Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 65
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 65
Hard Revolution eftir George Pelecanos.
Orion gefur út 2004. 376 síður innb.
Kostaði 1.795 í Máli og menningu.
EKKI ætla ég að blanda mér í þá
umræðu hvort hægt sé að telja
glæpasögur bókmenntaverk, en því
er þó ekki að neita að sumir þeir
fremstu á því sviði eiga það til að
skrifa leiftrandi góðar bækur stíllega
og efnislega. George Pelecanos er
gott dæmi um slíkan höfund, enda
sumar síðustu bóka
hans svo vel skrif-
aðar að jafna má við
nútímabókmenntir
almennt. Þannig er
síðasta bók Pelec-
anos, Hard Revolu-
tion, með bestu
glæpasögum sem
ég hef komist yfir
lengi. Aðalpersóna í Hard Revolution
er blökkumaðurinn Derek Strange,
en Pelecanos hefur áður skrifað þrjár
bækur þar sem hann er í aðalhlut-
verki, Right as Rain, Hell to Pay og
Soul Circus, en tvær þær síðast-
nefndu eru mjög tengdar. Í þeim bók-
um er hann fyrrverandi lögga sem
rekur einkaspæjaraskrifstofu en í
Hard Revolution, sem er einskonar
forleikur að hinum bókunum þremur,
segir frá hinum unga Derek Strange.
Bókin gerist í Washington, fyrst
þegar Strange er á barnsaldri, en síð-
an árið örlagaríka 1968 þegar
Strange er orðinn lögreglumaður. Á
sjöunda áratugnum hitnaði stöðugt í
kolunum í samskiptum hvítra og litra
vestan hafs og undir lok áratugarins
var réttindabarátta þeirra síðar-
nefndu að ná hámarki þegar Martin
Luther King var myrtur í Memphis.
Pelecanos, sem er af grísku for-
eldri, nær ágætlega að fanga spenn-
una milli kynþáttanna og fellur ekki í
þá gildru að mála menn of sterkum
litum, að hafa persónurnar ýmist al-
góðar eða alvondar. Þannig eru
glæpagengin, ef svo má segja, í bók-
inni tvö, annað hvítir óþokkar og hitt
svartir bófar, en honum tekst einmitt
vel upp að sýna fram á muninn á
hugsunarhætti þeirra sem stafar af
ólíkum aðstæðum og uppruna.
Það er auðvelt að hafa samúð með
Derek Strange; hann þarf að glíma
við ýmislegt annað en fordóma frá
hvítum, því svartir fyrirlitu margir á
þessum tíma þá sem gengu í lögregl-
una, þeir voru orðnir handbendi kúg-
aranna. Strange finnur sig þó í starf-
inu, finnur að sín er þörf til að vernda
svarta ekki síður en halda svörtum
óróaseggjum í skefjum, en eldskírn
hans er þegar upp úr sýður í kjölfar
morðsins á King.
Þótt þetta sé fjórða bókin um Der-
ek Strange eins og getið er, verður að
teljast líklegt að Pelecanos eigi eftir
að skrifa um hann fleiri bækur, enda
frá ýmsu að segja. Strange er smám
saman að verða raunverulegri og
sannferðugri persóna, maður sem
þarf að glíma við drauga úr fortíðinni
og taka ákvarðanir þar sem enginn
kostur er góður, sumpart vegna að-
stæðna í þjóðfélagi ótta og kúgunar
og sumpart vegna eigin breyskleika.
Forvitnilegar bækur
Sumarið
1968
Árni Matthíasson
ÍSLENSKA sveitin The Leaves
undirritaði á miðvikudaginn samn-
ing um allt að fimm breiðskífur við
útgáfufyrirtækið Island Records.
Um er að ræða lokapunktinn á
tveggja ára löngu ferli, að sögn
Árna Benediktssonar, umboðs-
manns sveitarinnar. Leaves var áð-
ur á mála hjá Warner-fyrirtækinu.
Leaves vinnur nú að annarri plötu
sinni, en frumburðurinn, Breathe,
kom út árið 2002.
MP3.is segir frá.
Leaves á samning við Island Records
Fimm platna
samningur
Íslenska hljómsveitin Leaves hyggur á útrás til Vesturheims því 9. sept-
ember næstkomandi er áætluð útgáfa breiðskífu hljómsveitarinnar í
Bandaríkjunum. Hljómsveitin mun spila fyrir landsmenn í aðdraganda út-
rásarinnar til Bandaríkjanna.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Dansleikur Ásgarði í Glæsibæ
Capri tríó leikur
fyrir dansi í kvöld
sunnudag 23, maí
frá kl. 20.00
Fjölmennum