Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 2

Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FAGNA VIÐRÆÐUM Þeirri ákvörðun leiðtogafundar Evrópusambandsins að taka upp formlegar viðræður við Tyrki um að- ild að sambandinu var víða fagnað í Evrópu í gær. Sögðu sumir, að um væri að ræða söguleg kaflaskipti, sem myndu bæta samskipti kristinna manna og múslíma og sá fræjum lýð- ræðis í öllum Mið-Austurlöndum. Aðrir bentu á, að enn væru mörg ljón í veginum og Jacques Chirac, forseti Frakklands, sagði, að fyrir utan að viðurkenna Kýpurstjórn, yrðu Tyrk- ir að gangast við fjöldamorðunum á Armenum í Tyrklandi á dögum fyrri heimsstyrjaldar. Brot Fischers fyrnt Hafi Bobby Fischer brotið gegn al- þjóðlegu viðskiptabanni Sameinuðu þjóðanna á Júgóslavíu 1992 með því að taka þátt í alþjóðlegu skákmóti, þá myndi það vera talið fyrnt að íslensk- um lögum, að sögn Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra. Engin viðbrögð höfðu borist síðdegis í gær frá Bandaríkjunum við ákvörðun ís- lenskra stjórnvalda um að veita Fischer dvalarleyfi hér. Verk Sólons til sölu Gallerí Fold hefur nú til sölu tvö myndverk eftir Sölva Helgason, sem þjóðþekktur varð undir nafninu Sól- on Íslandus. Talið er að verkin séu frá því um 1860. Verkin koma úr einkaeigu, en afar sjaldgæft er að verk eftir Sölva séu boðin á markaði. Vaxtartækifæri Íslensku fjármálakerfi hefur miðað aftur á bak á þessu ári, að mati Bjarna Ármannssonar, forstjóra Ís- landsbanka. Hann segir vaxtar- tækifæri Íslandsbanka hér liggja einkum í íbúðalánum og samþætt- ingu banka og tryggingaafurða. Þá séu tækifæri í frekari hagræðingu fjármálakerfisins. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Bréf 58 Viðskipti 20/21 Messur 61 Erlent 28/30 Kirkjustarf 60/61 Höfuðborgin 33 Minningar 62/69 Akureyri 34 Myndasögur 74 Suðurnes 34 Staður og stund 76 Árborg 35 Dagbók 74/77 Landið 34 Leikhús 78 Listir 36/39 Fólk 80/85 Neytendur 40/41 Bíó 82/85 Ferðalög 37 Ljósvakamiðlar 86 Forystugrein42/43 Staksteinar 87 Umræðan 46/59 Veður 87 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " #       $         %&' ( )***                    Á FUNDI með starfsfólki Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands, sem haldinn var í gær, var skýrt frá ráðningu dr. Guðfinnu S. Bjarnadótt- ur, núverandi rektors Háskólans í Reykjavík, í starf rektors sameinaðs skóla, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu. Þar segir að Stefanía K. Karlsdóttir, rektor Tækniháskóla Ís- lands, hafi ekki sóst eftir rektorsstöðu við hinn sameinaða skóla. Hún hyggst ljúka doktorsnámi sínu á næstu miss- erum og sinna stjórnar- og nefndar- störfum auk starfi sínu sem rektor Tækniháskóla Ís- lands fram á vor, að því er segir í til- kynningunni. Þar kemur fram að á fundin- um hafi jafnframt verið kynnt áform um stofnun tækni- og verkfræði- deildar þar sem meðal annars verði bryddað upp á þeim nýjungum hér á landi að kenna sérstaklega rekstrarverkfræði, fjármálaverk- fræði, hugbúnaðarverkfræði og heil- brigðisverkfræði. Einnig var fyrirhuguð stofnun kennslufræðideildar kynnt, en auk hefðbundinnar kennaramenntunar verður sérstök áhersla lögð á að út- skrifa kennara með góðan undirbún- ing til kennslu í stærðfræði og raun- greinum auk kennslu á íþrótta- og lýðheilsusviði. Við skólann verða einnig viðskiptadeild og lagadeild starfræktar, að því er segir í tilkynn- ingunni. Guðfinna rektor samein- aðs háskóla HR og TÍ Fyrirhuguð stofnun kennslufræðideildar kynnt Guðfinna S. Bjarnadóttir HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær tvo menn í 15 mánaða fangelsi fyrir smygl á rúmlega 300 g af kókaíni frá Hollandi í byrjun des- ember í fyrra. Að mati dómsins þótti sannað að fíkniefnið hafi verið ætlað að verulegu leyti til sölu hér á landi í hagnaðarskyni. Neituðu ákærðu þeim ásökunum. Í matsgerð sérfræðinga Háskóla Íslands kom fram að kókaínið var mjög hreint en það hafði verið falið í endaþarmi mannanna við komuna til lands og var með stærstu fíkniefna- málum sinnar tegundar. Skilorðsbinding refsingarinnar þótti ekki koma til álita. Þeim var gert að sæta upptöku á 324,94 grömmum af kókaíni sem lög- regla lagði hald á eftir handtöku þeirra við komuna frá Amsterdam. Einnig var gerður upptækur varn- ingur ætlaður til iðkunar hnefaleika en annar maðurinn framvísaði reikn- ingi á rauðu hliði hjá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli þ.e. lægri reikn- ingi af tveimur og var sakfelldur fyrir að ætla sér að greiða aðflutningsgjöld af einungis hluta vörunnar. Var hann þannig talinn hafa ætlað að smygla til landsins 45 pörum af hnefaleikahönskum og þremur höfuð- hlífum alls að verðmæti 961,5 evrur. Mönnunum var auk refsingar gert að borga allan kostnað sakarinnar, þar með talin 250 þúsund kr. mál- svarnarlaun hvors verjenda sinna. Málið dæmdi Finnbogi Alexand- ersson héraðsdómari. Verjendur voru hæstaréttarlögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og Hilmar Ingi- mundarson. Sækjandi var Eyjólfur Ágúst Kristinsson fulltrúi sýslu- mannsins á Keflavíkurflugvelli. 15 mánaða fangelsi fyrir kókaínsmygl VEL fór á með þeim Nínu Dögg Filippusdóttur, Gísla Erni Garð- arssyni og bresku leikkonunni Jo- önnu Lumley að lokinni sýningu Vesturports á Rómeó og Júlíu í Playhouse-leikhúsinu í Lundúnum í fyrrakvöld. Lumley er fyrsta stór- stirnið úr bresku leikhús- og kvik- myndalífi sem fer með lítið hlut- verk í sýningunni – sem felst í því að fara með lokaorð verksins – en fleiri sigla í kjölfarið á næstu dög- um. Þannig steig Jenny Seagrove á svið með íslenska leikhópnum í gærkvöldi og í kvöld er röðin komin að sjálfri Vanessu Redgrave. Að sögn Gottskálks Dags Sigurð- arsonar framleiðanda og leikara í sýningunni féll Lumley mjög vel inn í hópinn. „Hún horfði á fyrri hlutann en eftir hlé kom hún á bak- við og var með okkur. Joanna var mjög ánægð með þetta og skemmti sér vel – var bara ein af hópnum. Þetta var líka mjög gaman fyrir okkur hin og gaf okkur aukinn kraft. Joanna er alveg yndisleg manneskja.“ Gottskálk segir að þátttaka Lumley hafi vakið talsverða athygli ytra en í fyrradag komu bæði menn frá bresku blöðunum og ríkissjón- varpinu, BBC, og ræddu við hana. „Því er ekki að neita að við fáum fína kynningu út á þetta,“ segir Gottskálk./85 Lumley féll vel inn í hópinn Ljósmynd/Daniel Sambraus KRÖFUR í þrotabú Véla og þjón- ustu nema allt að 1,3 milljörðum króna og er stærsti kröfuhafinn KB banki. Fyrsti skiptafundur var haldinn í gær og er hugsanlegt að næsti skiptafundur verði í febrúar nk. Almennar kröfur í þrotabúið nema tæpum milljarði. Forgangs- kröfur eru þó ekki nema 22 millj- ónir, einkum vegna þess að engar launakröfur eru gerðar þar sem starfsmenn fluttu sig ásamt öllum umboðum hins gjaldþrota félags yf- ir í nýtt félag, Vélaborg ehf. Lýst er 176 kröfum í búið og mögulegt að fleiri bætist við er- lendis frá. 1,3 milljarða kröfur í þrotabú NÝR geisladiskur Stuðmanna kem- ur út samhliða bíómyndinni Í takt við tímann, sem frumsýnd verður annan í jólum. Til að gefa lands- mönnum forsmekk að músíkinni í myndinni komu í gærkvöldi út á geisladiski í takmörkuðu upplagi 17 valin Stuðmannalög af þeim 30, sem eru í myndinni. Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon segir hér um að ræða eitt þúsund eintök sem ákveðið var að gefa út fyrir jólin. „Þetta er smjörþefur fyrir þá allra óþolin- móðustu og væntingafyllstu,“ segir Jakob. Smjörþefur fyrir þá óþolinmóðustu Morgunblaðið/Golli Höskuldur í Skífunni réttir Ragn- hildi Gísladóttur fyrsta eintakið. SÁTTAFUNDI í kjaradeilu samn- inganefnda Félags leikskólakenn- ara og sveitarfélaganna sem hófst fyrir hádegi í gær var frestað í gærkvöldi til næsta miðvikudags. Haldnir hafa verið langir fundir hjá sáttasemjara frá því sl. mánu- dag og hafa viðsemjendur farið ít- arlega yfir málið en Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari segir þó lítið hægt að segja um efni við- ræðnanna enn sem komið er. „Menn eru að reyna að komast áfram í gegnum þetta og þurfa að skoða málin í sínum hópi.“ Sáttafundi frestað
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.