Morgunblaðið - 23.05.2004, Page 53

Morgunblaðið - 23.05.2004, Page 53
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 53 ENDALAUST er tími fyrir um- fjöllun um fjölmiðlafrumvarpið. Fréttamenn Stöðvar II – og fleiri – telja starfsöryggi sínu ógnað. Eng- inn „tími“ finnst hins vegar til að fjalla um hvort veiða megi 30% meiri þorsk. Starfs- öryggi í sjáv- arbyggðum skiptir ekki máli. Ég hringdi á frétta- stofu Stöðvar II og benti þeim á að þeir gætu vel við unað – miðað við okkur í sjávarbyggðunum. Við búum við það í sjáv- arbyggðum að kvótinn er leigður – eða seld- ur – kannski engin vinna og húseignir verða einskis virði. Ekki hrynur verð á húseignum fréttamanna. Á fiskvinnslan ekki stjórnarskrárvarin atvinnuréttindi eins og Norðurljós – og er samt hlunnfarin? Ég hef grun um það. Úr því ég er byrjaður að skrifa um þetta fjölmiðlamál vil ég geta þess sem mér finnst aðalatriði: Við Íslendingar eigum þrem mönnum (og fleirum) afar mikið að þakka fyrir árangur í bættum lífskjörum sl. 10 ár sem eru; Davíð Oddsson forsætisráðherra og feðgarnir Jó- hannes og Jón Ásgeir – kenndir við Bónus. Viðskiptalífið hefði varla blómstrað svo vel hefði Davíð Oddsson ekki haft forystu um um- deildar breytingar á viðskiptaum- hverfinu hérlendis – í átt til meira frjálsræðis. Kommarnir alltaf á móti og Samfylkingin vælandi. Við skulum vera svo ærleg að þakka þessum tilgreindu heiðursmönnum fyrir frábæran árangur þeirra – okkur til bættra lífskjara. Auðvitað þarf að setja reglur um starfsemi fjölmiðla. Mér finnst djöflagangur sumra fjölmiðla hafa breyst í ein- elti gegn Davíð Oddssyni – mann- inum sem hafði forystu um að lag- færa viðskiptaumhverfið til bættra lífskjara. „Rassskell skaltu fá í kaup.“ Mér finnst að fjölmiðla- menn geti þokkalega vel við unað. Þetta er ekkert svona slæmt. Farið að fjalla um hvað það má auka þorskveiðar mikið – án áhættu. Færeyingar veiða 30% umfram ráðgjöf ICES – með frábærum ár- angri. Rágjöf ICES er byggð á hálfónýtu forriti sem ekki má „uppfæra“ samkvæmt fenginni reynslu síðustu ára. Ef þorskkvóti væri aukinn um 30% myndi staða sjávarþorpa strax batna. Það sem vantar eru ábyrgir fjölmiðlamenn í faglega umfjöllun svo þjóðin – og stjórnmálamenn skilji um hvað er deilt. Stjórnmálamenn þora kannski ekki í umræðu um auknar þorskveiðar – af ótta við ykkur fjölmiðlamenn – að þið ráðist á þá og sakið þá um „óábyrgar“ veiðar. Djöflist svo á þeim eins og Davíð með því að vaða langt inn á grá svæði siðferðislega með útúrsnún- ing og sviðsettan hálfsannleika – svo púkinn „fáiða“ hjá sumum stór- skrýtnum „fréttamönnum“. Af hverju skammast ég ekki bara líka út í forsætisráðherra vegna kvótans? Þó að ég sé oft pirraður yfir sumu ruglinu sem gengur yfir okkur í sjávarbyggðum tel ég það ekki vænlegt til árang- urs – að sparka í þann stjórnmála- mann sem þjóðin á mest að þakka – fyrir bætt lífkskjör – á heildina litið – líka hjá mér – þrátt fyrir allt! Ég prísa mig sælan að Sam- fylkingin skuli ekki vera með kvót- ann – með öllum göllunum – á upp- boði – eins og þeir boðuðu fyrir síðustu kosningar! Uppboð á kvót- um yrði eins og setja fréttakvóta (fjölmiðlaleyfi) á uppboð! Hvernig væri það? Hver hefði þá vinnu næst? Ég bið bara um heiðarlega og faglega umræðu um 30% meiri veiði á þorski – eins og gefst frábærlega í Fær- eyjum. Viljið þið fréttamenn kannski vinsamlegast sýna okkur í sjávarbyggð- unum þá skyldurækni að minnka umfjöllun um ykkar eigin rass og fjalla faglega um það hvort það sé nokkur áhætta að auka þorskveiðar um 30%? Nú vitið þið – pínulítið – hvernig tilfinning það er – ef vinn- an ykkar fer – kannski – á „upp- boð“ eftir tvö ár – kannski. Bragð er að þá barnið finnur … Bragð er að þá barnið finnur … Kristinn Pétursson fjallar um fjölmiðlafrumvarpið ’Ég bið bara um heiðarlega og faglega umræðu um 30% meiri veiði á þorski – eins og gefst frábærlega í Færeyjum. ‘ Kristinn Pétursson Höfundur er fiskverkandi á Bakkafirði. Opið hús frá kl. 15 - 17 í dag. Freyjugata 32 – Skólavörðuholt - 101 RVK. Eign fyrir vandláta. Klassa innréttuð 2ja herbergja 65,9 fm kjallaraíbúð í mjög fallegu yfirförnu húsi á besta stað í Skólavörðuholtinu. Komið inn í snyrtilega sameign og inn í íbúðina. Forstofa með flísum á gólfi. Eldhús með fallegum nýlegum flísum á gólfi og fallegri nýtískulegri innréttingu með borðkrók og Electrolux tækjum. Salerni er flísalagt í hólf og gólf með glerhillum. Stofan er með gegnheilu eikarparketi, lagt í 45°. Halogen lýsing í allri íbúðinni. Inngangur í svefnherbergið er með glerhurð og stórum spegli á vegg og í lofti, gegnheilt eikarparket á gólfi lagt í 45°. Úr svefnherbergi er gengið inn á glæsilegt baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf. Þar er stór, steyptur sturtuklefa með mjög fullkomnum blöndunar- tækjum með 3 sturtuhausum og glerhurð. Falleg baðinnrétting. Sérgeymsla er á hæðinni og sameiginlegt þvottahús. Stór garður á bak við hús. Allt gler og gluggar eru nýir í íbúðinni svo og rafmagn. Eign sem vert er að skoða og mun stoppa stutt við á söluskrá okkar. Sölumenn Kletts fasteignasölu taka vel á móti ykkur í dag á milli kl. 15.00 og 17.00. Sérinngangur á bak við húsið hægra megin. OPIÐ HÚS SKIPHOLTI 62, EFRI SÉRHÆÐ Vorum að fá í sölu glæsilega 185 fm efri sérhæð í þríbýlishúsi (efsta hæð í húsinu). Auk þess fylgir 26 fm innbyggður bílskúr. Íbúðin afh. í núverandi ástandi, þ.e. tæplega tilbúin u. tréverk. Húsið er fullbúið að utan. Gert er ráð fyrir arni. Innanhússarkitekt er Guðbjörg Magnúsdóttir en teikningar fylgja íbúðinni. Íbúðin er laus nú þegar. ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 12-14. V. 22,5 m. 4023 SELBREKKA - GLÆSILEGT ÚTSÝNI Mjög fallegt 223 fm einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið skiptist m.a. í stofu, borðstofu, sólstofu, 2 baðh. og 4-5 herb. Stórglæsilegt útsýni er úr húsinu. Falleg gróin lóð. V. 26,9 m. Glæsileg 102 fm 3ja herb. íbúð á 1.hæð í fallegu fjölbýlishúsi. Eignin skiptist m.a. í hol, eldhús, stofu, tvö herbergi og baðherb. Sér- geymsla í kjallara og sameiginlegt þvotta- hús. Íbúðinni fylgir herbergi í risi sem er með aðgang að saml. snyrtingu. Búið er að end- urnýja blokkina mikið s.s. steinuð upp á nýtt, nýtt rafmagn, nýir gluggar. ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 14-17 (Hrönn á bjöllu). V. 15,3 m. 4120 OPIÐ HÚS ESKIHLÍÐ 14. 1.H.V. Falleg 103 fm 4ra herb. íbúð á 2.hæð í fjöl- býlishúsi með aukaherb. í kjallara. Íbúðin skiptist þannig: tvær stofur, eldhús, bað- herb., tvö herb. og hol. Aðgangur að saml. snyrtingu í kjallara fyrir herb. og tvær litlar geymslur í kjallaranum. ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 15-17 (Magnea á bjöllu). V. 14,5 m. 4025 OPIÐ HÚS BOGAHLÍÐ 16, 2.H.V. - MEÐ AUKAHERB. Glæsileg 122 fm íbúð ásamt ca 15 fm sól- stofu og bílskýli í eftirsóttri blokk, „Gimlis- blokkinni“. Íbúðin skiptist í hol, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergi, stofu, sólstofu o.fl. Í kjallara fylgir sér geymsla.Mikil sameign er á 1.hæð hússins. Þar er m.a. borðsalur, hárgreiðslustofa, snyrtistofa og saunabað. Hægt er að fá keyptan heitan mat í hádeginu alla daga. Íbúar hússins geta fengið borðsalinn leigðan fyrir veislur. Útg. er á sérlóð úr sólskála, V. 30 m. 4183 MIÐLEITI - GIMLI 2ja herb. 66 fm björt og góð íbúð á 6. hæð í eftirsóttri lyftublokk. Íbúðin snýr öll til suðurs og útsýni er glæsilegt. Mikil þjónusta er í húsinu, m.a. stór matsalur o.fl. V. 12,9 m. 4187 GRANDAVEGUR - 6. HÆÐ Falleg fimm herb. 120 fm hæð í einu af elstu og fallegustu húsum í gamla miðbænum. Húsið er byggt árið 1880 og skiptist í and- dyri, borðstofu, stofu, þrjú herbergi, bað- herb. og eldhús. Sameiginlegt þvottahús. Góð lofthæð er í íbúðinni og stórir gluggar sem gera íbúðina mjög bjarta og sérstaka. Húsið hefur oft verið kallað Borgarhúsið og var reist af Jóni Árnasyni þjóðsafnara. V. 18,9 m. 4113 LAUFÁSVEGUR Glæsileg 116,9 fm íbúð á 3.hæð með bíl- skýli á frábærum útsýnisstað efst í Sala- hverfinu. Íbúðin skiptist í 3 svefnherb., stofu/borðstofu, eldhús, þvottahús, baðher- bergi og hol. Stórar svalir og innangengt í bílskýlið. Parket og flísar á gólfum, vandaðar innréttingar. V. 17,9 m. 4177 KÓRSALIR Stórglæsileg 63 fm 2ja herb. íbúð á jarðhæð í fallegri blokk við Álfheima í Reykjavík. Eign- in skiptist í hol, eldhús, herbergi, baðher- bergi og stofu. Sérgeymsla undir stiga og sameiginlegt þvottahús með vélum. Antík- parket á gólfum. Svalir. Trérimlagardínur. 4172 ÁLFHEIMAR - GLÆSILEG ÍBÚÐ Opið hús frá kl. 15-17 í dag. Grensásvegur 26, 108 Reykjavík. Grensásvegur - sérhæð. Nýstandsett sérhæð á góðum stað í Reykjavík. Stigahús er fyrir tvær íbúðir, nýlega teppalagt. Sérþvottahús og geymsla, skolvaskur, gluggi, náttúrusteinn á gólfi. Hol er lagt náttúrusteini og með fatahengi. Baðherbergi er með náttúrusteini á gólfi, flísum á veggjum, bað- kari, handklæðaofni og glugga. Eldhús er með nýrri mahony innréttingu, granítflísum á vinnuborðum og steinflísum á gólfi. Stofa er lögð steinflísum og er hún opin inn í yfirbyggða sólstofu sem er parketlögð. Barborð í sól- stofu fylgir, útgangur er á svalir. Í íbúðinni eru tvö rúmgóð teppalögð her- bergi. Einnig er opið rými innaf stofu sem mögulegt er að gera að herbergi. Inngangur er á bakvið húsið. Íbúðin er laus strax, lyklar á skrifstofu. Skipti möguleg á minni eign. Sölumenn Kletts fasteignasölu taka velá móti ykkur í dag á milli kl. 15.00 til 17:00 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.