Morgunblaðið - 18.12.2004, Page 24

Morgunblaðið - 18.12.2004, Page 24
24 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Ótrúlega fjölbreytt saga af ævintýrinu um bílinn, sem breytti íslensku þjóðlífi meira en nokkurt annað tæki. Spennandi lestur fyrir alla sem hafa gaman af þjóðlegum fróðleik, frásögnum af mannraun- um og því hvernig fólkið í landinu þróaði nýtt samfélag, samfélag sem byggist á sam- göngum – stundum í baráttu við stjórnvöldin. Saga bílsins á Íslandi 1904 – 2004 Blæju Ford Mustang 1968 Einn gamall og góður. Þessi einstaki bíll er klassískur gæðingur með sögu. Sími 4808080 Fossnesi A 800 Selfossi Varahlutir - Sala - Ábyrgð - Þjónusta - Sérpantanir Nýr Ford Mustang GT Premium 2005 Frumsýnum í fyrsta sinn á Íslandi nýjan Mustang GT Premium. Þetta er bíll sem er nú þegar búinn að slá í gegn í Bandaríkjunum fyrir frábæra hönnun og gott verð. Nýr Jeep Grand Cherokee Limited 2005 Nýjungar í Grand Cherokee, ný 330 hestafla V8 HEMI vél ásamt skriðvörn og 100% læsingu á báðum öxlum. Nýr Ford F150, F250 og F350 2005 Öflugir vinnuhestar sem eru búnir að slá í gegn. Ný fjöðrun sem gefur minni beygjuradíus. Dodge RAM 2500 Larime 2005 Sá öflugasti í sínum flokki með nýja vél sem togar 610 lb-ft. Pontiac Grand Prix GTP 2004 Glæsilegur fjölskyldubíll með 260 hestafla vél og hlaðinn búnaði. GMC Sierra 2500 LT 2005 Sá ljúfasti með 310 hestafla díselvél, hlaðinn búnaði, t.d. DVD. Frábærar veitingar í boði: VERULEG umskipti urðu í rekstri norsks sjávarútvegs á árinu 2003. Árið 2002 var greinin rekin með 7 milljarða króna halla en í fyrra á „núllinu“. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá norsku hafrannsókna- stofnuninni. Reksturinn gekk betur á flestum sviðum greinarinnar en fjölmörg fyrirtæki voru þó rekin með miklu tapi og því telst afkoma greinarinn- ar í heild árið 2003 fremur slök. Veruleg lækkun á hráefnisverði og sterk norsk króna höfðu veruleg áhrif þar um. Afkoman batnaði samt sem áður í flestum greinum iðnaðarins og eins og oft áður var það saltfiskiðnaður- inn, einkum þurrfiskverkunin, sem skilaði bestri afkomu, þvert á við það ástand sem annars ríkir í hvít- fiskiðnaðinum. Þannig var afkoman lakari hjá blautfiskverkendum en þar dregur einn stór aðili afkomuna niður. Flakaiðnaðurinn og rækju- iðnaðurinn var áfram rekinn með tapi í fyrra. Þá var árið 2003 eitt það lakasta í norska fiskimjölsiðnaðin- um, enda drógust tekjur verulega saman með mun minni hráefnisöfl- un. Norskur fiskiðnaður hefur und- anfarin ár glímt við stöðugt versn- andi afkomu. Mjög slæm afkoma ár- ið 2002 hafði í för með sér gjaldþrot marga fyrirtækja og leiddi til fækk- unar í greininni. Fyrirtækjum hefur því fækkað og þar af leiðandi störf- um. Undanfarin tvö ár hefur störf- um í norskum fiskiðnaði fækkað um 2.000, að því er fram kemur í skýrsl- unni. Norðmenn á „núllinu“ FISKISTOFA svipti níu báta og skip leyfi til veiða í atvinnuskyni í nóvembermánuði. Stomsker SH var sviptur leyfinu vegna afla umfram aflaheimildir en fékk leyfið að nýju þegar aflamarksstaða skipsins hafði verið lagfærð. Þá voru Fram- nes ÍS, Særós RE, Faxi RE, Heiðrún SU og Sæunn HF svipt leyfinu í tvær vikur vegna vanskila á afla- dagbókarfrumriti. Eins var Bryndís ÞH svipt veiðileyfi í tvær vikur þar sem undirmálsafli var yfir stærð- armörkum, Fríða EA var svipt leyf- inu í tvær vikur þar sem ósamræmi var milli upplýsinga úr búnaði sjálf- virku tilkynningaskyldunnar og til- kynninga í Símakrók og Svalan SK var svip veiðileyfi í sex vikur þar sem afli var ekki færður til vigt- unar á hafnarvog við löndun. Þá var endurvigtunarleyfi Fisk- verkunar Jónasar Ágústssonar ehf. afturkallað ótímabundið þar sem skilyrði til endurvigtunar voru ekki uppfyllt. Níu bátar sviptir leyfi GALLERÍ fiskur við Nethyl hefur tekið upp þá nýbreytni að bjóða upp á eldisþorsk. Þorskinn er bæði hægt að kaupa flakaðan úr fiskborðinu eða borða hann á veitingahúsinu. Þetta er eldisþorskur frá Guð- mundi Runólfssyni ehf. í Grund- arfirði, en áframeldi á þorski hefur verið stundað þar í um tvö ár. Krist- ófer Ásmundsson, fisksali, mat- sveinn og fiskiðnaðarmaður er ánægður með eldisþorskinn. „Þetta er fínasti fiskur, ekkert síðri en sá villti, það eina er að hann er aðeins dýrari í innkaupum en sá sem veiðist úti á sjó vegna þess að töluverður kostnaður er við eldið,“ segir Krist- ófer. En hvernig er hann matreiddur á veitingastaðnum? „Ég smjörsteiki þorskinn og hef með honum sinn- epsrjómasósu og góðar kartöflur til dæmis kryddjurtakartöflu. Það skiptir miklu máli að leyfa þessum góða fiski að njóta sín, yfirgnæfa ekki bragðgæðin með of miklu kryddi eða bragðmikilli sósu.“ Morgunblaðið/Jim Smart Fisksalar Feðgarnir Ásmundur Karlsson og Kristófer Ásmundsson með eldisþorskinn úr Grundarfirði. Bjóða upp á eldisþorsk Krásin komin á disk. SJÓMANNALMANAK Skerplu 2005 hefur meðal annars að geyma upplýsingar um skip á Íslandi. Í bókinni eru um 1.000 litmyndir af íslenskum skipum en um fimmtung- ur þeirra hefur verið endurnýjaður frá síðustu útgáfu. Auk skipaskrár- innar er bókin fullgilt íslenskt sjó- mannaalmanak. Eins og áður fylgir ókeypis margmiðlunardiskur hverri bók þar sem er að finna skipaskrána, hafna- skrána og þjónustusíður með fjöl- mörgum áhugaverðum tengingum og leitarmöguleikum. Skipaskrá í þremur hlutum Skipaskráin er nú í megindrátt- um í þremur hlutum. Fyrsti hlutinn er skrá um þilfarsskip, og fylgja myndir af þeim öllum. Að venju fylgir þilskipaskránni skrá um út- gerðir þeirra og skrár um kall- merki, umdæmisstafi og skipa- skrárnúmer. Annar hlutinn er helgaður opnum bátum. Skráin um opna báta er nú ítarleg þótt henni fylgi ekki myndir. Sérstakar skrár eru einnig um skipaskrárnúmer opnu bátanna og umdæmisstafi þeirra. Í þriðja hluta er að finna skrár um vélagerðir í öllum íslensk- um skipum, skrár um frumskráð og afskráð skip, einkarétt á skipsnöfn- um o.fl. Auk skipaskrárinnar er fjölmargt annað að finna í almanakinu, svo sem kafla um aflaheimildir, hafnir á Íslandi, kort, sjávarföll, vita, fjar- skipti, veður, öryggi, siglingar og lög og reglur. Sjómannaalmanak Skerplu 2003 er 896 bls. og leiðbeinandi verð er 4.480 kr. Sjómanna- almanak Skerplu 2005 komið út Ný útgáfa af margmiðlunar- diskinum fylgir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.