fleygi-
ferð á Bretlandseyjum og austur í
Rússlandi og hafa verið miklar
göngur og góð veiði. Á Bretlands-
eyjum hófst veiðin í febrúar, en um
síðustu helgi í fyrstu ánum í Rúss-
landi. Gífurlegar göngur virtust
vera þar á ferð og veiddist t.d. 191
lax bara fyrsta daginn í ánni Var-
zuga, að sögn talsmanna Lax-ár,
sem hefur ítök í laxveiðiám þar
eystra.
Sömu aðilar segja að veiðitölur
frá Skotlandi, t.d. frá Dee séu afar
jákvæðar og þar hafi vorveiðin ver-
ið sú besta í allnokkur ár og greini-
legt að laxastofnar séu þar á upp-
leið á ný eftir mörg döpur ár.
Væntanlega er laxinn farinn að
ganga í íslenskar ár, a.m.k. í Hvítá,
Þverá og Norðurá, en á meðan
netaveiðin í Hvítá var og hét hófst
hún jafnan 20. maí ef þannig stóð á
veiðidögum gagnvart banndögum.
Alltaf var laxinn kominn þó jafnan
misjafnlega mikið eins og gengur.
Þá eru ótal sögur til um að laxar
hafi komið á agnið hjá silungs-
veiðimönnum í Straumunum og
Brennu um þetta leyti og sést langt
frammi í Norðurá og Þverá sem
hafa snemmgengnustu stofnana á
svæðinu.
Ýmis tíðindi
Vatnaveiðin gengur víða afar vel
og frést hefur af góðum skotum úr
Vífilstaðavatni, Elliðavatni, Steins-
mýrarvötnum, Hæðargarðsvatni,
Úlfljótsvatni, Hlíðarvatni, Laugar-
vatni, Brúará og víðar, auk þess
sem kunnugir halda því nú fram að
Þingvallavatn sé óðum að komast í
góðan gír. Þar hafa ýmsir veitt vel
að undanförnu, 5 til 15 fiska á
kvöld- eða morgunstund og margt
af því 2–3 punda bleikja. 8 punda
urriði veiddist á flugu í þjóðgarðs-
landinu um síðustu helgi.
Fínasta veiði hefur verið í Fitja-
flóði að undanförnu og hollin verið
að fá frá 70 og upp í 300 fiska, allt
eftir aðstæðum. Mest er um 1 til 4
punda geldan birting, en slangur af
bleikju í bland. Þar sýnist mönnum
að hrygningarfiskurinn frá síðasta
hausti sé mikið til horfinn úr veið-
inni. Genginn til sjávar.
SVFR 65 ára
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
var 65 ára í vikunni. Í tilefni dags-
ins fengu þeir félagar í SVFR sem
eiga sama afmælisdag hálfan veiði-
dag í Elliðaánum í afmælisgjöf. Sú
kvöð fylgdi að viðkomandi afmæl-
isbörnum er skylt að hafa með sér
barn eða ungling sem veiðifélaga á
stönginni. Þá var í tilefni dagsins
boðinn 65% afsláttur af völdum
veiðileyfum.
Rosalegar göngur
Morgunblaðið/Einar Falur
Það hefur verið líflegt við Hlíðar-
vatn að undanförnu.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111