Morgunblaðið - 08.10.2004, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2004 13
ÚR VERINU
Frábær skíðafargjöld
Fer›atímabil: 1. janúar - 31. mars.
* Á mann í tvíb‡li m.v. a› gist sé frá sunnudegi til föstudags í Vermont.
Innifali›: Flug, gisting í 1 nótt á The Midtown Hotel í Boston á lei›inni út, gisting á Commodores Inn
í Stowe í 5 nætur, bílaleigubíll í B-flokki í 6 daga m.v. 2 í bíl, flugvallarskattar og fljónustugjöld.
Bandaríkin - Stowe - Vermont Verð frá 84.130*
Fer› fyrir gönguskí›afólk, 25. feb. - 2. mars. Lágmarksflátttaka 20 manns.
* Áa mann í tvíb‡li í 5 nætur.
Innifali›: Flug, gisting í 5 nætur me› morgunver›i, hádegisnesti og kvöldver›i, rútufer›ir til og frá
flugvelli erlendis, flugvallarskattar, fljónustugjöld og íslensk fararstjórn.
* Innifali›: Flug og flugvallarskattar m.v. a›
bóka› sé á www.icelandair.is, ef bóka› er hjá
sölumanni bætist vi› 2.500 kr. fljónustugjald.
Noregur - Lillehammer Verð frá 79.840*
Vikufer›ir. *Brottfarir 16. og 23. janúar. Ver› frá 110.580 kr.
Brottfarir 13., 20. og 27. febrúar og 13. mars. Ver› frá 120.030 kr.
Brottfarir 20. og 27. mars. Ver› frá 128.220 kr.
Innifali›: Flug, gisting í 7 nætur á mann í tvíb‡li me› fullu fæ›i, drykkir (ekki sterkir), 6 daga skí›apassi,
bílaleigubíll í 1 viku í B-flokki, flugvallarskattar og fljónustugjöld.
Sviss - Engelberg Verð frá 110.580*
München Verð frá 42.890*
FLUG
SÉRFERÐIR
Milano Verð frá 48.630*
Genf Verð frá 48.720*
Zürich Verð frá 49.680*
Fer›atímabil: 1. október 2004 - 31. mars 2005
(sí›asta heimkoma 30. apríl 2005).
Lágmarksdvöl: A›faranótt sunnudags.
* Innifali›: Flug, bílaleigubíll í B-flokki í
1 viku á mann m.v. 2 í bíl, flugvallarskattar
og fljónustugjöld.
Frankfurt 46.930*
FLUG OG BÍLL
Osló 57.580*
París 47.080*
Boston 61.630*
Allar uppl‡singar um skí›asta›ina og vefsló›ir
fleirra á www.icelandair.is/skidi
Hafið samband við söluskrifstofur
Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair
í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. kl. 9-17,
laugard. kl. 9-17 og
á sunnudögum kl. 10-16).
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
25
96
4
1
0/
20
04
Hópar leiti› tilbo›a
á groups@icelandair.is
e›a í 5050406
VÍKINGUR AK kom inn til Vopnafjarðar í
gær með 350 tonn af síld sem fékkst í þremur
köstum á um 40 faðma dýpi í Norðfjarðardýpi.
Heimamenn segjast ekki í vafa um að síldin sé
af norsk-íslenskum stofni.
Þegar var hafist handa við að frysta síldina á
Vopnafirði í gær og sagðist Einar Víglundsson,
vinnslustjóri hjá Tanga hf., ekki í vafa að þarna
væri um að ræða síld af norsk-íslenskum
stofni. „Við munum senda sýni úr farminum til
Hafrannsóknastofnunarinnar en ég tel yfir-
gnæfandi líkur á að þetta sé norsk-íslensk síld.
Við kölluðum til gamla síldarsaltendur og þeir
þurftu ekki að líta nema einu sinni á síldina til
að skera úr um að hún væri af þessum norsk-
íslenska stofni og fengu síðan hreisturglampa í
augun. Þessi síld er nokkuð frábrugðin þeirri
íslensku í útliti, mest á bilinu 270 til 300 grömm
en síðan eru feikna breddur innan um, sú
stærsta sem við höfum vigtað var 560 grömm.
Það er gott að vinna þessa síld, það er ekki til í
henni áta,“ sagði Einar.
Eins og komið hefur fram fékk Hoffell SU
norsk-íslenska síld á Glettinganesgrunni fyrir
síðustu helgi, þá fyrstu sem veiðst hefur hér
við land í 37 ár. Tvö önnur skip, Hoffell SU og
Antares VE, voru á sömu slóðum í gær en köst-
uðu ekki vegna brælu. Víkingur heldur aftur til
veiða að lokinni löndun í dag. Um fimmtán tíma
sigling er frá Vopnafirði og á síldarmiðin. Þetta
er þriðja löndun Víkings á vikutíma og er aflinn
samtals um 1.000 tonn.
Jóna Eðvalds SF frá Hornafirði er fyrir
austan land og leitar síldar. Áskell EA er á
Halamiðum út af Vestfjörðum og var kominn
með um 320 tonn af síld í morgun og landar
væntanlega á Hornafirði aðra nótt.
Vítaverður sofandaháttur
Á vef Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði
segir að ef síldin fer að ganga í meira mæli
hingað til Íslands muni það styrkja samnings-
stöðu okkar gífurlega gagnvart Norðmönnum.
„Vonandi fæst eitthvað meira af þessari síld
því töluverður kvóti er enn óveiddur sem kom í
hlut okkar Íslendinga. Við væntum þess líka að
Hafró sendi einhverja í frekari leit að silfri
hafsins. Það væri í raun vítaverður sofanda-
háttur ef stjórnvöld gerðu ekkert í því að skoða
þetta betur, því hagsmunirnir eru miklir ef
síldin fer inn á sitt gamla göngumynstur.“
Víkingur AK landaði 350 tonnum af síld á Vopnafirði
Breddur Norsk-íslenska síldin getur orðið
verulega stór og algengt er að einstaka síldar
séu yfir hálft kíló að þyngd.
Mjög líklega norsk-íslensk síld
Vilja
hrefnu af
válista
JAPANAR segjast vongóðir um að fá
því framgengt á yfirstandandi árs-
fundi CITES, samnings um alþjóða-
verslun með tegundir villtra dýra og
plantna sem eru í útrýmingarhættu,
að aflétt verði banni á viðskipti með
hrefnuafurðir á þeirri forsendu að
hrefnustofnar séu ekki lengur í
hættu. Fundurinn er haldinn í Bang-
kok í Taílandi
Japanar vilja að nokkrir hrefnu-
stofnar verði teknir af lista CITES yf-
ir dýr í útrýmingarhættu og settir á
lista yfir stofna sem ekki séu í yfirvof-
andi hættu. Takist þeim það verður
heimilt að versla með hrefnuafurðir.
Meginhrefnustofnarnir eru þrír.
Einn er í nágrenni Japans, annar um
miðbik Norður-Atlantshafs og sá
þriðji á austurhluta Norður-Atlants-
hafs. Norðmenn og Íslendingar hafa
veitt úr þeim tveimur síðastnefndu.
Verði tillaga Japana samþykkt á
fundinum í Bangkok er talið að þrýst-
ingur myndist á Alþjóða hvalveiðiráð-
ið um að fella niður bann við hrefnu-
veiðum og jafnvel veiðum á öllum
hvalastofnum sem nýta má með sjálf-
bærum hætti.
Til að tillaga Japana fái brautar-
gengi í Bangkok þarf hún samþykki 2⁄3
hluta fundarmanna.
Vilja banna
botntroll á
úthöfunum
SAMTÖK umhverfisverndarsinna
fara fram á það við Sameinuðu þjóð-
irnar að þær stöðvi botntrollsveiðar
á úthöfunum. Samtökin héldu blaða-
mannafund í gær þar sem þau sögðu
að skip frá nokkrum þjóðum stund-
uðu slíkar veiðar, einkum á búrfiski,
meðal annars Íslendingar.
Þetta kom fram á vefsíðunni Reut-
ers AlertNet í gær. Þar var haft eftir
talsmanni samtaka um verndun haf-
djúpanna, the Deep Sea Conservat-
ion Coalition (DSCC), Kelly Rigg, að
við þessar veiðar væru unnin óbæt-
anleg spjöll á stórum svæðum til
þess eins að veiða fáeina fiska, sem
seldust á hæsta verði á beztu veit-
ingahúsum heims. Hún segir að að-
eins 15 mínútna tog geti lagt lífríkið
á hafsbotninum í rúst og eyðilagt
kaldsjávarkóralla sem hafi verið að
vaxa í þúsundir ára.
DSCC, sem er í samfloti með
Grænfriðungum og World Wide
Fund for Nature, segja að þessir
togara stundi aðallega veiðar á búr-
fiski, sem safnist gjarnan saman við
fjallstinda og hæðir á hafsbotninum.
Samtökin nefna til sögunnar þjóð-
ir eins og Rússa, Japani, Nýsjálend-
inga, Íslendinga og Norðmenn, sem
mestu sökudólgana, og segja enn-
fremur að bátar frá Spáni, Portúgal
og Danmörku taki 60% aflans. Þar
sem ekkert eftirlit sé með veiðunum
á úthöfunum sé ómögulegt að meta í
hve miklum mæli þessar veiðar séu
stundaðar.
♦♦♦