Morgunblaðið - 13.02.2005, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2005 41
MINNINGAR
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
ÞORBJARGAR ÁRNADÓTTUR
frá Raufarhöfn.
Halldór Guðni Oddgeirsson, Lára Þorsteinsdóttir,
Árni Stefán Björnsson, Guðbjörg Þórarinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GYÐA GUÐNADÓTTIR,
Bjargi,
Stokkseyri,
sem lést föstudaginn 4. febrúar, verður jarðsungin frá Langholtskirkju
mánudaginn 14. febrúar kl. 15.00.
Erna Elíasdóttir, Gunnar Hübner,
Guðrún Elíasdóttir, Pálmi Jónsson,
Ingvar Elíasson,
Guðni Elíasson, Hafdís Rósa Bragadóttir,
Rósa Þórey Elíasdóttir og Jökull Logi,
Davíð Sigurðsson, Þorbjörg Yngvadóttir,
Helga Guðný Sigurðardóttir, Jón Haukur Ingvason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður, afa og langafa,
ARA ÁSMUNDAR ÞORLEIFSSONAR
frá Naustahvammi,
Norðfirði,
Lóurima 6, Selfossi.
Guðný Bjarnadóttir,
Dóra María Aradóttir,
Dagbjartur Ari Gunnarsson, Erla Traustadóttir,
Guðný Esther Gunnarsdóttir, Ómar Björnsson,
Ebba Guðlaug Gunnarsdóttir,
Anna María Gunnarsdóttir, Össur Björnsson,
Kolbrún Dóra Gunnarsdóttir, Oystein Bjarte Mo.
Við þökkum innilega samúð og vinarhug við
andlát og útför föður okkar og tengdaföður,
INDRIÐA ÍSFELD.
Ingþór Indriðason, Guðmunda Gunnur Guðmundsdóttir,
Gauti Indriðason, Sigurbjört Þórðardóttir
og fjölskyldur.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna
andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
GÍSLA BRYNJÓLFSSONAR
frá Króki, Norðurárdal,
Hraunbæ 164,
Reykjavík.
Fyrir hönd aðstandenda,
Oddný Daníelsdóttir.
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum
þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
vegna andláts elskulegs bróður okkar og
mágs,
KARLS ÞÓRÐARSONAR,
Háeyrarvöllum 44,
Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkra-
húss Suðurlands fyrir góða umönnun. Einnig alúðarkveðjur og þakkir til
hjálpsamra nágranna og sveitunga hins látna á Eyrarbakka.
Guð blessi ykkur.
Anna M. Þórðardóttir, Ágúst Stefánsson,
Ársæll Þórðarson, Eygló Karlsdóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
ÞURÍÐAR AXELSDÓTTUR
sjúkraliða,
Marklandi 2,
Reykjavík.
Hjartans þakkir færum við heimahjúkrun Karitas og starfsfólki líknar-
deildar LHS í Kópavogi.
Herborg Þuríðardóttir, Gunnar B. Þorsteinsson,
Matthildur Þuríðardóttir, Hólmgrímur Sigvaldason
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
SIGRÚN KRISTINSDÓTTIR,
Þangbakka 8,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 15. febrúar kl. 15.00.
Kristinn Erlendsson, Ásta Guðmundsdóttir,
Helga Erlendsdóttir, Ásmundur Gíslason,
Sigrún Erlendsdóttir, Sigurgestur Ingvarsson,
Guðrún Lísa Erlendsdóttir, Bragi Baldursson,
Sturla Erlendsson, Þóra Þórhildur Guðjónsdóttir,
Elísabet Erlendsdóttir, Björn Ásgrímsson Björnsson,
Ingunn Kristinsdóttir Þormar,
Kristín Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar,
HÓLMFRÍÐAR ÞORLÁKSDÓTTUR,
Lindasíðu 47,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Skjaldarvík
fyrir góða umönnun síðustu mánuði.
Guð blessi ykkur öll.
Eiríkur Stefánsson og fjölskylda.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, fóst-
urfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GRÍMÓLFUR ANDRÉSSON
skipstjóri
frá Stykkishólmi,
Laugarnesvegi 112,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðju-
daginn 15. febrúar kl. 13.00.
Þuríður Valgerður Björnsdóttir,
Alda Hanna Grímólfsdóttir, Valdimar Guðlaugsson,
Andrés H. Grímólfsson,
Guðrún Grímólfsdóttir, Jón Steinar Snorrason,
Anna Birna Grímólfsdóttir, Eiríkur Steinþórsson,
Hjördís Björg Andrésdóttir, Sverrir Örn Hermannsson,
afabörn og langafabörn.
Við þökkum af heilum hug auðsýnda samúð
og vinarþel við fráfall og útför elskaðs eigin-
manns míns og pabba okkar,
EINARS SVEINSSONAR
arkitekts,
Flókagötu 57,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við frábæru starfsfólki
deildar 11E á Landspítalanum Hringbraut og heimahlynningar Krabba-
meinsfélagsins.
Guðrún Eggertsdóttir,
Eggert Einarsson,
Auður Kamma Einarsdóttir.
setti svip sinn á þennan hóp umfram
aðra var töluverð fjölbreytni hvað
varðar búsetu og aldursskiptingu.
Sextán ára unglingsstúlkur úr höfuð-
borginni og aðrar af landsbyggðinni
ásamt virðulegum fjölskyldufeðrum
og félagsmálafrömuðum settust sam-
an á skólabekk með það að markmiði
að verða kennarar. Einar var mikil-
vægur hluti af þessum hópi sem átti
eftir að verja saman fjórum ógleym-
anlegum árum. Hann var hvers
manns hugljúfi sem átti virðingu og
vináttu allra. Hann var ákafleg næm-
ur á tilfinningar og líðan annarra og
ljúfmennskan var hans aðalsmerki.
Hann var listrænn og á Kennara-
skólaárunum var hann mikill áhuga-
maður um ljósmyndun og kom það
því ekki á óvart að hann héldi til náms
í arkitektúr eftir að námsárunum í
Kennaraskólanum lauk.
Við bekkjarsystkini Einars minn-
umst hans sem góðs félaga sem gott
var að vera með. Hann lét ekki fara
mikið fyrir sér og sótti ekki í sviðs-
ljósið, en var í góðra vina hópi hrókur
alls fagnaðar og mikill húmoristi.
Þegar litið er til baka er margs að
minnast. A bekkurinn brallaði margt
skemmtilegt saman. Við minnumst
meðal annars ferða í rútu á Þingvelli
og í árabát út í Viðey, auk þess sem
menn gerðu sér mat úr próflestri í
upplestrarfríum að vori með því að
vaka og læra saman á björtum vor-
nóttum. Við lestur undir próf voru
reyndar ýmsar aðferðir viðhafðar.
Eitt sinn fór Einar ásamt tveim fé-
lögum sínum í sundlaugarnar á sól-
björtum degi, með námsbækurnar, í
þeim tilgangi að lesa. Að sjálfsögðu
voru myndavélarnar hafðar með. Lít-
ið varð hins vegar úr lestrinum þenn-
an dag en aftur á móti bættist vel í
myndasafnið. Bílaeign kennaranema
var ekki eins algeng í þá daga eins og
nú er. Einar átti á þessum tíma for-
láta Toyotabíl sem auk innanbæjar-
aksturs var notaður við torfæruakst-
ur í sandhólum við Sundahöfnina, við
mikla hrifningu bekkjarbræðranna.
Síðastliðin 25 ár hefur A bekkurinn
haft þann sið að hittast árlega eina
kvöldstund í apríl, borða saman,
hlæja saman og rifja upp gamlar
minningar. Einar lét sig ekki vanta á
þessar samkomur og verður hans nú
sárt saknað.
Við sendum Guðrúnu, eiginkonu
Einars, og börnum þeirra, okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Einars Sveins-
sonar.
Bekkjarsystkini úr
Kennaraskóla Íslands.
Látinn er langt um aldur fram
vinnufélagi okkar Einar Sveinsson.
Eftir stendur minningin um sam-
starfsmann sem var í senn afar ljúfur
í umgengni og einstaklega hlýr í öllu
viðmóti.
Einar mátti líða fyrir veikindi allt
frá bernsku. Honum tókst þrátt fyrir
það að ljúka námi í arkitektúr í Dan-
mörku og nutum við samverkamenn
hans góðs af því um árabil.
Einar réðst til starfa hjá Fasteign-
um ríkissjóðs í upphafi árs 1996. Þar
áður hafði hann um langt skeið unnið
hjá Húsameistara ríkisins. Af hóg-
værð og festu vann hann að mýmörg-
um viðfangsefnum sem leysa þurfti
við breytingar á húsnæði í umsjá
Fasteigna ríkissjóðs.
Einar hafði gaman af veiðiskap og
var mikill áhugamaður um matargerð
enda þótti samstarfsmönnum hans
gott að leita til hans ef gera átti sér
dagamun. Var hann öðrum slyngari
við undirbúning veisluborðsins og
hafði sjálfur á orði að gott væri að
sofna frá matreiðslubókunum á
kvöldin.
Með þakklæti og virðingu kveðjum
við góðan félaga og samstarfsmann
og sendum Guðrúnu og börnum hans
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Einars Sveins-
sonar.
Starfsfólk Fasteigna ríkissjóðs.
Fleiri minningargreinar um Ein-
ar Sveinsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Höfundar eru: Sara og Þórólfur;
Ragnar Gunnarsson; Þuríður;
Ágúst H. Bjarnason; Sigríður P.
Friðriksdóttir og Bjarni P. Ásgeirs-
son; Samúel Örn Erlingsson; Jo-
hanna Wilson og fjölsk.