Morgunblaðið - 18.12.2004, Side 1

Morgunblaðið - 18.12.2004, Side 1
Handunnir skartgripir Finnur út hvaða steinn á við hvern og einn | Daglegt líf STOFNAÐ 1913 345. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Jólaböll kl. 14 og 16.OPI‹ frá 10 Jólaball kl. 2 og 4 til 10 Lesbók | Baróninn  Sexið selur ekki lengur  Bækur  Með húsasnotru í kjölfar Karlsefnis  Krossgáta  Myndagáta Börn | Alls konar jól  Glúrnar gátur Keðjusagan Íþróttir | Bjarni til Plymouth Viggó fylgist með Tékkum  Valur vann ÍR Lesbók, Börn og Íþróttir í dag 30 ára fót- boltabann Belfast. AFP. NORÐUR-írskum knattspyrnu- manni hefur verið bannað að koma nálægt fótbolta í 30 ár fyrir að skalla dómara. Hefur þessi strangi dómur vakið athygli og vilja marg- ir, að hann verði að almennu for- dæmi. Atburðurinn átti sér stað eftir að dómarinn, Jim Edwards, hafði slit- ið leik tveggja áhugamannafélaga vegna slagsmála, sem höfðu brotist út á milli liðanna. Er hann var að koma út af skrifstofu sinni, bar þar að Victor Sproule, leikmann í öðru liðinu, og skallaði hann Edwards af svo miklum krafti, að hann kast- aðist þvert yfir skrifstofuna. Viðkomandi knattspyrnu- samband hefur nú dæmt Sproule og bannað honum að koma nálægt fótbolta í þrjátíu ár. Hefur það vakið mikla hrifningu hjá norður- írsku dómarasamtökunum og rit- ari þeirra, Brian Marshall, hefur lagt til, að sama harkan verði tekin upp í atvinnumannaknattspyrn- unni. UNDIR miðnætti í gær náðust í Lundúnum samningar um fjármögn- un á yfirtökutilboði sem Baugur Group, Tom Hunter, Burðarás, Pálmi Haraldsson, Kevin Stanford, Bank of Scotland og KB banki hafa gert í breska stórfyrirtækið Big Food Group. Kaupverð félagsins er 670 milljónir punda, eða tæplega 82 millj- arðar króna, og í þeirri upphæð er innifalinn kostnaður vegna yfirtök- unnar og endurfjármögnun skulda. Jafnframt þurfti að semja um rekstrarfjármögnun upp á 250 millj- ónir punda eða um 30 milljarða króna. „Það er stórkostlegt að þetta skuli loks vera í höfn,“ sögðu þreyttir en glaðir Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson í samtali við Morg- unblaðið, þegar ljóst var undir mið- nætti í gærkvöld að samningarnir um fjármögnun samningsins voru í höfn. Heildarfjármögnun sem fjárfest- arnir þurftu að semja um vegna þess- ara kaupa eru 920 milljónir punda, eða rúmir 112 milljarðar króna. Fjármögnunin kemur frá Bank of Scotland, KB banka og Landsbanka. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir af þessu tilefni í samtali við Morgunblaðið í dag: „Þetta eru merkileg tímamót í sögu fyrirtækis okkar og færa Baug Group raunar upp í úrvalsdeildina í Bretlandi.“ Hann segir Big Food Group afar stórt og öflugt fyrirtæki, sem velti liðlega 5 milljörðum breskra punda á ári, eða um 610 milljörðum króna. Starfsmenn séu um 40 þúsund talsins og starfsstöðvar yfir 990. Jón Ásgeir segir að nú taki við 60 daga biðtími, þannig að upp úr miðjum febrúar muni nýir eigendur Big Food Group taka við félaginu og hefja rekstur þess. Fyrir liggur að nýir eigendur fé- lagsins ætla að skipta félaginu upp í sjálfstæðar einingar, en þannig var það rekið allt til ársins 2000. Þannig er það til skoðunar, að sögn Jóns Ásgeirs að selja Woodward- keðjuna, en reka Iceland og Booker sem sjálfstæð félög og sömuleiðis sérstakt félag um fasteignir í eigu fé- lagsins. Pálmi Haraldsson, sem verður eig- andi 8,9% hlutar í Big Food Group, er stærsti fjárfestirinn í Iceland, eins fé- laga Big Food Group, á móti Baugi, hvor um sig með liðlega 30% hlut. Pálmi verður stjórnarformaður Ice- land og hefur hann ákveðið að skipta út stjórnendum í lykilstöðum hjá fé- laginu. Hann hefur ákveðið að ráða í starf forstjóra Iceland, stofnanda fé- lagsins, Malcolm Walker, sem rak fyrirtækið með hagnaði í 29 ár. Ice- land rekur 754 verslanir. Fjármögnun á yfirtökunni á Big Food Group í Bretlandi í höfn Heildarfjármögnunin nemur 112 milljörðum Baugur verður stærsti hluthafinn í Big Food Group með 43% hlut  Baugur/26 JÓLIN nálgast óðfluga og ekki seinna vænna að huga að jólagjöfunum. Kaupmenn gera fólki auðveldara fyrir með því að lengja afgreiðslutímann og fram að jólum verða verslanir mjög víða opnar til kl. 22 öll kvöld. Morgunblaðið/Golli Jólin nálgast TONY Blair, forsætisráðherra Bret- lands, sagði í gær, að ákvörðunin um að taka upp beinar viðræður við Tyrki um aðild að Evrópusambandinu sýndi, að þeir, sem óttuðust „árekstur tveggja menningarheima“, hefðu rangt fyrir sér. Margir evrópskir stjórnmálaleið- togar fögnuðu því, að formlegar við- ræður við Tyrki hefðu verið ákveðnar en aðrir bentu á, að enn væru mörg ljón í veginum fyrir fullri aðild þeirra. Jacques Chirac, forseti Frakklands, sem hefur verið mjög tvístígandi í málinu, spáði því, að Tyrkir myndu á endanum fá fulla aðild en það gæti tekið áratug eða meira. Jan Peter Balkenende, forsætis- ráðherra Hollands, sagði, að verið væri að skrifa nýjan kafla í sögunni og undir það tók Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, sem sagði, að með málamiðlun um Kýpur ætti ekk- ert að standa í vegi fyrir viðræðum. Wolfgang Schüssel, kanslari Aust- urríkis, sem hefur miklar efasemdir um ágæti þess að fá Tyrki inn í ESB, sagði í gær, að þegar þar að kæmi yrði aðild þeirra borin undir þjóðarat- kvæði í Austurríki. Tony Blair sagði, að kristnir menn og múslímar gætu unnið saman og með aðild Tyrkja yrði sáð fræjum lýð- ræðis í öllum Mið-Austurlöndum. Upphaf nýs kafla í sögunni Viðræðum við Tyrki fagnað sem upphafi nýs tíma í samskiptum kristinna manna og múslíma Brussel. AFP.  Vonarljós/28 ♦♦♦ Írakar í kosninga- ham Reuters ALMENNAR þingkosningar verða í lok næsta mánaðar í Írak og munu þá 7.200 frambjóðendur 107 flokka eða lista berjast um þingsætin 275. Hér eru kommúnistar á kosninga- fundi í Bagdad en þeir eru elsti stjórnmálaflokkurinn í Írak. Það er þó ekki vinstri eða hægri, sem skipta máli í svipinn, heldur skiptist fólk að- allega í flokka eftir trúmálum og þjóðerni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.