Morgunblaðið - 23.05.2004, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 61
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hugmyndarík/ur og
sannfærandi og hefur mikið
aðdráttarafl. Þú munt verða
óvenjumikið ein/n með
sjálfri/sjálfum þér á þessu
ári. Þú þarft að læra eitt-
hvað mikilvægt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta getur orðið mjög
skemmtilegur dagur þó þú
verðir sennilega ekki afkasta-
mikil/l. Njóttu þess að leika þér
og vinna að listsköpun en
slepptu því að fara í búðir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þetta er góður dagur til að
njóta samvista við aðra. Þig
langar til að daðra og leika þér.
Þú ættir hins vegar að geyma
það að taka mikilvægar
ákvarðanir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú munt að öllum líkindum
rifja upp eitthvað úr fortíðinni
með fjölskyldu þinni í dag.
Eitthvað gamalt sækir á huga
þinn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Reyndu að njóta samvista við
vini þína og kunningja í dag.
Leitaðu leiða til að skemmta
þér án þess að eyða miklu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þig langar til að bera hug-
myndir þínar í fjármálunum
undir fólk sem hefur vit á pen-
ingum. Þú ættir engu að síður
að bíða til morguns með að
taka ákvörðun.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert að íhuga marga spenn-
andi möguleika varðandi ferða-
lög og framhaldsnám. Þú ættir
þó að bíða til morguns með að
taka endanlegar ákvarðanir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú gætir fengið snjalla hug-
mynd um það hvernig þú getir
nýtt þér auðlegð annarra. Þú
vilt koma þér upp fjárhagslegu
öryggisneti.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það hrífast allir af þér í dag. Þú
munt eiga góðar samræður við
þína nánustu en ættir að bíða
aðeins með að taka mikilvægar
ákvarðanir. Ekki eyða of
miklu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú færð byltingarkenndar
hugmyndir varðandi vinnuna
þína en munt ekki komast að
því hvort þær geta gengið upp
fyrr en eftir einn eða tvo daga.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ekki leggja of mikið undir í
dag. Það liggur vel á þér og því
hættir þér til of mikillar
eyðslusemi. Það er hins vegar
ólíklegt að eyðslan borgi sig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þetta er góður dagur til að
njóta samskipta við fjölskyldu
þína og vini og til að huga að
umbótum á heimilinu. Þú ert
bjartsýn/n og jákvæð/ur og það
gerir gæfumuninn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Leggðu þig fram um að hitta
annað fólk í dag, sérstaklega
systkini þín og ættingja. Bjart-
sýni þín smitar út frá sér.
Bíddu til morguns með inn-
kaup og undirskrift samninga.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 24. maí er
Ármann Pétursson, bóndi í
Reynihlíð, áttræður. Hann
tekur á móti gestum í Gamla
bænum í Reykjahlíð milli
klukkan 15:00 og 19:00 á af-
mælisdaginn.
50 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 23.
maí, er fimmtugur Vil-
hjálmur Þór Guðmundsson
kvikmyndatökumaður.
Hann mun ásamt eiginkonu
sinni, Guðrúnu Jónsdóttur,
taka á móti gestum í Golf-
skála Granada Club de Golf
um kvöldið. Vonast til að sjá
sem flesta.
1. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. Rf3
Rc6 4. g3 Bb4 5. Bg2 O-O
6. O-O Bxc3 7. bxc3 d6 8.
d3 h6 9. Hb1 Hb8 10. h3 a6
11. a4 Be6 12. e4 Rh7 13.
Rh4 Dd7 14. g4 Ra5
15. Bd2 c5 16. Rf5 b6
17. f4 f6 18. h4 Hf7
Staðan kom upp á
Evrópumeistaramóti
einstaklinga sem
fram fer nú um
stundir í Anatalya í
Tyrklandi. Hinn öfl-
ugi 18 ára azerski
stórmeistari Skahriy-
ar Mamedyarov
(2657) hafði hvítt
gegn Lorenz Drabke
(2453). 19. Rxh6+!
gxh6 20. f5 h5? 20...
Bxc4 hefði veitt svörtum
mun betri möguleika en
textaleikurinn. 21. g5 fxg5
22. hxg5 Bxf5 23. exf5
Hxf5 24. Dxh5 Hbf8 25.
Hxf5 Hxf5 26. Bh3 Rf8 27.
Bxf5 Dxf5 28. Hf1 Dd7 29.
g6 Dg7 30. Hxf8+ og
svartur gafst upp saddur
lífdaga.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MEÐ allar hendur uppi er
ekki mikið mál að taka suð-
ur niður á fjórum spöðum,
en við borðið reynir á hug-
kvæmni og góðar reglur.
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠10983
♥K843
♦DG4
♣DG
Vestur Austur
♠G ♠5
♥D952 ♥G10
♦K8 ♦Á109652
♣K87643 ♣Á1092
Suður
♠ÁKD7642
♥Á76
♦73
♣5
Vestur Norður Austur Suður
– – 2 tíglar *3 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
* veikir tveir
Útspil: Tígulkóngur.
Vörnin á með réttu að fá
fjóra slagi – tvo á tígul, einn
á lauf og einn á hjarta. En
hættur leynast við hvert fót-
mál. Helsta hættan er
kannski þessi: Vestur spilar
tígli áfram yfir á ás austurs,
sem leggur nú niður lauf-
ásinn „til að kanna málið“.
En þar með er búið að gefa
spilið. Spili austur laufi
áfram, trompar suður og
hendir svo hjarta niður í
tíguldrottningu. Ef austur
eyðileggur tíguldrottn-
inguna með þriðja tíglinum,
stingur suður frá, rennir öll-
um trompunum og þvingar
vestur í hjarta og laufi!
Eddie Kantar leggur til
eftirfarandi vörn: Vestur
lætur tígultvistinn í fyrsta
slaginn, sem vestur ætti að
túlka sem kall í laufi. Varn-
arreglan er þessi: Þegar bú-
ið er að sýna sexlit í sögnum
eru há og lág spil köll til
hliðar, en millihundur hvetj-
andi í útspilslitnum. Svo-
nefnt „þriggja-lita-kall“.
Þegar vestur veit af lauf-
ásnum er eðlilegt að kanna
hvort hægt sé að taka tvo
laufslagi. Vestur leggur því
niður laufkóng í öðrum slag,
sem ætti að laða fram taln-
ingu frá makker í þessari
stöðu. Hér sýnir vestur fjór-
lit og þá skiptir austur aftur
yfir í tígul og austur spilar
þeim þriðja til að eyðileggja
drottninguna. Nú sér austur
um að valda laufið og engin
þvingun myndast.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
Barnagælur
Komdu hérna, krílið mitt,
komdu, litla morið;
enn er liðið ekki þitt
æsku blíða vorið.
- -
Kristín litla, komdu hér
með kalda fingur þína;
eg skal bráðum bjóða þér
báða lófa mína.
- -
Fuglinn segir bí, bí, bí,
bí, bí, segir Stína.
Kvöldúlfur er kominn í
kerlinguna mína.
Sveinbjörn Egilsson
LJÓÐABROT
MEÐ MORGUNKAFFINU
Ég skil þetta ekki, það er alltaf á tali!
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira að kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki afmæl-
isbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
MIÐVIKUDAGINN 19. maí sl. fengu
Fáskrúðsfirðingar heimsókn 22
grunnskólanema, kennara og að-
stoðarfólks, samtals 35 manns, frá
Götu í Færeyjum.
Færeyingunum, sem verið hafa á
viku skólaferðalagi um Ísland, var
tekið með kostum og kynjum af
nemendum 6. og 7. bekkja og þeim
boðið í pitsuveislu sem Loðnuvinnsl-
an var svo rausnarleg að bjóða. Kon-
ur í kennaraliði skólans sáu um elda-
mennsku og að allir fengju nóg að
borða.
Þegar börnin höfðu lokið við mat-
inn var farið í ratleik um kauptúnið
og síðan var diskótek í skólanum.
Hópurinn hélt frá Fáskrúðsfirði á
fimmtudag og af landi brott með
Norrænu.
Færeyingar sækja
Fáskrúðsfirðinga heim
FRÉTTIR
Fundar um stöðu stráka í grunn-
skóla Fræðsluráð Reykjavíkur efn-
ir til opins fræðsluráðsfundar um
stöðu stráka í grunnskóla. Fund-
urinn verður á morgun, mánudaginn
24. maí kl. 14.30–17.30 í Iðnó. Erindi
halda: Inga Dóra Sigfúsdóttir fé-
lagsfræðingur hjá Rannsóknum og
greiningu, Berglind Rós Magn-
úsdóttir sem starfar sem jafnrétt-
isfulltrúi hjá Háskóla Íslands, Júlíus
K. Björnsson forstöðumaður Náms-
matsstofnunar og Hafsteinn Karls-
son skólastjóri Salaskóla í Kópavogi.
Aðalfundur samtakanna Regn-
bogabarna verður haldinn á morg-
un, mánudaginn 24. maí kl. 18, í húsi
samtakanna í Mjósundi 10, í Hafn-
arfirði. Á fundinum verða veittar
viðurkenningar, sjálfboðaliðar árs-
ins, styrktarfyrirtæki ársins.
Fræðsluerindi HÍN, Hins íslenska
náttúrufræðifélags, verður haldið á
morgun, mánudaginn 24. maí kl.
17.15 í stofu 132, Öskju, Háskóla Ís-
lands. Ólafur Arnalds mun flytja er-
indi sem hann nefnir Íslenskur jarð-
vegur – eðli og myndun. Ólafur
greinir frá rannsóknum RALA á eðli
jarðvegsins, sérstökum eiginleikum
og þeim þáttum sem helst ráða
myndun hans.
Á MORGUN
Rangt nafn
Rangt var farið með nafn eins
þeirra fjögurra drengja sem rætt
var við vegna Viðeyjarferðar á for-
síðu barnablaðsins í gær. Þar stóð að
einn þeirra héti Elís Ingi Bjarnason
en hið rétta er að hann heitir Einar
Siggi Bjarnason og biðst Morgun-
blaðið velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
♦♦♦
KENNARAR við Menntaskólann á
Egilsstöðum hafa sent frá sér
ályktun um byggingarmál skólans
þar sem lýst er áhyggjum af seina-
gangi við stækkunaráform skólans.
Hefur ályktunin verið send mennta-
málaráðherra, bæjarstjórn Austur-
Héraðs, sveitarstjórn Fellahrepps
og alþingismönnum Norðaustur-
kjördæmis og er svohljóðandi:
„Til þess er varðar:
Kennarafélag Menntaskólans á
Egilsstöðum lýsir yfir áhyggjum
sínum af seinagangi við stækkunar-
áform skólans.
Fólksfjölgun er hafin á sóknar-
svæði skólans og mun hún aukast
enn frekar á næstu misserum. Því
til viðbótar eykst aðsókn nú að
framhaldsskólum landsins, og
stefnir því í talsverða fjölgun um-
sókna um skólavist strax á næsta
skólaári.
Það er ábyrgðarhluti ef tómlæti
yfirvalda verður til þess að vísa
þurfi fjölda ungmenna frá námi í
heimabyggð og eykur ekki tiltrú
manna á að hugur fylgi máli hjá
stjórnvöldum menntamála um
framsækna menntastefnu.
Kennarafélagið skorar því á
stjórnvöld að taka á þessu máli nú
þegar og leysa þann hnút sem
byggingaráform frá liðnu hausti
eru nú í, öllum til skaða.
Virðingarfyllst,
kennarar við
Menntaskólann á Egilsstöðum.“
Kennarar við Menntaskólann á Egils-
stöðum álykta um byggingarmálin
Hafa áhyggjur af
tómlæti yfirvalda
MAGNÚS og Snæfríður – um tví-
leik alkóhólismans er yfirskrift fyr-
irlestrar sem Hlín Agnarsdóttir
flytur á Amtsbókasafninu á Akur-
eyri á þriðjudag, 25. maí kl. 17.00.
Í fyrirlestri sínum fjallar Hlín,
sem er höfundur bókarinnar ,,Að
láta lífið rætast – ástarsaga að-
standanda“ um tilurð bókar sinnar
og speglar reynslu sína sem að-
standandi alkóhólista í frægum
sögupersónum Halldórs Laxness,
hjónunum Magnúsi í Bræðratungu
og Snæfríði Íslandssól. Magnús
átti við alvarlega drykkjusýki að
stríða og Snæfríður fór ekki var-
hluta af henni. Hlín skoðar
drykkjumunstur Magnúsar og við-
brögð Snæfríðar eiginkonu hans
við því. Í fyrirlestrinum talar hún
um kvöl aðstandandans og hvort
hún sé óumflýjanleg.
Aðgangur er ókeypis að fyrir-
lestrinum og allir eru velkomnir.
Tvíleikur um alkóhólisma