Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í gegnum árþúsundir hafa kínverjar þróað fullkomnar
aðferðir til eflingar líkama og heilsu.
Heilsurækt
Sérhæfð heilsumeðferð
Dekur fyrir karla og konur
Tilboð á gjafavöru frá Kína
Tek á móti dekurhópum
Heitur pottur, gufa og fleira
Gjafabréf
Skeifan 3 ◆ Sími 553 8282 ◆ www.heilsudrekinn.is
Fjölbreytt úrval
jólagjafa frá Kína
j
Í GÆR voru veittir níu styrkir til rannsókn-
arverkefna úr Minningarsjóði Helgu Jónsdóttur
og Sigurliða Kristjánssonar, alls 4,4 milljónir.
Minningarsjóðurinn var stofnaður á grund-
velli fyrirmæla í erfðaskrá þeirra hjóna til að
styrkja rannsóknir í hjartasjúkdómum, augn-
sjúkdómum, tauga- og öldrunarsjúkdómum. Í
desember ár hvert eru veittir styrkir á öllum
þessum sviðum í samræmi við stofnskrá og að
undangengnu faglegu mati á umsóknum.
Styrkþegar árið 2005 eru:
Jón Hersir Elíasson til rannsókna á faralds-
fræði heilablóðfalls á Íslandi, Vilhjálmur Rafns-
son til rannsókna á skýmyndun á augasteini hjá
flugfreyjum og flugþjónum, Brynhildur Thors til
rannsókna á boðferlum tengdum Akt í æðaþeli,
Haraldur Sigurðsson til rannsókna á birting-
armyndum augnsjúkdómsins „geographic at-
rophy“ á Íslandi, Ólafur E. Sigurjónsson o.fl. til
að þróa aðferð til að mæla þróun stofnfrumna yf-
ir í taugafrumur, María Ragnarsdóttir og Ásdís
Kristjánsdóttir til að rannsaka áhrif styrktar- og
þolþjálfunar öndunarvöðva á lungnastarfsemi
eftir hjáveituskurðaðgerð, Þorsteinn Gunn-
arsson til að kanna árangur nýrra aðferða við
meðhöndlun æðagúla,
Jón Snædal og Jakob Kristinsson til að rann-
saka oxavarnir í Alzheimersjúkdómi og Guð-
mundur Arason og Perla Þorbjörnsdóttir til að
rannsaka áhrif magnahindra á æðakölkun.
Framvinduskýrslur sem sjóðstjórninni berast
á ári hverju frá styrkþegum sýna glöggt að
styrkir sjóðsins hafa eflt árangursríkar rann-
sóknir, skilað mikilvægri nýrri þekkingu og eru
þannig stöðugur vitnisburður um framsýni
stofnendanna, segir í fréttatilkynningu.
Styrkir úr Minningarsjóði Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
4,4 milljónir til rannsóknarverkefna
Morgunblaðið/Kristinn
Fulltrúar þeirra níu verkefna sem hlutu styrk úr Minningarsjóði Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar í ár.
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
manni sem rak fjárhættuspil og
veðmálastarfsemi í borginni. Hlaut
hann fjögurra mánaða skilorðs-
bundið fangelsi. Fram kemur í
dómnum að allir fjármunir vegna
rekstrarins, sem stóð yfir frá des-
ember 2001 til septemberloka 2002,
hafi farið í gegnum reikning
mannsins og veltan verið veruleg.
Var talið að hann hafi staðið að
starfseminni í atvinnuskyni.
Hann var dæmdur til að borga
500 þúsund krónur í sekt í ríkissjóð
og kemur 65 daga fangelsi í stað
sektarinnar verði hún ekki greidd
innan fjögurra vikna.
Þá var manninum einnig gert að
sæta upptöku til ríkissjóðs á fimm
spilaborðum, spilapeningum og
spilastokkum og samtals um 5 millj-
ónum króna í reiðufé, ávísun og
innistæðum á reikningum.
Dæmdur fyrir fjárhættuspil
„ÉG HEFÐI auðvitað
svo sannarlega vænst
þess að þetta yrði af-
greitt og leyfi fengist
til að hefja fram-
kvæmdir en að sjálf-
sögðu verðum við að
meta þessa stöðu og við
munum fara yfir þetta
og þessar athugasemd-
ir og ábendingar,“ seg-
ir Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra, um
þá ákvörðun bæjar-
stjórnar Garðabæjar að
fallast ekki á breikkun
Reykjanesbrautar að
sinni.
„Ráðuneytið hefur haft þær upp-
lýsingar undir höndum frá Vega-
gerðinni að það hafi verið leitast
við að fara, og að sjálfsögðu, eftir
þeim skilyrðum sem sett voru í
tengslum við umhverfismatið og
það hafi verið lögð mjög mikil
vinna í að koma til móts við sjón-
armið íbúanna þarna og haft mikið
samráð við þá. Þann-
ig að ég hafði vonast
til þess að þetta mál
væri komið til enda,
en ég geri ráð fyrir
því að hafa samráð
við bæjaryfirvöld í
Garðabænum um
næstu skref,“ segir
ráðherra.
„En það er alveg
ljóst að þarna er um
mjög mikinn kostnað-
armun að ræða, ann-
ars vegar að leggja
þennan veg í sam-
ræmi við tillögur
Vegagerðarinnar sem
hún telur að uppfylli allar kröfur
umhverfismatsins og hins vegar að
lækka veginn sem mun auka kostn-
aðinn mjög mikið.“
Að sögn Sturlu mun hann fara
yfir málið með vegamálastjóra og
síðan hafa samráð við bæjaryfir-
völd um næstu skref, sem fyrr seg-
ir.
Samgönguráðherra um breikkun
Reykjanesbrautar
Mun ræða við
bæjaryfirvöld og
vegamálastjóra
Sturla Böðvarsson
Á MEÐFYLGJANDI yfirlitsmynd
sést lega Reykjanesbrautar miðað
við tvöföldun vegarins samkvæmt
tillögum Vegagagerðarinnar, frá
Arnarnesvegi að bæjarmörkum
Hafnarfjarðar í Kaplakrika. Eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær
fellst bæjarstjórn Garðabæjar ekki á
að veita Vegagerðinni framkvæmda-
leyfi á þessu stigi. Nauðsynlegt sé að
fyrst fari fram ítarleg greining með
hlutaðeigandi aðilum, ráðherrum,
þingmönnum. Vegagerðinni o.fl. þar
sem þeim verði kynnt afstaða bæj-
arbúa til breikkunarinnar, eins og
segir í samþykkt bæjarstjórnar.
Að sögn Eiríks Bjarnasonar bæj-
arverkfræðings felur samþykktin í
sér að skoða málin til hlítar enda
gangi tillögur íbúa út á að setja veg-
inn í stokk eða grafa hann niður.
Ekki sé rætt um það að breyta veg-
stæðinu sjálfu.
Hús verði varin fyrir hávaða
Í greinargerð með samþykkt bæj-
arstjórnar segir að helstu atriði
þessu til viðbótar sem fulltrúar íbúa
leggi áherslu á við breikkun vegar-
ins, umfram það sem Vegagerðin
hefur lagt til sé, að svonefnd hávaða-
kort verði reiknuð fyrir hærri um-
ferðarhraða en 80 km/klst, helst 90–
100 km/klst og varnir sýndar miðað
við það. Þá, að hávaði verði sýndur
miðað við 70.000 bíla á sólarhring og
varnir sýndar miðað við það. Af sér-
tækum aðgerðum sem fjallað er um í
greinargerðinni og eru óskir íbúa er
að hús við Rjúpnahæð, Efstalund,
Þrastalund og Sunnuflöt verði varin
fyrir hávaða.
!
"!#
Ekki rætt um að breyta
vegstæðinu sjálfu
MARGRÉT Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri neytendasviðs Skelj-
ungs, segir athugasemdir fyrirtæk-
isins vegna áforma um að breyta
deiliskipulagi í Kópavogsbæ og að
heimila rekstur sjálfsafgreiðslu-
stöðvar á lóð nr. 22 við Dalveg, fyrst
og fremst snúa að því að umferð um
lóð Skeljungs til og frá Reykjanes-
braut muni aukast til mikilla muna.
Einnig hafi Kópavogsbær spurt í
bréfi til hlutaðeigandi fyrirtækja og
einstaklinga hvort þeir telji sig verða
fyrir fjárhagslegu tjóni og í því sam-
bandi sé Skeljungur að svara að þeir
telji að svo sé. Bærinn hafi auglýst
að þeir muni taka að sér að bæta
slíkt tjón. Athugasemdir fyrirtækis-
ins séu því í eðlilegu ferli og svörin
sem þar eru gefin heiðarleg.
Mjög aukin umferð
„Þarna er verið að auka umferð
inn á þetta svæði alveg gífurlega,
Kópavogsbær leitar til okkar til að
heyra hvort við höfum athugasemd
vegna svona breytingar og auðvitað
svörum við því af heiðarleika. Það
skiptir okkur ekki máli hvers konar
verslunar- eða þjónusturekstraraðili
er á staðnum því öllu sem myndi
kalla á aukna umferð þarna hefðum
við áhyggjur af.“
Að sögn Margrétar eru dæmi þess
frá stöð Skeljungs við Vesturlands-
veg að ekið hafi verið á starfsmenn
fyrirtækisins þar sem ökumenn
stytta sér leið í gegnum lóð stöðv-
arinnar inn í nærliggjandi hverfi.
Starfsmenn stöðvarinnar við Dalveg
hafi áhyggjur af því að sams konar
hætta geti skapast þar.
Áhyggjur af
mikilli gegn-
umumferð