Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 12

Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kambódía undan skugga Khmeranna á morgun „Ef ég ætti sand af seðlum myndi ég kaupa mér köku.“ STUÐNINGSNEFND Roberts James Fischers, eða Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistara í skák, fór í bandaríska sendiráðið í Reykjavík hinn 14. desember sl. og lagði þar fram eftirfarandi spurn- ingar. Óskaði stuðningsnefndin eft- ir formlegu svari við spurningunum svo fljótt sem verða mætti og var því heitið. Nefndin óskaði eftir því að Morgunblaðið birti spurning- arnar og fara þær hér á eftir. 1. Af hverju beið Bandaríkja- stjórn í heil 12 ár, eða frá 1992 til 2004, með að afturkalla vegabréf skáksnillingsins Bobby Fischers? 2. Bandaríkjastjórn fullyrti á sín- um tíma við japönsk yfirvöld að ómögulegt hefði reynst að ná sam- bandi við skákmeistarann til að til- kynna honum að vegabréf hans hefði verið afturkallað. Síðan þá hefur Bandaríkjastjórn þó við- urkennt að engin boð eða tilkynn- ing um þetta hefði verið sent á póst- fang Bobbys, sem hann gaf upp þegar vegabréf hans var endurnýj- að til 10 ára í Bandaríska sendi- ráðinu í Sviss 1977. Það lægi því al- veg ljóst fyrir af hálfu nefndarinnar, byggt á upplýsingum lögfræðinga meistarans, að banda- rísk yfirvöld hefðu blekkt Japani til að góma Bobby sl. sumar. Þá færi heldur ekkert á milli mála að það hefði verið af ráðnum hug sem Bandaríkjastjórn lét undir höfuð leggjast að skrifa Bobby og til- kynna honum um að ákveðið hefði verið að ógilda vegabréf hans, til- gangurinn hefði verið sá einn að leiða hann í gildru og handtaka hann í Japan. Hvaða önnur skýring eða skynsamleg ástæða gæti legið því til grundvallar að upplýsa hann ekki um málið formlega, eins og skylt er að gera skv. bandarískum lögum? 3. Þau lög sem ákæran á hendur Bobby Fischer var byggð á hafa síð- an runnið út eða verið felld úr gildi. Eftir því sem best er vitað hefur enginn annar nokkru sinni verið ákærður skv. þeim lögum. Ef svo er ekki, vinsamlegast upplýsið hvaða aðilar hafa verið ákærðir og hvaða dóma þeir hafa hlotið? 4. Hvaða ávinning getur opinbert mál á hendur Bobby Fischer fyrir þá sök eina að hafa teflt skák í Júgóslavíu árið 1992, í landi sem ekki er lengur til, haft í för með sér? Stuðningsnefnd Bobby Fischers. F.v.: Magnús Skúlason, Guðmundur G. Þórarinsson, Helgi Ólafsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Garðar Sverrisson, Sæmundur Pálsson, Ingvar Ásmundsson, Hrafn Jökulsson og Einar S. Ein- arsson. Myndin var tekin eftir að ljóst var að íslensk stjórnvöld höfðu fallist á að veita Fischer landvistarleyfi. Stuðningsnefnd Bobby Fischers leit- ar svara hjá bandaríska sendiráðinu ÁKVÖRÐUN Alþingis í síðustu viku um að fella úr gildi eignarskatt markaði tímamót í skattasögu Íslendinga, að því er segir í vefriti fjármálaráðuneytisins. Þar með verð- ur afnuminn sá skattur sem lengst hefur verið við lýði hér á landi, en eignarskattur var tekin upp árið 1096/97, fyrst skatttegunda, þegar tíundarstatútata Gissurar bisk- ups Ísleifssonar var lögfest. Með lögum um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt, sem Alþingi sam- þykkti í síðustu viku, var ákveðið að eignarskattur ein- staklinga og lögaðila falli niður frá og með 31. desember 2005. Síðasta álagning eignarskatts mun því eiga sér stað á árinu 2005 vegna eigna í árslok 2004. Tíund byggðist á eign Undirstaða íslensku tíundarinnar var eignin. Sá, sem átti eitt hundrað (120) sex álna aura, skyldi greiða 6 álnir, eða 1% á ári. Tíundarskyldir voru allir, konur jafnt sem karlar 16 ára og eldri, sem áttu skuldlaust tiltekna eign. Tíundin skiptist í fjóra hluta og var einn hluti ætlaður fátækling- um, annar biskupi, þriðji kirkju og fjórði prestum. Árið 1556 yfirtók konungur biskupstíundina, en það var ekki fyrr en eftir að Íslendingar fengu stjórnarskrá 1874 og löggjafarvald í eigin fjármálum, að konungstí- undin var afnumin með lögum frá árinu 1877. Það ár voru lögfest lög um húsaskatt, sem giltu fram til ársins 1921, þegar fyrstu almennu lög um tekjuskatt og eignarskatt voru lögfest sem allt fram til dagsins í dag hafa haft að geyma ákvæði um eignarskatt. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu voru þeir hlutar tíundarinnar sem runnu til kirkjunnar og presta ekki afnumdir fyrr en árið 1909 og fátækratíundin ekki fyrr en árið 1914. Elsti skatturinn felldur úr gildi ÞAÐ heyrði til undantekninga að tíund miðaðist við eign, líkt og gert var hér á landi á þjóðveldisöld, að sögn Sigurðar Líndal prófessors. Algengast var í ná- lægum löndum að tíundin væri tekjuskattur af nátt- úrulegum arði. Þó munu einhver dæmi vera um það úr Frankaríkinu að svipuð leið væri farin við skattheimtu og gilti hér á landi. „Þó að tíundin væri eignaskattur í framkvæmd er ljóst að hún var hugsuð sem 10% tekjuskattur. Vextir, eða fjárleiga, á þjóðveldisöld voru 10%. Ef skatturinn miðaðist við hugsanlegar tekjur af eign varð skatturinn því tíund af 10% eða 1% af verðmæti eignar.“ Sigurður segir að líklega hafi þótt óheppilegt að innheimta tí- undina af tekjum af náttúrulegum arði hér á landi. Veðurfar og aðrar ytri aðstæður geti hafa valdið því. Svo virðist sem einhver vafi hafi verið talinn á þess- ari framkvæmd. Í umræðum á Alþingi 1281 við lögfest- ingu Jónsbókar, „þegar Alþingi ræðir grundvall- aratriði stjórnspekinnar ítarlegar en það hefur nokkurn tíma gert fyrr eða síðar,“ eins og Sigurður orðar það, réðst Loðinn Leppur, fulltrúi konungs, á tí- undina og sagði hana okur. Árni biskup Þorláksson, sem hafði verið einn helsti andmælandi Jónsbókar, svaraði Loðni og vitnaði í orð Innocentiusar páfa um að íslenska tíundin væri ekki okur og ynni engri sálu tjón. „Íslenska tíundin hefur sem sagt verið borin undir páfa og Innocentius páfi sagt að þetta væri í lagi,“ sagði Sigurður Líndal. Íslenska tíundin var borin undir páfa
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.