Morgunblaðið - 08.10.2004, Síða 31

Morgunblaðið - 08.10.2004, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2004 31 UMRÆÐAN Stykkishólmsbók Stórglæsilegt ritverk sem vakið hefur mikla athygli og fengið afar lofsamlega dóma gagnrýnenda: „Aðeins eitt orð á við til að lýsa þessu verki: Stórvirki.“ Mbl. 23. des. 2003, Jón Þ. Þór. Sölumenn: Þorbjörg ☎ 581 2727, Sigríður ☎ 553 0403, Þórhildur ☎ 438 1147. Einnig má panta bókina á netinu: bragijos@hotmail.com Tilvalin tækifærisgjöf! MORGUNBLAÐIÐ hefur lagt sig í líma að vera víðsýnt, frjálslynt dag- blað og tekst það oft. Stundum hend- ir þó að blaðið fellur í pytt pólitískrar þröng- sýni og bókstafstrúar. Slíkt gerðist í leiðara 1. okt. sl. þar sem fjallað er um fyrirkomulag við val á hæstaréttardóm- ara. Blaðið andmælir gagnrýni fræðimanna á skipun ráðherra í dóminn á þann hátt, að ætla má, að hinir lög- fróðustu menn fari með fleipur eitt og fásinnu. Blaðið mótmælir, sem röngu, því sjónarmiði Sigurðar Líndals fyrrverandi pró- fessors, að Hæstiréttur geti raðað umsækjendum eftir því sem hann telur að sé „réttinum mestur styrk- ur“. Blaðið vísar til þess að í lögum sé „hvergi að finna heimild til þess- arar forgangsröðunar“ og bætir við: „þótt dómarar og prófessorar séu miklir lögvísindamenn hafa þeir enga heimild til að lesa úr lögum, sem Alþingi hefur sett, eitthvað sem þar er ekki að finna,“ það sé eins og aðferðir KGB á tímum Sovét „að túlka lög á þann hátt að bókahnífur á skrifborði væri ólögleg vopnaeign“ og „að röksemdafærsla og mála- tilbúnaður prófessoranna (þ.e. Eiríks Tómassonar, Stefáns Más Stefánssonar og Sigurðar Líndals) gangi ekki upp.“ Ekki ætla ég að blanda mér í þessa þrætubók, að öðru leyti en því, að mér virðist KGB-tilvitnunin frekar eiga rætur í orðhengilshætti blaðsins sjálfs en lögskýringum prófessoranna þriggja, eins og nú skal vikið að. Við skipun dómara í Hæstarétt liggur mikið við að vanda valið. Þar kemur umsögn Hæstaréttar til, að sem hæfastur einstaklingur verði valinn og að jafnræðis sé gætt milli kynja. Ráðherra ræður vali, ábyrgð- in er hans að skapa traust. Vissulega eru til dugmiklir afburðalögmenn eða sérfræðingar á þröngu sviði sem gagnast mega réttinum. Það er hins vegar ekki nóg ef þá skortir eðlis- greind til þess að geta verið góðir dómarar og óumdeildir eins og Njáll á Bergþórshvoli og Þorgeir Ljós- vetningagoði, svo ég nefni menn úr hæfilegri fjarlægð, sem nutu trausts, bæði samherja og andstæð- inga. Að skapa traust um Hæstarétt er sennilega eitt mikilvægasta verk- efnið sem samfélagið stendur frammi fyrir á næstu misserum. Traust til dómsins er sannfæring fólksins fyrir því að hann sé óhlut- drægur og sjálfstæður. Aðgerð ráð- herra, að skipa jafn umdeildan mann og Jón Steinar Gunnlaugsson, er lík- lega ekki til þess fallin að skapa það traust, þrátt fyrir það að hann sé e.t.v. afburðamaður í lögum. Morg- unblaðið telur að móta þurfi aðferð við val á dómurum sem sæmileg sátt ríki um, það séu sam- eiginlegir hagsmunir þjóðarinnar að það tak- ist. Undir það má taka, en sú aðferð sem nú er viðhöfð getur vel dugað ef menn nálgast við- fangsefnið af víðsýni og ábyrgð í stað pólitískr- ar hentistefnu. Allt mannlegt líf er umgirt reglum. Sumar eru lögfræðilegar og byggjast á lögum og samningum. Aðrar eru óskráðar. Siðferðis- reglur fjalla um það sem er gott og vont, hvað manni ber að gera eða ber ekki að gera. Markmið allra reglna er að auka væntingar í mann- legum samskiptum og skapa traust. Siðferði er á nokkurn hátt sett yfir aðrar reglur um mannleg samskipti. Siðferði gerir ráð fyrir ábyrgð, sem gengur lengra en hin lagalega. Með lögum um Hæstarétt er ráðherra veitt ábyrgð, bæði lagaleg og sið- ferðileg, til að skipa dómara. Því fylgir frelsi til að velja og gerir um leið kröfu um að óæskilegir atburðir verði ekki. Lögin um Hæstarétt fela í sér skýr ákvæði um að dómurinn eigi að fjalla um hæfi og hæfni um- sækjenda. Ráðherrann á að styðjast við þessa „bestu manna yfirsýn“ í vali sínu, það er hans ábyrgð. Að þessu sinni og reyndar síðast líka, velja ráðherrar sín rök, að því er virðist, eins og „afburðalögmenn“ KGB forðum. Það er auðvitað full- komlega ábyrgðarlaust og til þess fallið að slíta sundur friðinn. Að slíta sundur friðinn? Skúli Thoroddsen fjallar um Morgunblaðið og skipan hæstaréttardómara ’Að skapa traust umHæstarétt er sennilega eitt mikilvægasta verk- efnið sem samfélagið stendur frammi fyrir á næstu misserum.‘ Skúli Thoroddsen Höfundur er lögfræðingur. NÚNA stendur yfir spænsk menningarvika í Kópavogi. Með- al atburða hennar er sýning í Gerðarsafni á úrvali spænskrar nútímalistar, unnu á pappír. Þetta er einstaklega vönduð, yfirgripsmikil og fjölbreytt sýn- ing og er mikill fengur fyrir Ís- lendinga að fá hana hingað til lands. Sérstök ástæða er til að vekja athygli á ritgerð Guðbergs Bergssonar rithöfundar í sýn- ingaskrá sem er að mínu mati eitt það allra besta sem hefur verið skrifað á íslensku um myndlist. Auk þess að lýsa ein- staklega vel þeim straumum sem ríktu í hinu sérkennilega andrúmslofti á Spáni eftir borg- arastyrjöldina nær umfjöllun Guðbergs mun lengra til skiln- ings á óhlutbundinni list og í textanum er hvergi orði ofaukið. Á menningarhátíðinni verða einnig sýndir dansar og leikin tónlist og allt af listamönnum á heimsmælikvarða. Það er ástæða til að þakka þegar vel er gert. Gunnar I. Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs, sem átti hugmyndina að menningarhátíðinni, Guð- björg Kristjánsdóttir, forstöðu- maður Gerðarsafns, svo og Guð- bergur Bergsson og Luis Revenga sem settu upp þessa myndlistarsýningu hafa unnið þrekvirki. Hafið þökk fyrir. Ágúst Einarsson Kópavogur og Spánn Höfundur er prófessor í Háskóla Íslands. Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.