Morgunblaðið - 13.02.2005, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2005 33
UMRÆÐAN
Indversk-breska hljómsveitin DCS Safnanótt í Reykjavik Þjóðahátíð
Álfar og huldufólk GrímudansleikurHeimsdagur barnanna
Danshátíð
Vesturfarasetrið
Kvikmyndatónleikar
og margt fleiraLjósatónleikar
z
e
t
o
r
VOLVO XC 90 T6 TURBO AWD 272 hö
Sem nýr, skráður 04/04. Ekinn 5.500 km.
Innispegill með sjálfv. dimmingu, hraðanæmt vökvastýri, Subwoofer m/innb. magnara,
leðurgírstöng, regnskynjari, gaslugtir Xenon, bakkskynjari. Þvottakerfi á aðalljós,
Designline II, málmlitur, Mobilityline, innbyggður GSM-sími. Viður í stýri, stokk og
hurðum. Premium hljómtæki, 12 hátalarar, 6 diska geislaspilari. Álfelgur 18“ og
vetrardekk. Leður á sætum.
Verð kr. 6.400 þús.
Tilboð
5.790 þús.
anir á því, hvað verða má íslenskri
tungu til eflingar og langlífis sem
lifandi þjóðtunga. Hvernig á málið
að þróast? Hvað má ráða þeirri
þróun? Slíkra spurninga verður
spurt.
Áhugi á framþróun íslenskrar
tungu er hugsjónamál, brýnt póli-
tískt (félagslegt) viðfangsefni, sem
stjórnmálamönnum ber að sinna í
samstarfi við málvísindamenn,
orðlistamenn, fagstéttir ýmiss
konar og áhugamenn um mál og
menningu yfirleitt. (Í mínum
munni eru konur menn.)
Íslendingar mega ekki láta það
henda sig að leggja niður alda-
langa málræktarstefnu sína án
þess að móta aðra jafngilda, ef
slíkt er gerlegt á annað borð.
En er ekki gamla „hreintungu-
stefnan“ „det bedste man har“?
’Íslenska er ekki einsog útjöskuð húðar-
bikkja, sem strákar stel-
ast til að ríða berbakt.
Hún er taminn gæð-
ingur, sem þarfnast
virktar og virðingar.‘
Höfundur er fyrrv. alþm. og ráðherra.
ATVINNA
mbl.is
VEGABÆTUR á
Suðurlandsvegi eru
stórmál sem mikilvægt
er að ná víðtækri sam-
stöðu um að verði for-
gangsverkefni. Fjög-
urra akreina upplýstur
vegur milli Reykjavíkur
og Selfoss er stórhuga
verkefni til að koma til
móts við mikla og ört
vaxandi almenna um-
ferð og stórflutninga
sem eru á þessari leið.
Þeir sem þurfa að sam-
einast í þessu átaki eru
þingmenn Suðurkjördæmis, Reykja-
víkur og Kragans ásamt sveitar-
stjórnum á höfuðborgarsvæðinu og á
Suðurlandi. Góðar samgöngur eru
mikilvægar allri uppbyggingu, um
það eru allir sammála. Suðurlands-
vegur er ein af mikilvægustu lífæðum
höfuðborgarinnar og tengir hana við
Suðurland og Austurland.
Umferðin um Suðurlandsveg fer
stöðugt vaxandi og er í takt við þá
miklu fólksfjölgun sem á sér stað í
neðanverðri Árnessýslu og hina stöð-
ugt vaxandi sumarhúsabyggð í upp-
sveitunum. Hún er lýsandi dæmi um
þá vaxandi tengingu sem er milli
þessara svæða og höfuðborgarsvæð-
isins en þau eru í vaxandi mæli að
verða eitt atvinnusvæði. Þetta er stórt
verkefni sem mun hafa gríðarleg áhrif
á atvinnuuppbyggingu austan Hellis-
heiðar og atvinnusókn fólks á öllu
svæðinu. Lýsingin gegnir stóru hlut-
verki í að auðvelda fólki för á þessari
leið yfir vetrartímann og það gengur
ekki að henni sé ýtt út af borðinu.
Mikilvægt er að horft sé frá upp-
hafi til fjögurra akreina upplýsts veg-
ar til að öll skref í þá átt
verði markviss. Fram-
undan eru fyrstu skref-
in með framkvæmdum
við nýjan þriggja ak-
reina veg yfir Svína-
hraun en um leið þarf að
hefja framkvæmdir við
fjögurra akreina veg frá
Reykjavík og stækka
þannig trektina inn á
höfuðborgarsvæðið.
Þannig má taka skrefin
í rétta átt. Orkuveita
Reykjavíkur er í stór-
framkvæmdum á
Hellisheiði og hefur boðist til að lána
Vegagerðinni fé til að koma upp lýs-
ingu á leiðinni. Þessu tilboði Orkuveit-
unnar um samstarf á hiklaust að taka
og koma lýsingunni þannig fyrir að
hún geti nýst fjögurra akreina vegi.
Lýsingin er mikilvægt skref sem auð-
velt er að taka strax en breikkunin er
stóra málið og þarf að fara inn á vega-
áætlun næstu ára.
Horfum fram á veginn, byggjum
upp til framtíðar.
Fjögurra akreina upplýstan veg
milli Reykjavíkur og Selfoss
Sigurður Jónsson fjallar
um samgöngumál ’Lýsingin er mikilvægtskref sem auðvelt er að
taka strax en breikk-
unin er stóra málið og
þarf að fara inn á vega-
áætlun næstu ára.‘
Sigurður Jónsson
Höfundur er búsettur á Selfossi
og er einn talsmanna Vina
Hellisheiðar.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111