Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 41
✝ Guðjón Jónssonfæddist í Hafnar-
firði 25. mars 1930.
Hann varð bráð-
kvaddur á heimili
sínu sunnudaginn 9.
maí síðastliðinn. For-
eldrar hans voru Jón
Pálmi Jónsson frá
Hliði á Álftanesi, f.
19. október 1892, d.
10. september 1988,
og Guðlaug Daníels-
dóttir frá Stóra-Bóli í
A-Skaftafellssýslu, f.
16. mars 1891, d. 2.
janúar 1984. Guðjón
var yngstur af fimm systkinum.
Hin eru: Jóna Sigríður Jónsdóttir
Þormar, f. 18. janúar 1918, d. 12.
júní 1987, gift Geir Þormar, f. 24.
nóvember 1917, d. 5. nóvember
1993; Skarphéðinn Jónsson, f. 28.
ágúst 1921, kvæntur Rósu Önnu
Bjarnadóttur, f. 21. ágúst 1925;
Jónasína Jónsdóttir, f. 23. ágúst
1926, gift Geir Þórðarsyni, f. 15.
nóvember 1926; Lovísa Jóhanna R.
rún, f. 9. nóvember 1987, Erna, f.
23. september 1989, og Guðjón
Valur, f. 26. júlí 1994. 2) Gerður
sjúkraliði, f. 12. maí 1958 í sambúð
með Guðmundi Emil Sigurðssyni
stýrimanni, f. 31. júlí 1959, sonur
Gerðar er Bergsveinn Norðdahl, f.
1. janúar 1989. 3) Guðlaug Linda
hjúkrunarfræðingur, f. 13. ágúst
1967, í sambúð með Stefáni Flego
kerfisfræðingi, f. 25. september
1965, sonur hans er Skúli, f. 1.
ágúst 1998.
Guðjón átti alla tíð heima í Hafn-
arfirði og ólst upp í foreldrahús-
um. Hann lauk námi frá Barna-
skóla Hafnarfjarðar. Hann byrjaði
ungur að vinna fyrir sér og vann
við fiskvinnslu og sjómennsku og
nú síðast sem verkstjóri hjá varn-
arliðinu í Keflavík eða til ársins
1996.
Útför Guðjóns var gerð í kyrrð-
þey frá Kapellunni í Hafnarfirði
17. maí að ósk hins látna.
Minningargrein Unnar Berg-
sveinsdóttur um Guðjón Jónsson
birtist fyrir mistök með grein um
nafna hans, Guðjón Einarsson, á
blaðsíðu 42 í Morgunblaðinu síð-
astliðinn fimmtudag, uppstigning-
ardag, og eru hlutaðeigendur inni-
lega beðnir afsökunar á
mistökunum.
Jónsdóttir, f. 25. októ-
ber 1927, d. 26. janúar
1989, gift Úlfari
Garðari Randvers-
syni, f. 22. júní 1934.
Í maí 1954 kvæntist
Guðjón Ernu Berg-
sveinsdóttir, bóka-
verði í Bókasafni
Hafnarfjarðar, f. 18.
júní 1932, d. 25. sept-
ember 2002. Foreldr-
ar hennar voru Berg-
sveinn Sigurður
Bergsveinsson, vél-
stjóri hjá Skipaútgerð
ríkisins, f. 7. október
1906 í Aratungu í Steingrímsfirði,
d. 11. desember 1977, og kona hans
Valgerður Jónsdóttir húsmóðir, f.
11. janúar 1912 í Hvammi í Dýra-
firði, d. 8. október 1993. Guðjón og
Erna bjuggu allan sinn búskap í
Hafnarfirði. Þau eignuðust þrjú
börn sem eru: 1) Ómar, verkstjóri,
f. 16. september 1954, kvæntur
Þóru Eiríksdóttur hársnyrti, f. 2.
janúar 1963. Börn þeirra eru: Sæ-
Nú er komið að kveðjustund. Það
er skrítið að þú skulir vera farinn
frá okkur, því þú varst svo hress
þegar við kvöddumst síðast. Á
svona stundum er margs að minn-
ast. Þín verður aðallega minnst fyr-
ir það hve hógvær og rólegur þú
varst í allri framkomu. Þú varst
verklaginn og laghentur við það
sem, þú tókst að þér, og kom það
sér vel þegar þið hjónin voruð að
byggja ykkar hús. Þar sat snyrti-
mennskan og smekkvísin í fyrir-
rúmi, bæði innan sem utan. Það var
líka tekið vel á móti gestum og
gangandi. Ekki má gleyma húsdýr-
unum í hverfinu hjá ykkur, en þau
fundu fljótt hvar vel var tekið á
móti þeim, enda voru þau oft í fæði
og gistingu í lengri eða skemmri
tíma. Það var mikill missir fyrir þig
þegar Erna eiginkona þín lést fyrir
um einu og hálfu ári. Erna var mik-
il og góð húsmóðir, sem hafði búið
þér og börnunum ykkar gott heim-
ili. Þú varst mjög barngóður maður
og gerðir allt sem þú gast fyrir
börnin þín, og fylgdist vel með
þeim, og barnabörnum í námi, starfi
og leik. Nú þegar þið eruð bæði far-
in verður eftir stórt skarð, sem erf-
itt verður að fylla.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guði þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Blessuð sé minning Guðjóns
Jónssonar.
Þinn tengdasonur
Guðmundur E. Sigurðsson.
Vegir skiptast – Allt fer ýmsar leiðir
inn á fyrirheitsins lönd.
Einum lífið arma breiðir,
öðrum dauðinn réttir hönd.
Einum flutt er árdags kveðja,
Öðrum sungið dánarlag,
allt þó saman knýtt sem keðja,
krossför ein með sama brag.
Veikt og sterkt í streng er undið
stórt og smátt er saman bundið.
Allt, sem á hjarta, ber í sér þrá
upp í söngvanna ríki;
herskarar drottins sálirnar sjá
syngjandi engla í líki.
Veikasta strengnum berst ómur af
upp til sólkonungs hallar;
rétt eins og lindir renna í haf,
raddir þar sameinast allar.
Hvað er ekki í einu ljóði falið,
einum söng frá góðu hjarta?
Já, allt, sem fagurt er,
skal vera talið
efst við dómsins hástól bjarta.
(Einar Ben.)
Mig langar til að minnast mágs
míns, Guðjóns Jónssonar, sem lést
9. maí síðastliðinn. Það var líkt
Guðjóni að kveðja þessa jarðvist á
stilltum, sólríkum sumardegi og
halda upp í sína hinstu för. Guðjón
kom inn í fjölskyldu okkar þegar
hann var að stíga í vænginn við
systur mína Ernu Bergsveinsdótt-
ur. Þá var ég unglingur. Mikil var
aðdáun mín á þessu fallega pari.
Guðjón var hár og spengilegur og
bar með sér góðan þokka. Fljótlega
kom í ljós að Guðjón var hagur á
flesta hluti, gerði við allt sem aflaga
fór enda byggði hann fjölskyldu
sinni fallega íbúð svo að segja einn
og síðar meir einbýlishús að Þrúð-
vangi 13 í Hafnarfirði. Já, hann var
nokkurs konar Bjartur í Sumarhús-
um hann Guðjón. Ég leit mjög svo
upp til þeirra hjóna enda urðu þau
fyrirmynd mín um flest. Þegar þau
fluttu í sína fyrstu íbúð var mér
ætlað eitt herbergi. Þá var ég ein
með dóttur mína og þau urðu mér
skjól og skjöldur. Þar lærði ég með-
al annars hvernig ætti að beita
málningarpensli við að mála íbúð-
ina. Margar voru lautarferðirnar
farnar í litla Volkswagen bílnum,
þau með sín tvö börn og ég með
mínar tvær dætur, þá var nú skott-
ið notað til hins ýtrasta. Eftir að ég
eignaðist mitt heimili var alltaf kall-
að á Gauja ef eitthvað þurfti að lag-
færa og oft kom Ómar sonur þeirra
með. Oftar en ekki voru sendingar
frá Ernu systur meðferðis, ýmis
matvæli og jafnvel fatnaður til bú-
bótar. Já, hugur þeirra var alltaf
gjöfull og veitandi til allra. Fyrir
samfylgdina vil ég þakka og bið
Guðjóni Guðs blessunar á eilífðar-
braut. Elsku Ómar, Gerður, Linda
og aðrir fjölskyldumeðlimir, ég
votta ykkur öllum mína dýpstu
samúð. Megi Guð styrkja ykkur í
sorginni.
Þín mágkona,
Unnur Bergsveinsdóttir.
GUÐJÓN
JÓNSSON
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langlangömmu,
GUÐBJARGAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Bjarteyjarsandi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilis-
ins Höfða, Akranesi.
Jónas Guðmundsson,
Hallgrímur Guðmundsson, Rebekka Gunnarsdóttir,
Óttar Guðmundsson, Jóna G. Ólafsdóttir,
Sigurjón Guðmundsson, Kolbrún R. Eiríksdóttir,
Dúfa Stefánsdóttir, Vífill Búason,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur hlýhug, vináttu og samúð vegna andláts
og útfarar elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUNNVARAR S. GÍSLADÓTTUR,
Droplaugarstöðum,
áður til heimilis
á Dalbraut 18,
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu Droplaugar-
stöðum fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Friðjón B. Friðjónsson, Svana Runólfsdóttir,
Jón S. Friðjónsson, Margrét Kristjánsdóttir,
Gísli J. Friðjónsson, Hafdís Alexandersdóttir,
Jórunn Friðjónsdóttir, Thor Thors,
ömmubörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð vegna andláts og útfarar móður minnar,
tengdamóður og ömmu,
EYFRÍÐAR GUÐJÓNSDÓTTUR
frá Nefsholti,
áður til heimilis á Austurbrún 6.
Guð blessi ykkur.
Sigríður Ásta Guðmundsdóttir,
Þóra Vilbergsdóttir,
Kristinn Guðnason, Berglind Jónsdóttir,
Guðmundur Guðnason, Ásta Björk Ragnarsdóttir,
Vilberg Guðnason, Gabriela B. E. Rambau,
Eyþór Guðnason, Halldóra Íris Ingvarsdóttir,
langömmubörn
og langalangömmubarn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug vegna andláts og útfarar eiginmanns
míns,
GÍSLA DAGSSONAR,
Vesturbergi 50,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 13D,
Landspítala við Hringbraut og starfsfólks
heimahlynningar Krabbameinsfélagsins.
Margrét Sigvaldadóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts
og útfarar okkar ástkæra eiginmanns, föður og
tengdaföður,
HARALDAR B. GUÐMUNDSSONAR,
Fornhaga 22,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Valdís Guðrún Þorkelsdóttir,
Guðrún V. Haraldsdóttir, Guðlaugur H. Jörundsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
PÁLÍNU M. STEFÁNSDÓTTUR
frá Þykkvabæ II,
Landbroti.
Börn, tengdabörn,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Innilegt þakklæti til allra, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR ÓLADÓTTUR,
Stekkjargerði 6,
Akureyri.
Haukur Guðmarsson, Marta Vilhjálmsdóttir,
Gylfi Guðmarsson, Arnheiður Eyþórsdóttir,
Guðmundur Guðmarsson, Helga Aðalsteinsdóttir,
Óli Guðmarsson,
Anna Steinunn, Hafdís Inga
og Óli Gneisti Sóleyjarbörn,
barnabörn og langömmubörn.
MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds-
laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er
minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða
á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina
símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Tekið
er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins,
Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangs-
stræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum.
Birting minningargreina