Morgunblaðið - 18.12.2004, Side 10

Morgunblaðið - 18.12.2004, Side 10
10 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BOBBY Fischer hefur fengið loforð um að hann geti fengið dvalarleyfi á Íslandi, en hvaða tegund dvalarleyfis liggur ekki fyrir nú, að sögn Georgs Lárussonar, forstjóra Útlendingastofnunar. Dvalarleyfum er skipt í nokkra flokka með hliðsjón af tilgangi dvalar. Umsækjendur skulu sækja um dvalarleyfi í samræmi við tilgang dval- ar sinnar hér á landi. Þannig er hægt að fá dval- arleyfi með eða án atvinnuþátttöku og með eða án takmarkana. Eins dvalarleyfi vegna aðstand- enda, námsdvalar, vistráðningar og fleiri ástæðna. Nánar má fræðast um dvalarleyfi á heimasíðu Útlendingastofnunar. Georg sagði líklegt að Fischer fengi almennt dvalarleyfi til eins árs í senn. Hér væri um sér- stakt tilfelli að ræða og ætti eftir að ákveða hvers konar dvalarleyfi Fischer fengi. Ef hann hefði gilt vegabréf og gilt skírteini um að hann hefði dvalarleyfi hér á landi, sem er auglýst á Schengen-svæðinu, gæti hann ferðast um Schengen-svæðið. Það hefur komið fram að Fischer er með ógilt bandarískt vegabréf. Georg sagði einn mögu- leika í þeirri stöðu að gefið yrði út svokallað út- lendingavegabréf. Það er einungis gefið út þeim til handa sem hafa öll sín mál frágengin hér á landi og öll leyfi í lagi, hafa fengið útlendinga- skírteini og geta alls ekki fengið vegabréf frá heimalandi sínu eða eru ríkisfangslausir. „Ef hann sækir um útlendingavegabréf og uppfyllir öll skilyrði er hugsanlegt að það verði gefið út. Það þýðir að viðkomandi getur ferðast um allt Schengen-svæðið og þess vegna út fyrir það,“ sagði Georg. Íslenskt dvalarleyfi myndi veita Fischer ferðafrelsi TENGLAR .................................................................. www.utl.is „ÉG ER mjög ánægður með að Ísland skyldi sýna svo eðlilegt hugrekki og skynsemi. Þessi viðbrögð verða öðrum heimshlutum mikil hvatn- ing og uppörvun,“ sagði Boris Spasskí, fyrrver- andi heimsmeistari í skák, er hann var inntur eftir viðbrögðum við ákvörðuninni um að veita Bobby Fischer landvistarleyfi hér. Sem kunnugt er var Spasskí andstæðingur Bobby Fischers í heimsmeistaraeinvíginu í Reykjavík 1972, sem kallað var einvígi aldarinnar. Þá fór Bobby Fischer til Júgóslavíu 1992, meðan borg- arastríðið geisaði þar, að tefla á alþjóðlegu skákmóti við Boris Spasskí. Það var talið vera brot gegn alþjóðlegu við- skiptabanni Sameinuðu þjóðanna gegn Júgó- slavíu. Síðan hefur Fischer verið útlægur frá Bandaríkjunum. Spasskí er nú búsettur í París. Hann endurtók þakkir sínar til Íslendinga og sagðist hafa lesið enska þýðingu nýlegs viðtals Stöðvar 2 við Fischer, sem birtist á skákvefnum www.chess- base.com. „Mér þótti það gott viðtal,“ sagði Spasskí. „Líkt og venjulega er Bobby mjög op- inskár. Hann tjáir sig um hvernig heimurinn er og vandamál sín.“ Spasskí taldi ólíklegt að þeir Fischer ættu eft- ir að setjast að skákborðinu. Sjálfur væri hann sestur í helgan stein og Fischer tefldi nú slembi- skák (Random Chess). „En ef mér yrði boðið til Íslands, að hitta Fischer, myndi ég að sjálfsögðu koma. Það yrði mér mikil ánægja að hitta hann,“ sagði Spasskí. „Annars er ég fremur svartsýnn á þetta. Alþjóðleg pólitísk öfl, sem hann er á móti, vilja ekki láta hann í friði. Það er mikið vandamál.“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Boris Spasskí, fyrrverandi heimsmeistari í skák, segir að ef honum yrði boðið til Íslands að hitta Fischer myndi hann taka boðinu. Boris Spasskí, fyrrverandi heimsmeistari í skák Mjög ánægður með hugrekki og skyn- semi Íslendinga Þ órður Ægir Óskarsson, sendiherra í Tókýó, af- henti Masako Suzuki, lögmanni Fischers, formlega í gærmorgun bréf Útlendingastofn- unar þar sem fram kem- ur að Fischer fái dval- arleyfi á Íslandi ef hann svo kýs, og geti komið án vegabréfs inn í landið. „Bobby Fischer er að sjálfsögðu afar ánægður með þessa ákvörðun og sér frelsið blasa við. Og ég held að Bobby finnist að með boðinu hafi hann fengið uppreisn æru fyrir að hafa staðið á sínu og aldrei látið undan þeim þrýstingi sem hann hafi verið beittur. Ég tel að Bobby Fischer hafi unnið stórsigur gegn gerræðislegri hegðun bandarískra stjórnvalda,“ sagði Bosnitch og bætti við að hann teldi þetta vera sögu- legan viðburð. „Ísland hefur brotið ísinn,“ bætti hann við. Miyoko Watai, heitkona Fischers og starfandi forseti japanska skáksambands- ins, sagði að þegar hún hefði tilkynnt Fisc- her ákvörðun íslenskra stjórnvalda hefði hann sagt: „Er það virkilega? Það er stór- kostlegt.“ Segja vegabréf Fischers ógilt með ólöglegum hætti Fischer, sem er 61 árs, hefur verið í varð- haldi í Japan í nærri hálft ár eftir að hann var handtekinn á Naritaflugvelli í Tókýó með ógilt vegabréf. Bandaríkjamenn hafa krafist þess að fá Fischer framseldan, en þar í landi er hann eftirlýstur fyrir að hafa brotið lög með því að tefla einvígi við Boris Spasskí í Svartfjallalandi árið 1992 og þannig brotið viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna gegn sambandsríkinu Júgóslavíu. Bosnitch fullyrti á blaðamannafundinum, að bandarísk stjórnvöld hefðu með ólögleg- um hætti ógilt vegabréf Fischers og stuðn- ingsnefndin hefði hafið málaferli í Banda- ríkjunum til að fá þeirri ákvörðun breytt. Í Japan væru einnig í gangi málaferli til að koma í veg fyrir að Fischer yrði vísað úr landi á grundvelli fullyrðinga bandarískra stjórnvalda. Þessi málaferli gætu tekið langan tíma og þess vegna hefði stuðnings- nefndin reynt að fá Fischer lausan úr varð- haldi, sem hann hefur nú sætt í tæpt hálft ár, og útvega honum griðastað. Reynt hefði verið að finna land, sem vildi taka við Fischer og á sama tíma útvega honum vegabréf sem hann gæti notað. „Ísland hefur nú leyst bæði þessi vanda- mál með því að bjóða Fischer landvist- arleyfi og rétt til að koma inn í landið án vegabréfs. Svo tilraunir okkar til að útvega Bobby Fischer þýskt vegabréf vegna þýsks þjóðernis föður hans halda áfram en þær eru ekki lengur nauðsynlegar svo Fischer geti ferðast,“ sagði Bosnitch. Ættu að biðja Fischer afsökunar Hann sagði að nú fengju japönsk stjórn- völd tækifæri til að bæta fyrir meðferðina á Fischer með því að láta hann lausan. „Jap- önsk stjórnvöld vilja vísa Bobby Fischer úr landi. Vilji þau aðeins fylgja japönskum lögum og vísa honum úr landi án tillits til þess hvert hann fer fá þau tækifæri til þess nú því Bobby Fischer þiggur boðið um að fara til Íslands; ég talaði við hann í síma í dag. Svo ef japönsk stjórnvöld vilja koma heiðarlega fram er Bobby Fischer reiðubú- inn að fara, Ísland er reiðubúið að taka við honum og hann þarf ekkert vegabréf. Ef Japan er hins vegar með undirferli og er að vinna að því með Bandaríkjunum að senda Bobby „bakdyramegin“ til Bandaríkjanna svo hægt sé að dæma hann þar í fangelsi fyrir að tefla skák, þá erum við reiðubúin til að berjast gegn því eins lengi og þarf, jafn- vel þótt það taki mörg ár.“ Bosnitch sagði einnig, að stuðnings- mannanefndin teldi viðeigandi, að japönsk stjórnvöld bæðu Fischer afsökunar á með- ferðinni. Hann tók fram að Fischer hefði ekki farið fram á slíkt, „hann er mun frið- samari en ég“, sagði Bosnitch. Japönsk stjórnvöld hafa neitað að leyfa Fischer að fara úr landi til þriðja lands nema bandarísk yfirvöld neiti að taka við honum. Lögmaður hans, Masako Suzuki, sagðist hins vegar á blaðamannafundinum ekki sjá nein lagaleg vandkvæði á því að japönsk stjórnvöld breyttu áfangastaðnum á brottvísunarkröfunni í Ísland í stað Bandaríkjanna og því ætti ekkert að vera því lagalega til fyrirstöðu að Fischer fengi að fara frá Japan innan skamms. Fram kom hjá Suzuki, að stuðningsmannanefndin myndi falla frá málaferlum í Japan til að koma í veg fyrir brottvísun Fischers úr landi ef japönsk stjórnvöld féllust á að leyfa Fischer að fara til Íslands. Bosnitch sagði að nú ætti forsætisráð- herra Japans, Junichiro Koizumi, að sýna hugrekki og höggva á hnútinn og veita Fischer fararleyfi án tafar. „Ef ríkisstjórn þessa lands ákveður að sýna hugrekki mun Bobby Fischer fara nú,“ sagði hann. Fram kom á blaðamannafundinum að japönsk stjórnvöld hefðu til þessa ekki viljað tjá sig um þessa þróun mála síðustu daga. Bosnitch sagði að nefndir væru starfandi á Íslandi, í Þýskalandi, Frakklandi, Rúss- landi, Bandaríkjunum, Kanada og Serbíu og Svartfjallalandi til að vinna að því að fá Fischer lausan úr varðhaldi. Stuðnings- nefnd Fischers í Japan hefði verið í sam- bandi við þessar nefndir, þó einkum nefnd- ina á Íslandi, sem hefði rætt bæði við bandaríska og japanska sendimenn í Reykjavík um málið. Þegar Morgunblaðið spurði Bosnitch hvort hann teldi að fleiri lönd en Ísland kynnu að veita Fischer dvalarleyfi sagðist hann hafa verið í beinu sambandi við nefnd- ina í Serbíu og Svartfjallalandi. „Síðustu boð mín til fólksins þar voru þau að það ætti að taka sér tak og fylgja fordæmi hinn- ar hugrökku og sjálfstæðu þjóðar á Íslandi. Ég hef rætt við opinberan fulltrúa Serbíu og Svartfjallalands í Japan og hef reynt að koma á fundi með honum og Fischer. Ég held að við munum ekki aðeins fá þetta tækifæri frá Íslandi heldur muni fleiri lönd fylgja í kjölfarið. En þetta mál gæti leyst ef Japan sýnir af sér hugrekki og leyfir Fisch- er að fara.“ Fram kom í máli Bosnitchs á fundinum að Fischer hefði engan áhuga á að tefla framar á stórmótum vegna þeirrar spill- ingar er hann teldi að ríkti innan alþjóðlegu skákhreyfingarinnar. Vill fara með Fischer til Íslands Morgunblaðið spurði Miyoko Watai á blaðamannafundinum hvort hún hefði hug á að koma með Fischer til Íslands yrði af för hans þangað. Hún sagðist telja Ísland afar áhugavert land sem hún hefði heyrt mikið um og það væri að mörgu leyti mjög svipað Japan. „Ef hann fer til Íslands þá vildi ég gjarnan fara þangað líka,“ sagði hún. Watai var á fundinum spurð um hjóna- bandsáform þeirra Fischers en hún sagði að að svo stöddu vildu þau ekki tjá sig frek- ar um það mál. Stuðningsmenn skákmeistarans Bobbys Fischers lýstu á blaðamannafundi í Tókýó í Japan í gær yfir mikilli ánægju með þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að bjóða Fischer landvistarleyfi hér á landi. „Bobby Fischer hefur tekið boði Íslendinga,“ sagði John Bosnitch, stuðningsmaður Fischers, á blaðamannafundinum. Guðmund- ur Hermannsson sat fundinn þar sem kom fram að Fischer sæi frelsið blasa við. Morgunblaðið/Guðmundur Hermannsson John Bosnitch, stuðningsmaður Fischers, og Miyoko Watai, heitkona Fischers, á blaðamannafundi í Japan í gær. Fischer þiggur boð Íslend- inga um að koma til Íslands Tókýó. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.