Morgunblaðið - 18.12.2004, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 43
FERÐALÖG
TÍVOLÍ og skemmtigarðar víða
um heim eru sett í hátíðarbúning-
inn á aðventu og heimsóknir
þangað verða hluti af jólaund-
irbúningnum meðal borgarbúa.
Liseberg í Gautaborg er engin
undantekning. Þar lýsa nú á
fjórðu milljón jólaljósa, jólamark-
aður er í fullum gangi og sum tív-
olítækin eru opin.
Liseberg er opið frá vori og
fram á haust og er síðan opnað á
ný um helgar í lok nóvember. Síð-
ustu dagana fyrir jól er opið dag-
lega en síðan er dyrunum aftur
lokað að kvöldi Þorláksmessu.
Óþreyjufullir tívolíkrakkar á öll-
um aldri þurfa svo að bíða fram í
apríl eftir að geta sest í tryllitæk-
in á ný.
En það er fleira en tækin sem
dregur fólk í Liseberg á aðvent-
unni. Bara ljósin sem lýsa upp
skammdegið geta verið aðdrátt-
arafl fyrir marga. Trén eru bók-
staflega þakin smáum hvítum ljós-
um og þar að auki hanga
ljósaseríur á milli húsa. Útsýn-
isturninn í Liseberg lítur út eins
og risastórt jólatré þar sem ljósa-
keðjur ná frá efsta hluta og niður
á jörð. Alls eru jólaljósin í
skemmtigarðinum í ár 3.286.722
talsins.
Góðgæti og gjafavara
Sölubásar með jólamat, jóla-
skraut, gjafavöru og hitt og þetta
góðgæti hafa einnig verið settir
upp. Gaman getur verið að rölta á
milli þeirra og fá að smakka á ost-
bita, möndlum, karamellum eða
jólaglögg eða skoða handverk frá
ólíkum landshlutum í Svíþjóð.
Sjaldan rekst maður á hrein-
dýrakjöt í pítubrauði eins og var á
boðstólum hjá Sömum í einum
básnum. Á jólamarkaðnum er svo
hægt að kaupa handgerða vindla,
hefðbundið sænskt jólaskraut úr
hálmi og allt þar á milli.
Jólasveinalandið hefur aðdrátt-
arafl fyrir börnin sem fá stjörnur
í augun við að ganga um heilt hús
fullt af jólaskrauti, jólaljósum,
gervisnjó og jólasveinabrúðum
sem hreyfa sig. Jólasveinarnir eru
að undirbúa jólin, smíða gjafir og
baka brauð.
Skautasvell er opið í Liseberg á
aðventunni og hefur það verið vin-
sælt meðal gesta. Vötn og tjarnir í
Gautaborg eru líka ómöguleg til
skautaiðkunar enn sem komið er
því frostlaust hefur verið síðan í
byrjun nóvember. Á skautasvell-
inu og víðar um garðinn eru
grænar kanínur á stærð við menn,
einkennisfígúrur Liseberg, á vappi
í jólabúningi og faðma börnin.
Margir veitingastaðir eru í
skemmtigarðinum og sérhæfa þeir
sig í ýmiss konar jólamat á þess-
um árstíma. Sænskt jólahlaðborð
bragðaðist vel, síld, lax, hrökk-
brauð, skinka og fleira góðgæti.
Bókakaffihús var fullsetið og gest-
ir með glögg, te eða kaffi í bolla
til að ylja sér.
Í Liseberg renna yfir þrjú þús-
und lítrar af jólaglögg niður
kverkar gestanna þá 27 daga sem
opið er fyrir jólin. Og þeir sporð-
renna 26 þúsund piparkökum
með.
Ljós í Liseberg
JÓLASTEMNING
Ljósadýrðin í Liseberg: Þær eru enda ófáar perurnar sem lýsa upp tívolíið.
Liseberg:
veffang: www.liseberg.se
sími: 00 4631 400 100
steingerdur@mbl.is
Morgunblaðið/ Steingerður
Sölubásar: Ýmsan varning er að
finna í sölubásum í tívolíinu.
fiegar íslensku ostarnir eru bornir fram, einir sér,
á ostabakka e›a til a› kóróna matarger›ina
– flá er hátí›!
Engin jól án fleirra!
Dala-Yrja
Sígildur veisluostur
sem fer vel á ostabakka.
Höf›ingi
Brag›mildur hvítmygluostur
sem hefur slegi› í gegn.
Dala-Brie
Á ostabakkann og me›
kexi og ávöxtum.
Lúxus-Yrja
Brag›mild og gó› eins og
hún kemur fyrir e›a í matarger›.
Camembert
Einn og sér, á ostabakkann
og í matarger›.
Blár kastali
Me› ferskum ávöxtum
e›a einn og sér.
Stóri-Dímon
Ómissandi flegar vanda
á til veislunnar.
Gullostur
Brag›mikill
hvítmygluostur,
glæsilegur
á veislubor›i›.
Ítalskur ostur
með sólþurrkuðum tómötum
Steyptur lúxusostur
tilvalinn á ostabakkann.
Ostakaka
með hindberjum
Kætir bragðlaukana
svo um munar.
Grá›aostur
Tilvalinn til matarger›ar.
Gó›ur einn og sér.
Rjómaostur
Á kexi›, brau›i›,
í sósur og íd‡fur
Hrókur
Nýr ljúffengur
hvítmygluostur
með gati í miðjunni.
jólagjöf
Hugmynd að
fyrir hann
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
Deluxe álkerra
Afar sterk tvöföld
rörgrind. Vatnsbrúsi og
skorkortahaldari fylgja.
Verð áður 9.990 kr.
30% afsláttur.
Verð6.990kr.
Ambassador
kerrupoki
Sérlega vel hannaður
poki með mörgum vösum.
Verð áður 14.990 kr.
50% afsláttur.
Verð 7.490 kr.ÍSLENS
KA
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
66
32
12
/2
00
4