Morgunblaðið - 08.10.2004, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2004 23
MINNSTAÐUR
Samsung SGH-X450
Expert, Skútuvogi 2, sími 522 9000 • www.expert.is
Opið virka daga frá kl. 11.00 - 18:30
Laugardaga frá kl 10.00 - 18.00
Sunnudaga frá kl. 13.00 - 17.00
Fallegur
3 banda sími
með hágæða skjá.
!
"#$$
%&'&(&&
)** $
Allt til músaveiða
og fl ugnaveiða
Rafmagnsfl ugnabanar, límborðar,
fl ugnaljós o.fl .
Verslunin er staðsett á Selfossi
Opið mán.-fi m. 9-13,
föstudaga 9-18 og laugardaga 11-14
Gagnheiði 59 • meindyravarnir@meindyravarnir.is
www.meindyravarnir.is • s: 482 3337 & 893 9121
Fyrirtæki - stofnanir - heimili
LANDIÐ SUÐURNES
Laxamýri | Áhugi manna á forn-
leifarannsóknum í Þingeyjarsýslum
hefur farið vaxandi og nýlega var
stofnað Hið þing-
eyska fornleifa-
félag sem hefur
það að markmiði
að auka þekk-
ingu almennings
á sögu sýslunnar.
Formaður hins
nýja félags er
Unnsteinn Inga-
son, ferðaþjón-
ustubóndi á
Narfastöðum í
Reykjadal, sem segir að félagið vilji
meðal annars að framkvæmd sé
meiri fornleifaskráning og skap-
aðar séu styrkari forsendur fyrir
menningartengda ferðaþjónustu í
héraðinu. Það megi til dæmis gera
með útgáfu fræðsluefnis um sögu
svæðisins og uppsetningu marg-
miðlunarefnis sem tengist forn-
leifum.
Forsaga málsins er sú að Unn-
steinn og Hreiðar Karlsson á Húsa-
vík sem ólst upp á Narfastöðum
fóru fyrir nokkrum árum að fara í
gönguferðir í þeim tilgangi að
kanna kennileiti og fornleifar sam-
kvæmt örnefnaskrá og höfðu þeir
báðir mjög gaman af. Þetta varð
svo til þess að þeir fóru að reifa þá
hugmynd að tala við fleiri um þetta
áhugamál sitt og fengu þeir í lið
með sér nokkra einstaklinga og auk
þess Fornleifastofnun Íslands, At-
vinnuþróunarfélag Þingeyinga,
Þekkingarsetur Þingeyinga og
Safnahúsið á Húsavík. Úr þessu
varð svo Hið þingeyska fornleifa-
félag sem ætlar sér að koma ýmsu í
verk í þessum málaflokki á næstu
árum.
Mörg brýn verkefni
Unnsteinn segir að á fundinum
hafi Hið þingeyska fornleifafélag
sett upp verkefnalista sem er til-
laga að forgangsröðun og er þar
snert á ýmsum minjaflokkum. Má
þar fyrst nefna Þingey sem þarf að
verða aðgengileg ferðafólki en þar
eru þingminjar frá þjóðveldisöld. Í
því sambandi talar Unnsteinn um
að mikilvægt sé að vera í samstarfi
við Þingeyjarsveit sem vinnur að
verkefni sem nefnist „Þingeyskur
sagnaþjóðgarður“ og gegnir Þing-
ey þar miklu hlutverki.
Þá nefnir Unnsteinn staði eins og
Þegjandadal sem er heil sveit með
eyðibýlum, auk þess segir hann að
Seljadalur vestan Reykjadals sé
mjög áhugaverður, en þar er mikið
um eyðibýli, sel, fornar leiðir og
voldugt kerfi garðlaga eins og víð-
ar í sýslunni.
Kumlateigar eru nokkrir í hér-
aðinu og voru sumir þeirra rann-
sakaðir nú í sumar og á síðasta ári.
Að sögn Unnsteins er mikilvægt að
halda þeim rannsóknum áfram og
nefnir í því sambandi staði eins og
Litlunúpa í Aðaldal, Saltvík við
Húsavík og Daðastaðaleiti. Þá segir
hann að seltóftir séu sérlega for-
vitnilegar þar sem þær hafi víðast
hvar verið lítið rannsakaðar.
Ljóst er að til þess að koma öllum
þessum verkefnum í framkvæmd
þarf mikla peninga og verður það
eitt af hlutverkum félagsins að út-
vega fjármagn til framkvæmda.
Menn vænta góðs af samvinnu við
Fornleifastofnun og vill Unnsteinn
ásamt félögum sínum opna augu al-
mennings og ferðamanna fyrir því
hvað fornleifarnar eru mikilvægar
til þess að þekkja sögu sinnar eigin
þjóðar.
Hið þingeyska fornleifafélag vill auka þekkingu á sögunni
Minjar í Þingey þurfa að
vera fólki aðgengilegar
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Rannsaka kuml Tveir starfsmenn Fornleifastofnunar Íslands eru hér að störfum í kumlateignum á Litlunúpum í
Aðaldal, en það er einn þeirra fjölmörgu staða sem Hið þingeyska fornleifafélag vill láta rannsaka nánar.
Unnsteinn
Ingason
Grindavík | Opnuð verður átthaga-
deild á Bókasafni Grindavíkur
næstkomandi sunnudag en þá er
haldið upp á aldarafmæli safnsins.
Í upphafi verður mest áhersla lögð
á að koma upp stafrænu ljós-
myndasafni, að sögn Margrétar R.
Gísladóttur forstöðumanns safns-
ins.
Á þessu ári eru liðin 100 ár síð-
an lestrarfélagið Mímir var stofn-
að í Grindavíkurhreppi eins og
sveitarfélagið hét þá. Þessara
merku tímamóta er minnst með
ýmsum hætti en næstkomandi
sunnudag, 10. október, býður
bókasafnið öllum Grindvíkingum
til kaffisamsætis í Saltfisksetri Ís-
lands. Landsþekktir rithöfundar
koma fram. Þá verður boðið upp á
tónlist og söng með veitingunum.
„Lestrarfélagið Mímir sem er
forveri bókasafnsins starfaði ekki
samfleytt frá stofnun, það dottaði
af og til í nokkur ár, oft vegna að-
stöðuleysis. Við fluttum 1992 í nú-
verandi húsnæði hjá bæjarskrif-
stofunum en nú er það orðið of
lítið og þörf á að horfa til breyt-
inga með aðstöðuna. Ég vil hvetja
fólk til að mæta á sunnudaginn og
njóta þeirrar dagskrár sem í boði
er og gleðjast með okkur á þessum
tímamótum,“ sagði Margrét R.
Gísladóttir, forstöðumaður.
Skanna inn gamlar
ljósmyndir
Um leið og haldið er upp á af-
mælið er opnuð átthagadeild á
bókasafninu. Þeirri deild er ætlað
að halda utan um og varðveita allt
útgefið efni sem tengist Grindavík.
„Eftir því sem deildinni vex fiskur
um hrygg mun hún vonandi veita
allar upplýsingar er varða Grinda-
vík.
Til að byrja með verður áhersl-
an mest á að koma upp ljósmynda-
safni á vefnum. Það verður á und-
irsíðu á vef bókasafnsins. Það
gerum við með samvinnu við fé-
lagsmiðstöðina Þrumuna en ung-
lingarnir ætla að aðstoða okkur við
að skanna inn myndir sem verður
örugglega forvitnilegt að skoða
þegar fram líða stundir,“ sagði
Margrét.
Bókasafn Grindavíkur fimmtugt
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Afmæli Magrét R. Gísladóttir, forstöðumaður í Bókasafni Grindavíkur.
Átthagadeild
opnuð á afmælinu