Morgunblaðið - 23.05.2004, Qupperneq 72
SVEITARSTJÓRN Mýrdalshrepps hefur
bannað lausagöngu búfjár við þjóðveg núm-
er 1. Að sögn Sveins Pálssonar, sveitar-
stjóra Mýrdalshrepps, er með þessu verið
að efna samkomulag við Vegagerð ríkisins
en það felur í sér að hún sjái um viðhald
girðinga við hringveginn frá Vík vestur að
Jökulsá á Sólheimasandi. Á móti kemur að
sveitarstjórn Mýrdalshrepps tekur að sér
að koma búfé sem sleppur inn fyrir girðing-
arnar burtu aftur. Segir Sveinn nokkuð
skiptar skoðanir hafa verið um málið í sveit-
arstjórn Mýrdalshrepps en samkomulagið
hafi verið gert í tíð fyrri sveitarstjórnar.
Það hafi verið fyrsta samkomulag þessarar
tegundar þótt annað sveitarfélag hafi orðið
fyrra til að hrinda slíku samkomulagi í
framkvæmd. „Við vorum að klára okkar
hluta núna. Við þurftum að útbúa sérstaka
samþykkt um búfjárhald þar sem m.a. er
lýst yfir lausafjárgöngubanni. En það er
engin óendanleg hamingja með þetta hjá
okkur í sveitarstjórninni en við vonum þó að
þetta verði til bóta,“ segir Sveinn.
Umdeilt mál
Aðspurður hvað Mýrdalshreppur finni
athugunarvert við samkomulagið segir
Sveinn að það sé umdeilt hvort sveitarfélag-
ið eigi að vera að taka á sig skyldur sem það
í sjálfu sér ekki hafi. „Við höfum takmörkuð
fjárráð og ég veit ekki hvaða ráðstafanir við
eigum að hafa til að smala þjóðveginn. Þetta
er umdeilt og eðlilegt að velta fyrir sér
hvort þetta eigi ekki að vera í verkahring
Vegagerðarinnar,“ segir Sveinn.
Samkomulag Vegagerð-
arinnar og Mýrdalshrepps
Lausaganga
búfjár bönn-
uð við hring-
veginn
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
TVEIR menn hafa verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 26. maí vegna
bankaránsins í útibúi Landsbankans
við Gullinbrú á föstudagskvöld en lög-
reglan telur ekki útilokað að fleiri
menn tengist ráninu. Báðir mennirnir
sem nú sitja í gæsluvarðhaldi hafa áð-
ur komið við sögu lögreglunnar.
Tæplega þrítugur karlmaður sem
hótaði starfsfólki í bankaútibúinu með
öxi var handtekinn strax í kjölfar ráns-
ins en hinn maðurinn var handtekinn
skömmu síðar. Þá lagði lögreglan hald
á bifreið sem talin er tengjast málinu
og er hún nú til rannsóknar en ekki
fæst uppgefið hversu mikið þýfi lög-
reglan lagði hald á vegna ránsins.
Bankaránið við Gullinbrú
Útiloka
ekki að
fleiri teng-
ist ráninu
ÓHÆTT er að segja að undurfagrir tónar fiðl-
unnar hans Hjörleifs Valssonar hafi snert ein-
hverja strengi í aðkomugöngum Kárahnjúka-
virkjunar. Hjörleifur var í föruneyti starfs-
manna Lýsingar, KB banka og Impregilo og
spilaði létt ítölsk dægurlög í bland við heims-
fræg klassísk meistaraverk gömlu snillinganna
í aðkomugöngum 2 og 3.
Tilefnið var að Lýsing hafði á dögunum fjár-
magnað bæði eftirlíkingu af Stradivarius-fiðlu
fyrir Hjörleif og þrjá risabora fyrir ítalska
verktakann Impregilo. Risaborar Impregilo
eru keyptir frá fyrirtækinu Robbins í Banda-
ríkjunum og fleiri kílómetrar hafa verið bor-
aðir með þessarri tegund bora en nokkrum öðr-
um borum í heiminum.
Hvort með sínum hætti
Stradivariusfiðlur hafa óneitanlega borað sig
inn í hug og hjarta fjölmargra tónlistarunnenda
um allan heim. Þær voru framleiddar af hinum
ítalska Antonio Stradivari sem var uppi á ár-
unum 1644 til 1737 og smíðaði fjöldann allan af
fiðlum, en í dag er álitið að til séu á bilinu 800 til
1.200 sem enn eru í notkun. Eftirlíkingar af
þessum fiðlum reyna allar að ná þeim einstaka
hljómburði og ótrúlega fallegu tónum sem
Stradivarius-fiðlurnar eru löngu orðnar heims-
frægar fyrir.
Fiðlurnar gefa risaborunum lítið eftir í verði,
sé verðið skoðað út frá þyngd. Fiðlan hans
Hjörleifs vegur um 470 grömm, en borarnir
vega hver um sig 600 tonn. Samkvæmt lausleg-
um útreikningum Lýsingar má því áætla að
hvert gramm borsins kosti um 50 krónur, en
hvert gramm fiðlunnar um 6.382 krónur!
Hið fokdýra fiðlugramm
Ljósmynd/Lárus Karl Ingason
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
VÍSINDAMENN frá Háskóla Ís-
lands og háskólanum í Cambridge
voru í gær staddir í kirkjugarðinum
Ásum í Skaftártungu þar sem þeir
grófu upp beinagrindur í rannsókn-
arskyni, en kirkjan þar var lögð nið-
ur árið 1898. Ætlun vísindamann-
anna er að komast að því hvort þeir
sem þar eru grafnir hafi þjáðst af
flúoreitrun í kjölfar Skaftárelda
sem geisuðu hér á landi árið 1783–
1784.
Rannsóknin er á vegum forn-
leifastofnunar Íslands, en einnig
eru á staðnum læknir og jarðfræð-
ingur frá háskólanum í Cambridge,
sem fengu upprunalega hugmynd-
ina að verkefninu.
Ofvöxtur í beinum
Að sögn Hildar Gestsdóttur,
fornleifafræðings með sérmenntun
í mannabeinarannsóknum, hefur
flúoreitrun þau áhrif á spendýr að
ofvöxtur verður í beinum auk þess
sem tennur skemmast. Flúoreitr-
unin dregur sauðfé til dauða þannig
að þegar tennurnar skemmdust
geta kindur ekki lengur jórtrað og
melt fæðu sína og svelta til dauða.
Hins vegar geta manneskjur lifað
með flúoreitrun, en miklar þjáning-
ar geta fylgt ef ofvöxtur á beinum
er mikill og tennur skemmast alvar-
lega.
„Við ætlum að gera efnagrein-
ingu á beinunum til að athuga hvort
þar sé óeðlilegt magn flúors,“ segir
Hildur. „Þessi uppgröftur er for-
könnun á að því að kanna aðstæður
í kirkjugörðum til að sjá hvort það
sé þess virði að fara í frekari rann-
sóknir á þeim. Við vildum sjá
hversu vel við gætum tímasett ein-
stakar grafir innan kirkjugarðsins
og athuga varðveislu á beinum. Við
erum nú komin með eina beina-
grind sem við munum taka með
okkur og gera á henni efnafræðileg-
ar rannsóknir og greiningar til að
athuga flúormagn. Svo er hugsan-
legt að í framtíðinni gerum við þetta
að stærra verkefni og greinum flú-
ormagn í fleira fólki.“
Fréttamenn frá BBC fylgdust
með starfi vísindamannanna í gær,
en þeir voru að vinna heimildaþátt
um eldgos og hvað myndi gerast ef
mikið gos yrði í Yellowstone-þjóð-
garðinum. Skaftáreldar eru þar
notaðir sem dæmi um slæmt eld-
gos.
Vísindamenn kanna afleiðingar Skaftáreldanna
Beinagrindur grafnar
upp í rannsóknarskyni
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hildur Gestsdóttir grefur frá
hauskúpu í Ásakirkjugarði í
Skaftártungu í gærmorgun.
FLUGFÉLAGIÐ X hf.,
sem nefnist Jetex á ensku,
fékk íslenskt flugrekstrar-
skírteini hinn 5. maí síðast-
liðinn. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Heimi Má
Péturssyni, upplýsingafull-
trúa Flugmálastjórnar, ger-
ir félagið út frá Forlei-flug-
velli, sem er skammt frá
Bologna á Ítalíu. Heimir
Már segir að félagið sé með
eina flugvél í rekstri, vél af
gerðinni McDonnell Dougl-
as MD-82.
Átti áður MD
Stærsti eigandi flug-
félagsins X er Ingimar
Haukur Ingimarsson, en
hann ásamt fleirum stóð að
flugfélaginu MD Airlines í
Svíþjóð. Það flugfélag hóf
flugrekstur árið 2000 en
óskaði eftir gjaldþrotaskipt-
um á síðasta ári, í kjölfar
þess að stærsti viðskipta-
vinur félagsins, ferðaskrif-
stofan Traffic Europe
Svenska, varð gjaldþrota.
Íslenskt
flugfélag
starfar á
Ítalíu