Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 44

Morgunblaðið - 18.12.2004, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Á laugardaginn var birtist í Morgunblaðinu grein eftir Björn Bjarnason, dóms- málaráðherra, um mál Mann- réttindaskrifstofunnar eins og þau horfa við frá hans sjónarhóli. Komu þar fram „söguskýringar“ á samningaviðræðum MRSÍ og stjórnvalda árið 1998, svo gersam- lega andstæðar skilningi þeirra sem að skrifstofunni stóðu og enn standa, að und- irrituð, sem tók þátt í þessum viðræðum sem þáverandi stjórnarformaður MRSI, tel- ur sig til þess knúna að svara grein ráð- herrans. Fyrirsögn greinar dómsmálaráðherra er „Fjárlög, mannréttindi og sannsögli“ og fyrsta setning hennar hljóðar svo: „Í bar- áttu fyrir mannréttindum skiptir sköpum að hafa sann- leikann að leiðarljósi; að gæta þess að láta ekki blekkjast af þeim sem vilja síður virða það sem sannara reynist.“ Skömmu síðar bætir ráð- herrann við: „Trúverðugleiki og traust eru lykilorð, þegar metið er, hvort einstaklingar eða samtök þeirra búi yfir styrk til að ná árangri í nafni mannréttinda.“ Ég tek fyllilega undir þessi byrjunarorð ráðherrans – og þar sem ég geng út frá því, að hann trúi því að grein hans byggi á því sem hann telur satt og rétt, leyfi ég mér að benda honum og lesendum á, að þeir sem komnir eru til ára og reynslu vita, að það er ekki alltaf auðvelt að sjá hinn eina rétta „sannleika“; að gjarnan eru tvær eða fleiri hliðar á hverju máli. Víst er, að sá „sannleikur“ sem ráðherra heldur fram í grein sinni, kemur ekki heim og saman við þann „sannleika“ þessa máls sem blasti við forystu MRSÍ árið 1998. Í annan stað eru hugtökin „trúverðugleiki og traust“ einmitt kjarni þessa máls – eins og það blasir við MRSÍ. Þau hugtök eru ekki einasta lykilorð þegar einstaklingar eða samtök eiga í hlut, heldur eiga þau einnig við um orð og gerðir stjórnvalda gagnvart borgurunum. Viðræðurnar 1998 Ráðherrann minnist þess í grein sinni, að fulltrúar utanríkis-, dómsmála- og mennta- málaráðherra hafi á árinu 1998 rætt um hvernig best yrði staðið að fjárhagslegum stuðningi við Mannréttindaskrifstofuna auk þess sem hugað yrði að stuðningi við Mann- réttindastofnun Háskóla Íslands. Hafi ráð- herrarnir þrír á árinu 1998 lagt tillögu fyrir ríkisstjórnina um þá skipan, sem gilt hafi um fjárveitingar til þessara stofnana þar til Mannréttindaskrifstofan „rifti samningnum einhliða“ (sjá síðar). Um þetta er það að segja, að þetta ár sat ég sem stjórnarformaður Mannréttinda- skrifstofu Íslands (hér eftir skammst. MRSÍ) a.m.k. einn fund um þessi mál í utan- ríkisráðuneytinu þar sem saman voru komnir ráðuneytisstjórar dóms-, mennta- og utanríkismála auk nokkurra annarra starfsmanna hins síðasttalda. Mannrétt- indaskrifstofan hafði um árabil fengið nokk- urra milljóna króna framlög frá ráðuneytum dóms- og utanríkismála og stóð nú til að hækka þau verulega. Höfðu viðræður staðið um nokkurt skeið milli forystumanna MRSÍ og utanríkisráðuneytisins um framtíð skrif- stofunnar og leitt til þeirrar niðurstöðu, að mál hennar yrðu sett undir utanrík- isráðherra sem stefndi að því að fá framlög til MRSÍ aukin upp í 12–15 miljónir króna – en þar af skyldu 15% ganga til Mannrétt- indastofnunar Háskóla Íslands (hér eftir skammst. MSHÍ) enda skyldu stofnanirnar tvær gera með sér samstarfssamning til framtíðar. Forsvarsmenn stofnananna tveggja ræddu þetta mál á nokkrum fundum og hinn 20. apríl sendi ég ráðuneytinu að þess ósk greinargerð með fyrirsögninni: „Hug- myndir um samstarf Mannréttinda- skrifstofu Íslands og Mannréttinda- stofnunar Háskóla Íslands“. Þar sagði m.a.: „Utanríkisráðuneytið hefur mælst til þess við stjórnir Mannréttindaskrifstofu Íslands og Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands (MRSÍ og MSHÍ) að þær reyni að sameina starf sitt að mannréttindamálum. Af hálfu ráðuneytisins hefur verið upplýst, að það sé reiðubúið að mæla með því við ríkisstjórn Íslands, að hún veiti stuðning einni stofnun svo myndarlegan, að unnt verði að byggja upp öfluga starfsemi á sviði mannréttinda hér á landi. Viðræður hafa farið fram milli forystu- sinni – að m fulltrúum M ræðum þeir isráðuneytis ekki verið m ur einskona Fulltrúar faxforsíðu rá senda frá Al blöð með till fundi HÁ – ( dór Ásgríms voru ekki an hvers? Eigin Ágústssonar hver skyldi t Kannski v isráðuneytin svið til að bl tóku þátt í þ 15% framlag Mannréttind Bágt á ég m sýnt að leng létum við þá inum vorið 1 stjórnarform ársdvalar er ekki betur v framlögin ti næstu fjárlö Þegar til k gefnu fyrirh aðeins 6 mill og gert ráð f neytum dóm menntamála myndinni! Þ grundvöllur MSHÍ enda er eitt að gr allt annað ef kr. Eina ský að ekki hefð isstjórnarin um við svo s staðan var k Samningu ur gerður og Frá þeim tím til MSHÍ en starfsemina laganefnd A Kristjánsson ismálaráðhe lagið svo hæ bóta. Þar me MRSÍ upp í samt vart til starfsemi sk happs að hú húsaleigu – ast þá og þe að leyti eða ætti Umboð árlegu fram króna. Sam Ekkert va MSHÍ, sem ráð fyrir, þa lengst af erl áhuga á viðr henni penin manna MRSÍ og MSHÍ og hafa þær leitt til þeirrar niðurstöðu, að heppilegast muni að hefja samþættingu starfsemi þeirra með því að þær geri með sér samstarfssamning til nokkurra ára og skipi samstarfsnefnd, er fjalli um þau mál, sem stofnanirnar vinni að í sameiningu. Samkomulag þetta byggist á þeirri meg- instefnu, að MSHÍ einskorði starfsemi sína við fræðilegar rannsóknir á sviði mannrétt- indamála, en MRSÍ vinni að mannréttinda- málum á breiðum grundvelli. Á fundi forystumanna MRSÍ og MSHÍ með fulltrúum utanríkisráðuneytisins í síð- ustu viku lagði undirrituð fram eftirfarandi hugmynd að ramma fyrir starfsemina og var þá beðin að skrifa með henni smá grein- argerð til glöggvunar. Fer hún hér á eftir...“ Ekki er ástæða til að tíunda alla þessa greinargerð um fyr- irhugaða samvinnu og starfs- svið stofnananna – enda er hún alllöng – en þar segir m.a. um MRSÍ: „Mannréttindaskrifstofa Ís- lands er ekki hugsuð sem bein baráttusamtök er vinni með svipuðum hætti og aðild- arfélögin, heldur er henni ætl- að að vera miðstöð mannrétt- indastarfsins er leggi megináherslu á hina lög- fræðilegu hlið mannréttinda (innlenda löggjöf og al- þjóðlega, alþjóðasamninga, yf- irlýsingar, dóma innlenda sem erlenda o.s.frv.) svo sem umsagnir um laga- frumvörp, greinargerðir v/alþjóðasamninga eða tiltekin ákvæði þeirra o.fl. þess háttar, ennfremur á upplýsingaöflun og miðlun, á fræðslu, umræður og fræðilegar rann- sóknir, jafnframt þjónustu við Evrópuráðið og fleiri stofnanir. Einstaklingum veiti hún ráðgjöf og leiðbeiningar en ekki er gert ráð fyrir að hún vinni einstök mál fyrir ein- staklinga.“ Síðan er áfram haldið að skýra nánar hvernig ætlunin sé að standa að fram- kvæmd hinna ýmsu þátta samþykkta stofn- unarinnar og talið, að þörf sé þriggja manna starfsliðs til þess að hún geti sinnt þessum verkefnum myndarlega, þar af þurfi einn að vera þjóðréttarfræðingur að mennt. Í sam- bandi við rannsóknir segir svo: „Setja skal á laggirnar samstarfsnefnd MRSÍ og MSHÍ, sem fjalli um hugmyndir og tillögur að fræðilegum verkefnum og raði þeim svo nið- ur, að ekki verði gengist undir fjár- skuldbindingar nema unnt sé að standa við þær. Skal aldrei gerður samningur um rannsóknarverkefni fyrr en fyrir liggja í sjóðum tveir þriðju hlutar fjárins, sem heitið er fyrir hvert.“ Minnisblaðið – drög frá HÁ Greinargerð þessi var skrifuð í þeirri trú, að mál þetta væri vel á veg komið. Byggðist hún á minnisblaði til ríkisstjórnarinnar, dags. 15. apríl, 1998, sem ég hafði fengið símsent frá Alþjóðaskrifstofu utanríkisráðu- neytisins hinn 17. apríl. Þar var gerð grein fyrir skrifstofunni og fjárþörf hennar ásamt tillögum um að framlagið til hennar yrði hækkað um 11 millj. kr. – upp í 15 millj. kr. og að það kæmi frá Alþingi en ekki ráðu- neytunum. Það er rétt sem ráðherra segir, að ég taldi að þetta minnisblað væri ættað frá Halldóri Ásgrímssyni; að hann hefði samþykkt þessi drög, en nú er haft eftir honum, að það hafi ekki verið frá sér komið heldur Helga Ágústssyni, þáverandi ráðu- neytisstjóra. Hann gefur þar með í skyn að þarna hafi ekki komið fram vilji hans, heldur ráðuneytisstjórans; að samningamenn ráðu- neytisins hafi án umboðs ráðherra samið þessi drög til ríkisstjórnarinnar; að fulltrúar MRSÍ hafi einfaldlega verið dregnir á asna- eyrunum í viðræðunum við ráðuneytismenn. Bágt á ég með að trúa því – en sé svo hef ég staðið í villu og svima öll þessi ár um afstöðu Halldórs Ásgrímssonar til MRSÍ. Ég hef ætíð staðið í þeirri trú, að hann væri hlynnt- ur starfsemi MRSÍ og því ítrekað farið fram á það við hann á undanförnum mánuðum, allt frá því í október 2003, að hann tryggði framtíð skrifstofunnar áður en hann léti af starfi utanríkisráðherra. Nefndi einhver hugtökin trúverðugleika og traust? Núverandi stjórnarformaður og fram- kvæmdastjóri MRSÍ lögðu þetta minnisblað fram á fundi með dómsmálaráðherra eftir að hann tilkynnti, að ráðuneytið mundi hætta að eyrnamerkja framlög til MRSÍ á fjárlögum eins og gert hefði verið sl. fimm ár. Þar kom fram af hans hálfu sú furðulega staðhæfing – sem hann staðfestir í grein Um sannleika o Eftir MargrétI Heinreksdóttur Margrét Heinreksdóttir Frá afhend Þorsteini G kynningu á og framkvæ son, verkefn steinn Gunn FRAMSALSKRAFA? Síðustu daga hafa menn veltþví fyrir sér, hvað mundi ger-ast ef Bobby Fischer tæki boði íslenzkra stjórnvalda um að flytjast hingað til lands. Raunar var fullyrt á blaðamannafundi í Tókýó í gær, að Fischer hefði ákveðið að taka boðinu. Mundu Bandaríkjamenn gera kröfu til þess að við Íslendingar framseldum hann til Bandaríkjanna? Ýmis rök mæla gegn því, að slík krafa kæmi fram. Draga verður í efa, að Bandaríkjamenn teldu það heppi- legt af pólitískum ástæðum að setja slíka kröfu fram gagnvart Íslend- ingum í ljósi náinna samskipta þjóðanna í áratugi, stuðnings Ís- lendinga við erfiðar ákvarðanir þeirra á alþjóðavettvangi og mála- vexti alla, sem tengjast hugsanlegri komu Bobby Fischers hingað til lands. En í því tilviki, að þeir settu slíka framsalskröfu fram er ljóst, að Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, hefur nú lagt málefnalegan og laga- legan grundvöll að því að slíkri kröfu yrði hafnað. Í Morgunblaðinu í dag minnir ut- anríkisráðherra á, að sérstök lög hafi verið sett hér á landi á sínum tíma vegna alþjóðlegs viðskipta- banns Sameinuðu þjóðanna á Júgó- slavíu, ríki, sem ekki er lengur til. Samkvæmt þeim lögum varðaði það allt að tveggja ára fangelsi að eiga viðskipti við Júgóslavíu á þeim tíma. Auðvitað er það rétt, sem ut- anríkisráðherra hefur sagt, að það hlýtur í þessu tilviki að teljast mik- il spurning hvort Fischer hafi með þátttöku í skákeinvígi brotið gegn viðskiptabanni Sameinuðu þjóð- anna. En síðan segir Davíð Oddsson um þetta í Morgunblaðinu í dag: „Þetta brot hans mundi vera talið fyrnt að íslenzkum lögum. Ef menn velta fyrir sér framsali og skyldu til að framselja menn þá er sá fyr- irvari á því að við erum ekki skyld- ugir að framselja menn nema brot- ið, sem framsalskrafan beinist að, sé jafnframt brot gegn íslenzkum lögum ... Íslenzk yfirvöld hefðu leyfi til að leggja á það mat, hvort þessi athöfn hans væri brotleg samkvæmt íslenzkum lögum. Hún mundi ekki teljast það, að minnsta kosti ekki lengur.“ Með þessum orðum hefur utan- ríkisráðherra Íslands mótað skýra málefnalega og lagalega afstöðu til þess, hver viðbrögð íslenzkra stjórnvalda yrðu ef Bobby Fischer tæki ákvörðun um að flytjast hing- að og framsalskrafa yrði sett fram af hálfu Bandaríkjastjórnar. Þeirri kröfu yrði hafnað með framan- greindum rökum. Vegna hugsanlegrar framsals- kröfu frá Bandaríkjunum er því engin ástæða fyrir Bobby Fischer að hika við að taka boði íslenzkra stjórnvalda af þeim sökum. Ekki fer á milli mála, að almenn ánægja ríkir meðal landsmanna vegna ákvörðunar Davíðs Oddsson- ar. Með henni höfum við Íslend- ingar staðið við siðferðilegar skyld- ur okkar gagnvart merkum skáksnillingi, sem við eigum mikið að þakka. BÖRN MEÐ GEÐRASKANIR Fjöldi barna undir 18 ára aldrimeð hegðunar- og geðraskanir, sem fá umönnunarmat frá Trygg- ingastofnun, hefur meira en tvöfald- ast undanfarin fimm ár, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær. Í frétt- inni sagði að í desember árið 1999 hefði fjöldi þessara barna verið 1.093, en nú ættu 2.399 börn í hlut og þar af teldust um 850 börn verða með alvar- legar raskanir. Þetta eru sláandi töl- ur og ekki hægt að leiða þær hjá sér. En hver skyldi ástæðan vera fyrir því að svona miklu fleiri börn eru greind með hegðunar- og geðraskan- ir nú en fyrir fimm árum? Haft er eft- ir Sverri Óskarssyni, félagsráðgjafa hjá Tryggingastofnun, að ásókn for- eldra í umönnunarmat fyrir börn með hegðunar- og geðraskanir fari stöð- ugt vaxandi. Hann skýrir þessa aukningu meðal annars með því að fleiri börn fái læknisfræðilega grein- ingu á sínum vanda, greiningin sé orðin betri og ákveðnari og fleiri börn séu um leið sett á lyf en áður. Sverrir segir að margs konar þjón- usta og aðstoð, sem þessum börnum standi til boða, sé háð því að umönn- unarmat liggi fyrir, en skýringar geti einnig verið að leita í háum lyfja- kostnaði, t.d. fyrir ofvirk börn. Þá hafi breytt þjóðfélagsmynstur sitt að segja, lengri vinnutími foreldra og aukin þátttaka kvenna á vinnumark- aði hafi haft sín áhrif á aðstæður barna. Það er mikið áfall fyrir fjölskyldur þegar barn virðist ekki vera heilbrigt og heilbrigðisþjónustan þarf að vera í stakk búin til að bregðast samstundis við, bæði með greiningu á vandanum og viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Sú hefur ekki alltaf verið raunin, en snemma í sumar var tilkynnt að áætl- að væri á næstu misserum um 340 milljónum króna til uppbyggingar barna- og unglingageðdeildar Land- spítala – háskólasjúkrahúss við Dal- braut og þegar hefðu verið tryggðar um 140 milljónir króna til verkefn- isins. Það er nógu erfitt fyrir foreldra að hlúa að veiku barni, þeir eiga ekki að þurfa að eyða dýrmætum tíma í að glíma við kerfið. Vandi þeirra barna, sem greind hafa verið með hegðunar- og geð- raskanir, er mismikill. Verst eru þau 850 börn sett, sem greinst hafa með alvarlegar geðraskanir, og brýnast er að þau fái viðeigandi meðferð án tafa. En það þarf einnig að taka á vanda þeirra barna, sem ekki teljast með alvarlegar raskanir, og því fyrr sem brugðist er við, því betra. Ís- lenskt þjóðfélag er lítið og náið, en er þó ekki laust við vandamál fjölda- samfélagsins. Við verðum að horfast í augu við það og velta fyrir okkur hvað er til bragðs.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.