Morgunblaðið - 18.12.2004, Side 36
36 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SPLUNKUNÝ Sinfóníuhljómsveit
unga fólksins hélt sína fyrstu op-
inberu tónleika á fimmtudagskvöld
fyrir þokkavel setinni Neskirkju.
Eru sinfóníusveitir þar með orðnar
fjórar á landinu og myndu samsvara
ríflega 80 slíkum í Danmörku. En
vitanlega ber ekki að setja allar und-
ir sama hatt, því hver hefur sinn
ólíka megintilgang. SÍ er flaggskip
íslenzks tónlistarlífs, SN þjónar
Norðlendingum með miðpunkt á Ak-
ureyri, SÁ heldur uppi áhuga-
mennsku á höfuðborgarsvæðinu, og
nýjustu viðbótinnni, SUF, er ætlað
að gegna samspilsþörfum langt
kominna hljóðfæranema úr tónlist-
arskólum suðvesturhornsins, eins og
fram kom af tónleikaskrá.
SUF var ekki ýkja stór við þessa
frumraun, eða aðeins 35 manns með
21 strengjaleikara (6-5-4-4-2), 4x2
tréblásara, 3 horn, 2 trompet og
pákista. En það ætti samt að nægja
flestu verkavali frá barokki fram að
síðrómantík, enda
heyrðist manni jafn-
vægið milli raddhópa
nokkuð gott í að vísu
aðeins of glymharðri
ómvist Neskirkju.
Helzt mætti heyrast
ögn betur í víólum, þó
að því raddsviði hætti
jafnan mest til að þekj-
ast af nágrenni sínu,
og næsthelzt í sellóum.
Annars var balansinn
sem sagt furðugóður,
kannski burtséð frá
stöku stað í fagott er í
ríkjandi heyrð skar sig
fullmikið úr í hljómfyll-
ingarhlutverki.
Það var þó minnsta málið, því
sjálft blá„debút“ SUF í upphafs-
tónum fyrsta verksins kom hlust-
endum til að lifna svo við í sætum
sínum að halda mætti að sjálf
„L’orchestre Révolutionaire et
Romantique“ Gardiners væri mætt
á staðnum. Coriolanusarforleikur
Beethovens með öllum sínum
dramatísku alþögnum er fínasti
prófsteinn á inngjafatækni hljóm-
sveitarstjóra, þótt ekki kæmi fleira
til. En miðað við hvernig allt steins-
mall frá byrjun til enda virtust að-
eins þrjár mögulegar skýringar: 1)
linnulausar undangengnar sam-
æfingar unz allir kunnu sitt í svefni,
2) hvert einasta ung-
menni var skyggnt og
lék „per ESP“, eða 3)
Gunnsteinn Ólafsson er
vanmetnasti innfæddi
hljómsveitarstjóri
landsmanna.
Ég hallast að því síð-
asttalda. Enda hélzt
sama ósvikna gæða-
yfirbragðið út allt pró-
grammið. Eftir gust-
mikinn forleik
Beethovens sveif „Elv-
íra Madigan“-
píanókonsert Mozarts
þokkafullt áleiðis sem
línudansmærin (í upp-
haflegri merkingu) forðum með
glæsilegum einleik hins unga hér að-
setzta Raúls Jiménez, þó að diska-
ntklökkva slaghörpunnar hefði áður
mátt stilla betur. Hin mozarzka 5.
sinfónía Schuberts í B-dúr eftir hlé
var sömuleiðis bæði yndisfull og
gædd þróttmikilli snerpu. Hér fór
m.ö.o. hljómsveitarfrumraun sem
sagði bæði sex og kastaði tólfum.
Kæmi með sama framhaldi varla á
óvart ef SUF yrði eftirsótt til frum-
flutnings á íslenzkum verkum við
hæfi ungra en bráðþroska hlust-
enda.
Bravó!
Frábær frumraun
TÓNLIST
Neskirkja
Beethoven: Coriolanusarforleikurinn.
Mozart: Píanókonsert í C K467 („Elvira
Madigan“). Schubert: Sinfónía nr. 5.
Raúl Jiménez píanó ásamt Sinfón-
íuhljómsveit unga fólksins u. stj. Gunn-
steins Ólafssonar. Fimmtudaginn 16.
desember kl. 20.
Sinfóníutónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Gunnsteinn Ólafsson
ÞÝSK dagblöð hafa farið fögrum orðum
um sýningar Semperoper í Dresden á
músíkleikhúsi Hafliða Hallgrímssonar,
Örsögum, en verkið var sýnt sex sinnum
og var síðasta sýningin haldin fyrir
meira en fullu húsi. Örsögur eru byggð-
ar á stuttum sögum eftir rússneska rit-
höfundinn og absúrdistann Daniil
Kharms, sem var uppi frá 1905–1942.
Semperoper er eitt frægasta óperuhús í
Þýskalandi, þar starfaði m.a. Richard
Wagner á sínum tíma og margar af óp-
erum Richards Strauss voru frumfluttar
þar.
„Örsögur heitir músíkleikhúsið sem ís-
lenska tónskáldið Hafliði Hallgrímsson
setti saman úr textum Kharms árið
1998. Endurgerð verksins var einróma
fagnað af áhorfendum á þýskri frumsýningu þess á Litlu
senunni í Dresden. Með uppfærslunni varð að veruleika
það sem gerst hefur allt of sjaldan: samvinna milli
listaháskólanna í Dresden undir yfirstjórn Semperóper-
unnar.[-] Útkoman er eitt mest spennandi og áhugaverð-
asta leikhúskvöld í háa herrans tíð,“ segir í dómi
Sächsische Zeitung.
Raunverulegt nútímaleikhúsverk
Þar segir jafnframt að tónlist Hafliða tengi saman
orð og athafnir, sé stundum ærslafengin, stundum lítt
áberandi, segi og dragi úr í senn.
„Í fagurfræðilegum skilningi tókst þessari stuttu
músíkleiksýningu með sinni leikgleði og í samvinnu
dans, tónlistar og leikhúss eitthvað sem Dresden á
ekki að venjast: að sýna raunverulegt nútímaleik-
húsverk, verk sem gnæfir yfir ódýra skandala, nakta
leikendur eða margmiðlunarstæla.[-] Lógíkin á ekki
heima í þessum heimi fáránleikans sem aðeins er
hægt að koma til skila með abstraktívum hætti – dríf-
ið ykkur á sýninguna.“
„Allt of gott kvöld í absúrdleikhúsi“ segir í fyr-
irsögn Dresden Neueste Nachrichten en þar segir að
líta verði á þessa uppfærslu í samvinnnu milli listháskólanna
sem tilraun sem hafi heppnast mjög vel. „Það er dansað,
hlaupið, leikið – og „fallegar“ myndir ber fyrir sjónir og mikið
leikhús rís á Litlu senunni,“ segir í Dresden Neueste
Nachrichten.
Músíkleikhús | Örsögur Hafliða fá góða dóma í Þýskalandi
„Eitt mest spennandi leik-
húskvöld í háa herrans tíð“
Úr sýningu Semperoper á Örsögum Hafliða Hallgrímssonar.
Hafliði Hallgrímsson
EINLEIKUR Bjark-
ar Jakobsdóttur,
Sellófan, vakti mikla
athygli Dana, þegar
hann var sýndur
Folketeatret á fjölum
Hippodromen leik-
hússins í haust. Það
var Charlotte Bøving
sem þýddi verkið á
dönsku og leikstýrði,
en með hlutverk nú-
tímakonunnar Helenu
fór Birgitte Sim-
onsen. Í verkinu er
einkalíf hennar skoð-
að á gamansaman
hátt og fylgst með því hvernig hún
fótar sig á framabrautinni.
Ljóst er af skrifum dönsku blað-
anna að þar í landi
hefur það þótt tíð-
indum sæta að fá
Charlotte Bøving
heim á danskt leik-
svið, en hún hefur ver-
ið búsett á Íslandi í
fjögur ár. Charlotte er
vel þekkt leikkona í
sínu heimalandi, og
hlaut meðal annars
eftirsóttustu leik-
verðlaun Dana, Hen-
kelverðlaunin árið
1995, aðeins þremur
árum eftir að hún út-
skrifaðist úr námi.
Hér á Íslandi er hún vafalaust
kunnust fyrir eigið verk, Hina
smyrjandi jómfrú, sem sýnt var fyr-
ir nokkrum misserum í Iðnó við
miklar vinsældir, og leikgerðina á
Rauðhettu, sem sýnd var í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu.
Í Kaupmannarhafnarútgáfu Jyl-
landsposten birtist stór mynd af
Charlotte Bøving með viðtali um
feril hennar og ástæður þess að hún
yfirgaf danskt leikhús og flutti til
Íslands með manni sínum Benedikt
Erlingssyni, leikara og leikstjóra.
Gagnrýnandi Politiken, Bettina
Heltberg gaf sýningunni í Hippo-
dromen þrjár stjörnur af sex. Hún
lofaði frammistöðu Birgittu Sim-
onsen í hlutverki Helenu, en hrósar
Bøving einnig fyrir snjalla, fram-
úrskarandi uppfærslu, með tilfinn-
ingu fyrir því að einleikur krefst
fyrst og fremst góðs leikara.
Einleikur Charlotte Bøving um
smurbrauðsjómfrúna fjallaði um
það þegar menningarheimar mæt-
ast og byggði hún hann að nokkru á
reynslu sinni af því að flytjast til Ís-
lands. Í kjölfar sýningarinnar á
Sellófan í Danmörku, samdi Bøving
nýtt handrit að Smurbrauðsjóm-
frúnni, og hermdi nú aðstæður upp
á Danmörku og nýbúa þar. Verkið
sem í þeirri gerð kallast Kalda
borðið, var frumsýnt í Husets Teat-
er í nóvember í leikstjórn Benedikts
Erlingssonar, en Bøving leikur –
meðal annars klædd búrku, hefð-
bundnum kufli pakistanskra, pers-
neskra og arabískra kvenna.
Leikhús | Danskir fjölmiðlar bjóða Charlotte Bøving velkomna heim á danskt leiksvið að nýju
Gleðjast yfir
endurkomu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Charlotte Bøving er aftur komin heim til Danmerkur.
i8 Gallerí
Klapparstíg 33
101 Reykjavík
sími 551 3666
www.i8.is
VAXTALAUS LÁN TIL LISTAVERKAKAUPA
Nú bjó›ast vaxtalaus lán frá KB Banka til allt a› 3 ára til kaupa á listaverkum hjá i8.
Lánsupphæ› getur veri› frá kr. 36.000 til kr. 600.000.
19-23. desember er i8 opi› frá 14 - 22