Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 34

Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR LANDIÐ Hólmavík | Um tuttugu krakkar frá Hólmavík, Drangsnesi og nágrannasveitum á Ströndum frumsýndu á sunnudaginn söngleikinn Friðar- barnið. Um er að ræða uppsetningu á vegum æskulýðsfélags Hólmavíkurkirkju sem nýlega hlaut styrk úr æskulýðssjóði menntamálaráðu- neytisins. Það er Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir sem leikstýrir krökkunum en séra Sigríður Óla- dóttir stýrir söngnum og Gunnlaugur Bjarna- son sem sér um tækniaðstoð. Að sögn Hrafn- hildar er verkið sett upp í samvinnu Hólmavíkurprestakalls, grunnskólanna á svæðinu og Leikfélags Hólmavíkur. Æfingar- tíminn hefur verið fremur stuttur en krakk- arnir, sem eru frá Drangsnesi, Hólmavík og nærsveitum hafa staðið sig afar vel. „Það kom í ljós á síðustu stundu að krakk- arnir úr Árneshreppi gætu ekki verið með okk- ur, vegna tíðarfars þar fyrir norðan og þá þurfti að finna aðra í þeirra hlutverk,“ sagði Hrafnhildur. Í vor stendur til að æfa stykkið upp aftur og gefa þá krökkunum í Árneshreppi færi á að vera með og sýna verkið þar. Uppi- staðan í hópnum er fermingarbörn í Stranda- sýslu en síðan var bætt við úr árgöngunum fyr- ir ofan og neðan. Boðið á kirkjulistahátíð Tónlistin verður tekin upp og gefin út á geisladisk til nota í æskulýðsstarfi kirkjunnar. Hrafnhildur segir þetta verk, sem hefur bæði jóla- og friðarboðskap, ekki hafa verið sýnt áð- ur hér á landi. Þetta er rúmlega klukkustund- arlöng sýning með tíu söngvum. Þorkell Örn Ólason þýddi verkið, en tónlistin er eftir Mark og Helen Johnson og og textinn eftir Sue Langwade. Að sögn sr. Sigríðar gáfu höfundar góðfúslegt leyfi til að taka verkið til sýningar án endurgjalds. Frumsýning var á Hólmavík á sunnudaginn en sýningu sem vera átti á Drangsnesi á mánudagskvöld var frestað um viku vegna veðurs og færðar. Ekki er ljóst hvort sýningarnar verði fleiri, en hópnum hef- ur verið boðin þátttaka á kirkjulistahátíð um Jónsmessuna í sumar. Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Friðarbarnið Fermingarbörn frá Hólmavík og Drangsnesi taka þátt í söngleiknum. Söngleikur með jóla- og friðarboðskap Staðarsveit | Undir stjörnubjörtum himni með dansandi norðurljósum hélt hópur af nemendum og velunnurum Lýsuhólsskóla í Staðarsveit á Snæfellsnesi út á skólalóðina eitt kvöld í vikunni. „Passið ykkur að detta ekki í lónið,“ kvað við utan úr myrkrinu sem varnarorð til þeirra sem ekki þekktu til kring- umstæðna. Lónið sem um ræðir er uppistöðulón Stubbalækjavirkjunar. Nú átti að gangsetja rafalinn og framleiða rafmagn til að lýsa upp gróðurhús sem nemendur og kennarar smíð- uðu á haustönn. Einstakt þróunarverkefni Þeir Guðmundur Bjarnason og Símon Rún- arsson úr 10. bekk komu rafalnum fyrir. Gyða Kristjánsdóttir, formaður nemendaráðs, þrýsti síðan á hnappinn sem kveikti ljósin. „Það tókst“ hefur verið slagorð verkefnisins frá því það hófst, en Haukur Þórðarson kenn- ari við skólann segir þennan áfanga hluta af stærra þróunarverkefni sem snýst um það að nýta alla orku á skólalóðinni. „Allt frá upphafi var unnið mjög faglega og framkvæmdin kringum virkjunina sett í umhverfisskipulag og kynnt á almennum fundi og nemendur látn- ir meta umhverfisáhrifin,“ segir Haukur. „Verkefnið hlaut styrk frá menntamála- ráðuneytinu síðastliðið haust og var kynnt sem valfag þegar skólinn hófst. Valið stóð á milli þess að byggja gróðurhús eða læra fönd- ur, myndlist eða hannyrðir. Nemendur völdu allir gróðurhúsaverkefnið og hafa komið að öllum verkþáttum þess. Stubbalækjarvirkjun framleiðir 200 vött af rafmagni og er tilgangur hennar að lýsa upp gróðurhúsið. Umframvatn frá hitaveitu skólans verður notað til að hita gróðurhúsið upp,“ sagði Haukur sem stýrt hefur verkefninu af miklum áhuga og vinnur nú að gerð vefsíðu um þróunarverkefnið. Síðastliðið vor útbjuggu nemendur mat- jurtagarð og notuðu eingöngu hrossaskít sem áburð en stefnt er að því að nota moltu úr jarðgerðarkassa skólans til áburðar næsta vor, en Lýsuhólsskóli hefur unnið að umhverf- isverkefnum í mörg ár og hlotið Grænfánann. Haukur segir að stefnt sé að því að forrækta grænmeti í gróðurhúsinu í vetur og planta í garðinn næsta vor. Stefnan sé svo að setja fisk í lónið sem síðan megi nota í mötuneyti skól- ans. Segir Haukur þetta lið í lifandi náttúru- fræðikennslu. Þeir Guðmundur og Símon, sem hafa verið aðalaðstoðarmenn Hauks, sögðust stoltir yfir því að vera þátttakendur í verkefninu. Töldu þeir það mikilvægt fyrir lítinn skóla að geta verið til fyrirmyndar í umhverfismálum og vinna að framförum sem þessum. Áhugamenn Haukur Þórðarson kennari og Guðmundur Sigurmonsson skólastjóri við jólatré sem lýst er upp með raforku sem framleidd er á staðnum. Það tókst! Nemendur virkjuðu lækinn og lýsa upp eigið gróðurhús Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann Upplýst Gestir fögnuðu þegar kveikt var á ljósunum í nýja gróðurhúsinu og sungu Bráð- um koma blessuð jólin. Á NÆSTA ári verður framkvæmt á vegum Fasteigna Akureyrarbæjar fyrir rúmar 900 milljónir króna sam- kvæmt framkvæmdayfirliti bæjarins fyrir árin 2005–2008, sem er til um- fjöllunar innan bæjarkerfisins. Hæsta fjárhæðin fer í framkvæmdir við Brekkuskóla, 253 milljónir króna. Þá fara 160 milljónir króna á næsta ári í nýjan leikskóla við Helgamagra- stræti, 40 milljónir króna í Verk- menntaskólann á Akureyri og 5 millj- ónir króna í nýjan grunnskóla í Naustahverfi. Í viðbyggingu við Dvalarheimilið Hlíð eru áætlaðar 185 milljónir króna á næsta ári, 30 milljónir króna í reið- höll og 10 milljónir króna í menning- arhús. Einnig er gert ráð fyrir fram- kvæmdum við Andapollinn við Sundlaug Akureyrar upp á 20 millj- ónir króna. Þá er áætlað að setja 5 milljónir króna í fjölnotasal í Hrísey á næsta ári og 60 milljónir króna árið 2006. Samkvæmt framkvæmdayfirlit- inu er ráðgert að setja 675 milljónir króna í menningarhús á Akureyri á árunum 2006–2008, 250 milljónir króna á árinu 2006, 225 milljónir árið 2007 og 190 milljónir árið 2008. Þá er gert ráð fyrir framkvæmdum upp á 200 milljónir króna í tengslum við Landsmóti UMFÍ, sem haldið verður á Akureyri árið 2009, 40 milljónir króna árið 2007 og 160 milljónir króna árið 2008. Í nýjan grunnskóla í Naustahverfi fara samtals 390 millj- ónir króna á næstu fjórum árum, þar af 300 milljónir króna árið 2008. Framkvæmdaáætlun Fasteigna Akureyrarbæjar Framkvæmt fyrir rúm- ar 900 milljónir króna Morgunblaðið/Kristján Endurbætur Gríðarlegar endurbætur verða gerðar á Brekkuskóla en framkvæmdum við nýbygginguna er lokið. BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur falið bæjarstjóra að ganga til samninga við Norðurorku hf. um kaup fyrir- tækisins á hita- og vatnsveitu í Hrís- ey. Franz Árnason, forstjóri Norður- orku, sagði stefnt að því að ganga frá kaupunum fyrir áramót en verðmæti veitnanna er á bilinu 40–50 milljónir króna. „Við höfum rekið veiturnar frá því í ágúst sl., haft af því skyldur og tekjur og munum gera það áfram.“ Franz sagði að nóg væri af heitu vatni í Hrísey fyrir núverandi byggð „en við vonumst eftir því að þarna verði byggt mikið af sumarbústöðum og öðru húsnæði, þannig að við náum meiri sölu.“ Ein sjálfrennandi vinnsluhola er í eynni og gefur hún 7–8 lítra á sekúndu af um 70 gráða heitu vatni. Einnig er þar ein hola með köldu vatni. Hreinsun vinnsluholu á Lauga- landi á Þelamörk er lokið og gekk vel, að sögn Franz. Eftir að borað var á ská út úr holunni fyrir fjórum árum gaf hún 60–70 tonn á klukku- stund af 104 gráða heitu vatni. Fljót- lega eftir hún var virkjuð fór vatns- magnið að minnka og á endanum lokaðist hún alveg vegna hruns. Bor- inn Sleipnir var notaður við hreinsun holunnar en hann hefur nú verið fluttur á Hjalteyri en þar verður bor- uð ný vinnsluhola, við hlið vinnslu- holu sem fyrir er á staðnum. Norðurorka kaupir veitur Hríseyjar Jólasöngvar | Jólasöngvar Kórs Akureyrarkirkju verða á sunnu- dag, 19. desember, kl. 17 og 20. Fyrir síðustu jól var ákveðið að bjóða upp á tvenna tónleika vegna mikillar aðsóknar á undanförnum árum og gaf það góða raun. Á efnisskránni er aðventu- og jólatónlist eftir Jórunni Viðar, Ró- bert A. Ottósson, Michael Praetor- ius, Charles Wood, Zöebeley, Reg- inald Jacques, David Willcocks og Anders Öhrwall. Eyþór Ingi Jóns- son leikur á orgel og stjórnandi er Björn Steinar Sólbergsson. Auk þess að hlýða á kórinn gefst kirkju- gestum kostur á að æfa jólasálm- ana fyrir jólin því auk kórsöngs verður almennur safnaðarsöngur. Ljósræn rannsóknarstofa | Fjöl- listakonan Arna Valsdóttir býður gestum og gangandi að heimsækja sig í Ketilhúsið á Akureyri nú um helgina. Þar mun hún setja upp ljós- ræna rannsóknarstofu og vinna við það í 2 daga að kanna snertifleti ljóss og skugga, hljóðs og þagnar, hreyf- ingar og kyrrstöðu í tilteknu rými á tilteknum tíma. Arna lauk námi frá fjöltæknideild Jan van Eyck aca- demie í Maastricht Hollandi árið 1989, hún er menntuð bæði í tónlist og myndlist og á einnig sterkan bak- grunn í leikhúslífi. Rannsókn- arstofan verður opnuð í Ketilhúsinu kl. 14 í dag, laugardag, og lýkur með uppskeruhátíð kl. 17 á morgun. Fjölbýlishús | Bæjarstjórn hefur samþykkt tillögur umhverfisráðs um breytingar á deiliskipulagi og aðalskipulagi 1998–2018, þar sem gert er ráð fyrir nýrri lóð norðan Mýrarvegar 115, þar sem reisa á fjórða húsið sömu gerðar og númer 111–115, þ.e. 5. hæða fjölbýlishús. Í tillögu umhverfisráðs um breytingu á deiliskipulagi svæðisins er jafn- framt gert ráð fyrir því að lóð- arhafi skuli sjálfur kosta aðgerðir við að tengja húsið við fráveitulögn sem kemur frá Mýrarvegi.       AKUREYRI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.