Morgunblaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DANSVERK Merce Cunn- ingham, Split Sides, er sýnt nú um stundir í Barbicanhöllinni í Lundúnum. Sýningar hófust í fyrradag og lýkur á morgun. Sem fyrr eru það Radiohead og Sigur Rós sem sjá um tónlistina. Í spjalli við breska blaðið Indep- endent rifjar hinn áttatíu og fimm ára gamli Cunningham m.a. upp viðkynningu sína við Sigur Rós. „Þeir litu út eins og mennta- skólapiltar,“ segir hann. „En það virtist vera mikil vinátta í gangi á milli hljómsveitanna.“ Þess má geta að það voru Radiohead sem þrýstu á að fá að taka Sigur Rós með sér í þetta verkefni en Sigur Rós hitaði upp fyrir sveitina í kjölfar plötunnar Kid A. Nýútkomin er þá fyrsta plata Sigur Rósar, Von, er sveitin var tríó, skipuð þeim og Jóni Þór Birgissyni, Georg Holm og Ágústi Ævari Gunnarssyni. Kjartan Sveinsson, sem þá var ekki form- lega genginn í sveitina, lagði þar einnig hönd á plóginn. Tónlist | Sigur Rós Split Sides í Barbican ÞESSI um margt sér- stæða – en að mestum hluta ágæta plata – er runnin unda rifjum söngva- skáldsins Geirs Harðarsonar frá Akranesi. Bærinn sá hefur löngum verið giska mikill tónlistarbær og leggur einn sonur hans í tónlistarlegu tilliti, Orri Harð- arson (ekki þó skyldur Geir), lóð sín á vogarskálarnar. Tónlistin er mestan part einföld söngvaskáldatónlist en er lyft smekklega upp af aðstoðarmönnum Geirs og munar þar mest um trym- bilinn Birgi Baldursson (S.H. draum- ur og Bless t.d.) og Orra sjálfan. Lög- in eru þannig skreytt með flautum, rafmagnsgíturum og oft og tíðum glúrnum útsetningum. Geir sjálfur er ekki góður söngvari og ekki lipur textasmiður en það er einhver súrrealísk ára í kringum plötuna sem heldur henni saman á einhvern furðulegan hátt og skilar henni í höfn. Geir fer um margt und- arlegar leiðir í listsköpun sinni og það heldur eyrunum a.m.k. sperrt- um. Stundum hefur maður á tilfinning- unni að Geir hafi aðallega langað til að gefa út plötu plötunnar vegna því að sum lögin eru óttalega veikburða og margir textar óttaleg hrákasmíði, ef ekki bara hreinasta bull. Í „Buff- aló“ má t.d. heyra þetta ævintýralega rím „Ég var kaldur á eyrum og kinn/ veðurbarinn af norðanvind.“ Í óðnum um skröltormana segir þá: „Hvað er til ráða gegn þvílíkum her/Ein var sú lausnin er loks birtist mér/Ég fór út á svalir og sannfærði þá/að þeir myndu ekkert, hér ætilegt fá“. Það eru stórskrítin lög, og um leið stórskemmtileg lög, eins og „Buf- faló“, „Skröltormar“ og „Aha“ sem valda því að maður fyrirgefur Geir flest. Einlæg og blátt áfram innileg- heit styrkja plötuna og valda því að maður „kann vel við hana“, umfram allt. Sérstaklega vil ég tiltaka „Buff- aló“, einhvers konar losaraleg, ís- lensk útgáfa af Neil Young og Crazy Horse. Lagið er sáraeinfalt en ómót- stæðilegt. Það er óborganlegt þegar það heyrist lágt í Geir sjálfum, eftir annað viðlagið: „Orri? Hvernig væri að taka kórusinn aft- ur … Orri … Buffalló … “. Og síðan gera þeir nákvæmlega það. Algjör snilld. Það sem spillir plötunni helst eru tvö þunglamaleg lög í eins konar þjóðlagastíl þar sem Geir horfir aftur til „gullaldar“ íslensks þjóðlífs. Þessi lög dragnast að því er virðist enda- laust áfram og eru ekki skemmtileg. Söngvaskáldagírinn, hvort heldur hann er í háum eða lágum, hentar Geir best en skrölt hans um epískar þjóðlagastemmur er svo gott sem skelfilegt. Landnám er sæmilegasti frum- burður þar sem galgopalegur sjarm- inn ríður baggamuninn og heldur honum þannig réttum megin við lín- una. Skröltorm- ar skrölta Á fyrstu plötu Geirs Harðarsonar eru „stórskrítin lög og um leið stór- skemmtileg lög“. TÓNLIST Íslenskar plötur Lög og textar eftir Geir Harðarson. Hörð- ur Jónsson á tvo texta. Flytjendur á plöt- unni eru Geir, Orri Harðarson, Birgir Bald- ursson, S. Ragnar Skúlason, Heiðrún Hámundardóttir og „vinir & kunningjar“. Upptökustjórn, hljóðritun og -blöndun var í höndum Orra Harðarsonar. Buffalo gefur út en Zonet dreifir. Geir Harðarson – Landnám  Arnar Eggert Thoroddsen ROKKSVEITIN Maus mun gefa út tvöfalda safnplötu hinn 18. október næstkomandi. Hin eiginlega safnplata ber heitið Tónlyst 1994–2004 og henni fylgir svo auka- plata, Lystaukar 1993–2004 og inniheldur hún áður óút- gefin lög. Fyrri platan innheldur flest þau laga Maus sem hafa farið í útvarpsspilun og koma þau af þeim fimm breiðskífum sem sveitin hefur gefið út til þessa. Auk þess er þar að finna þrjú lög sem ekki er að finna á breið- skífum Maus og enn fremur eitt nýtt lag, sem ber titill- inn „Over me, Under Me“. Lystaukar 1993–2004 inni- heldur m.a. prufuupptökur af lögum sem komust ekki á plötur á sínum tíma. Einnig er þar að finna lagið „Crawl“, fyrsta lagið sem Maus tók upp árið 1993 og tón- leikaupptökur, m.a. frá Músíktilraunum sem Maus vann vorið 1994. Fjórar endurhljóðblandanir eru líka á plöt- unni eftir Quarashi, gusgus, Dáðadrengi og Delphi og einni eitt tökulag, „Bás 12“, eftir Þey. Tíu ár af Mausi Hljómsveitina skipa Birgir Örn Steinarsson, Eggert Gíslason, Daníel Þorsteinsson og Páll Ragnar Pálsson. Tónlist | Maus með safnplötu www.borgarbio.is Miðasala opnar kl. 15.30 Mögnuð spennumynd með Denzel Washington í fantaformi EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS COLLATERAL TOM CRUSE JAMIE FOXX Hörkuspennumynd frá Michel Mann leiksjóra Heat Þetta hófst sem hvert annað kvöld Fór beint á toppinn í USA! Sýnd kl. 5.40.Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. NOTEBOOK VINCE VAUGHN BEN STILLER DodgeBall Óvæntasti grínsmellur ársins Fór beint á toppinn í USA Þú missir þig af hlátri... punginn á þér!  KVIKMYNDIR.COM  H.L. MBL Sýnd kl. 6 og 10.Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Kr. 450  Mbl.  Ó.Ö.H. DV Snargeggjuð gamanmynd frá hinum steikta Scary Movie hóp Klárlega fyndnasta mynd ársins! VINCE VAUGHN BEN STILLER DodgeBall Óvæntasti grínsmellur ársins Fór beint á toppinn í USA Þú missir þig af hlátri... punginn á þér!  Ó.Ö.H. DV Klárlega fyndnasta mynd ársins! VINCE VAUGHN BEN STILLER Mjáumst í bíó! kl. 5.30, 8 og 10.15. VINCE VAUGHN BEN STILLER Yfir 31.000 gestir! DENZEL WASHINGTON Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. Snargeggjuð gamanmynd frá hinum steikta Scary Movie hóp  Ó.Ö.H. DV Sýnd kl. 8 og 11. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. „Ég anda, ég sef, ég míg ... Tónlist“ Bubbi Morthens Til heljar og til baka með atómbombunni Bubba Morthens „Ég anda, ég sef, ég míg ... Tónlist“ Bubbi Morthens Til heljar og til baka með atómbombunni Bubba Morthens Rauða ljónið Danshúsið Eiríkstorgi Fjörugur dansleikur verður haldinn í danshúsinu Eiríkstorgi. Hljómsveit Hilmars Sverrissonar leikur frá kl 22.00. ✿✿✿ Aðgangur ókeypis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.