Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Það verður æ erfiðara fyrir skattmann að fylgja hjörðinni eftir.
Senn líður að því aðnýtt ár gangi í garðmeð öllum sínum
vonum og væntingum. Eitt
af því sem þorri lands-
manna getur verið viss um
að geta vænst um áramótin
eru ýmsar gjaldhækkanir
hins opinbera, ríkis og
sveitarfélaga. Ekki gefst
færi á því að gera tæmandi
yfirlit yfir þær skatta- og
gjaldhækkanir sem taka
gildi um áramótin hér en
stiklað verður á stóru og
farið lauslega yfir helstu
gjaldhækkanir m.a. hækk-
un útsvars, bifreiðagjalda,
sorphirðugjalda og fast-
eignagjalda.
Útsvarshámark fullnýtt
Samkvæmt fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 2005,
sem var samþykkt í fyrrinótt, kem-
ur fram að útsvar í Reykjavík
hækkar úr 12,7% í 13,03%. Verður
útsvarshámarkið þar með fullnýtt.
Áætlað er að breytingin færi
borgarsjóði 740 milljónir króna á
næsta ári. Jafnframt var ákveðið
að fasteignaskattur yrði hækkaður
til samræmis við nágrannasveitar-
félög í 0,345% af fasteignamati. Sú
breyting mun koma til með að færa
borgarsjóði 130 milljónir króna.
Vert er þó að benda á að í þessum
tölum hefur ekki verið tekið tillit til
hækkunar afsláttar af fasteigna-
skatti til lífeyrisþega. Í viðtali við
Morgunblaðið í nóvember útskýrði
Árni Þór Sigurðsson, forseti borg-
arstjórnar, að verið væri með
þessu að auka svigrúm borgarinn-
ar til þess annars vegar að grynnka
á skuldum borgarinnar og hins
vegar til þess að mæta kjarasamn-
ingum.
Auk ofangreindra gjalda í
Reykjavík hefur verið samþykkt
að sorphirðugjald hækki sömuleið-
is um 30% á næsta ári. Sú hækkun
er ætluð til að samsvara raun-
kostnaði við söfnun á heimilisúr-
gangi. Gjald á hverja 240 lítra sorp-
tunnu hækkar þá úr 7.478 krónum í
9.721 krónu ef losað er vikulega.
Borgarbúum verður þó boðið upp á
lækka gjaldið um helming með því
að sorp verði sótt til þeirra hálfs-
mánaðarlega.
Meðal annarra hækkana í
Reykjavík er hækkun leikskóla-
gjalda leikskóla Reykjavíkur á
næsta ári um 1,7% til rúmlega 3%.
Þessu hefur verið harðlega mót-
mælt, ekki hvað síst af stúdentum.
Ákveðið hefur verið að innleiða
gjaldhækkunina í þrepum á árinu.
Íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur hefur ákveðið að
hækka gjald vegna þjónustu frí-
stundaheimilanna um 10% og að
innheimt verði sérstaklega fyrir
tímann fyrir hádegi þá daga sem
frístundaheimilin eru opin allan
daginn. Frá og með 1. janúar 2005
hækkar því mánaðargjaldið úr
6.500 krónur í 7.150 krónur.
Álögur of miklar á bifreiðar
Eins og minnst var á að ofan þá
munu bifreiðagjöld hækka þegar
nýja árið gengur í garð. Gjaldið
mun hækka um 3,5%, samkvæmt
frumvarpi sem fjármálaráðherra,
Geir H. Haarde, lagði fram á Al-
þingi. Með hækkuninni er áætlað
að tekjur ríkissjóðs aukist um 120
milljónir króna á ársgrundvelli. Í
athugasemdum frumvarpsins
kemur fram að bifreiðagjaldið
hækkaði seinast í ársbyrjun 2002.
Það hafi ekki hækkað í samræmi
við almenna verðlagsþróun á síð-
ustu árum og sé gjaldið leiðrétting
á því.
Stjórn Félags íslenskra bifreiða-
eigenda (FÍB) hefur mótmælt „at-
lögu ríkisvaldsins að hagsmunum
íslenskra bifreiðaeigenda sem birt-
ist í frumvarpi fjármálaráðherra,“
eins og segir í ályktun stjórnar fé-
lagsins.
„Við teljum álögur á bifreiðaeig-
endur nú þegar allt of miklar og
tökum heilshugar undir mótmæli
sem komið hafa frá FÍB,“ segir Jó-
hannes Gunnarsson, talsmaður
Neytendasamtakanna.
ASÍ vinnur að úttekt
Alþýðusamband Íslands (ASÍ)
vinnur nú að úttekt þar sem teknar
eru saman allar þær gjaldhækkan-
ir sem taka gildi um áramótin og
áhrif þeirra á fólkið í landinu. Að
sögn ASÍ eru þær hækkanir sem
taka gildi í flestum tilfellum tals-
vert umfram almennar launa-
hækkanir sem taka gildi um ára-
mótin, sem rýrir kaupmátt.
Ekki sé leitað leiða til þess að
hagræða heldur eru gjöld hækkuð
með tilvísun í verðlagið. Verið sé
með því að búa til framtíðarverð-
bólgu með því að vísa í fortíðar-
verðbólgu.
Ekki er um eintómar hækkanir
að ræða á komandi ári. Sem dæmi
hefur Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra ákveðið í samráði við rík-
isstjórnina að hækka atvinnuleys-
isbætur, hámarksábyrgð úr
Ábyrgðasjóði launa, fæðingarstyrk
og lágmarksgreiðslum úr Fæðing-
arorlofssjóði um 3–4% áramótin.
Atvinnuleysisbætur hækka um
3% frá 1. janúar hámarksbætur at-
vinnuleysistrygginga þá 4.219
krónur á dag. Hámarksgreiðslur
úr Ábyrgðasjóði launa hækka um
4%. Fæðingarstyrkir og lágmarks-
greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði
hækka um 3%.
Fréttaskýring | Nokkrar gjaldhækkanir
taka gildi nú um áramótin
Kaupmáttur
mun rýrna
Útsvar, bifreiðagjöld, fasteignagjöld og
sorphirðugjöld meðal þess sem hækkar
Ýmsar álögur hækka um áramótin.
Færri gjaldflokkar hjá
leikskólum Reykjavíkur
Í starfsáætlun ársins 2005 hjá
Leikskólum Reykjavíkur er til-
laga að nýrri gjaldskrá sem bygg-
ir á því að tveir gjaldflokkar
verða í stað þriggja áður.
Þetta felur í sér að námsmenn þar
sem annað foreldri er í námi
greiða sama gjald og giftir for-
eldrar og sambúðarfólk. Skv. til-
lögunni munu foreldrar sem eru
75% öryrkjar eða meira greiða
lægra gjald. Þessi breyting felur í
sér tekjuauka upp á 28,5 milljónir
kr. Gert ráð fyrir að fjárhags-
rammi 2005 lækki sem því nemur.
jonpetur@mbl.is