Morgunblaðið - 13.02.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2005 45
568 1000
F a x a f e n i 1 0
w w w . f r u m . i s — f r u m @ f r u m . i s
Tökum að okkur að setja upp prentverk,
stór sem smá. Auglýsingar, bækur, blöð,
dreifibréf, fréttabréf, nafnspjöld, tímarit
og hvað eina sem þarf að prenta.
Stang- og hreindýraveiðiferðir
til Grænlands í júlí og ágúst.
Nánari upplýsingar: Ferðaskrif-
stofa Guðmundar Jónassonar,
sími 511 1515. www.gjtravel.is.
Trésmíðavélar Til sölu afréttari,
þykktarhefill og tveggja poka sog.
Verð 300 þús. m. vsk.
Upplýsingar í síma 821 6280.
Alternatorar og startarar í báta,
bíla og vinnuvélar. Beinir og nið-
urg. startarar. Varahlþj. Hagst.
verð.
Vélar ehf.,
Vatnagörðum 16, s. 568 6625.
VW Golf 1600 Highline, árg. '02,
ek. 33 þús. álfelgur, sumar- og
vetrardekk, topplúga, spoiler,
sportsæti, skyggðar rúður. Ásett
verð 1550 þús. Áhv. ca 800 þús.
Upplýsingar í síma 669 1195.
Volvo XC, árg. '01, glæsilegur
bíll, leður, 7 sæti, sóllúga o.fl.
Verð 3.250 þús. Og Volvo 850
GLT, árg. '96. Toppbíll með öllu.
Verð 850 þús. Uppl. í símum
898 6033 og 567 6022.
Toyota Corolla SOL. Nýskr. sept.
'04. Toyota Corolla stwg. 4 mán.,
ek. 6800 km. Silfurgrár, sjsk., krók-
ur, motta í skotti. Verð kr. 2,2 m.
Sumard. á álfelgum/vetrard. á
stálf. Áhv. 1,9 m./33 þús. á mán.
Uppl. 893 6024/894 6024.
Til sölu Suzuki XL7, árg. 6/2004,
ekinn 10 þús. km, V6, 7 manna,
sjálfskiptur, hraðastillir o.fl. o.fl.
Bíllinn er alveg eins og nýr.
Verð nú 2.790 þús. Ath. skipti.
Upplýsingar hjá Toppbílum,
Funahöfða 5, sími 587 2000.
Til sölu Nissan Patrol 3,0TDi
Elegance, sjálfsk., 33", spoiler,
þakbogar, drbeisli, litað gler o.fl.,
ek. 12.000 km, steingrár. Ásett
verð kr. 4.690.000, staðgreiðslu-
afsláttur (skuldlaus).
Símar 899 7133 og 557 7133.
Til sölu M-Benz E240 07/2002.
Ekinn 26 þús., mjög vel með far-
inn, dökkblár að lit og vel búinn
aukahlutum, 16" og 18" felgur
ásamt fleiru. Verð 4.650 þús. Uppl
í s. 892 1555.
Opel Omega árg. '98. Turbo dís-
el. 5 cyl., 2,5 L. 4ra dyra. Ekinn
175 þús. Öflugur bíll á gjafverði
kr. 750 þús. Upplýsingar í síma
895 3040.
Nissan árg. '99, ek. 41 þ. km.
Primera Elegance, sjálfskiptur
með 2ja lítra vél og ýmsum auka-
hlutum. Lítið notaður og vel með
farinn frúarbíll. Bein sala. Ásett
verð 990 þús. en selst á 875 þús.
Uppl. í 690 8505.
Nissan árg. '98, ek. 120 þ. km.
Patrol 1998. Mjög gott eintak,
leður og loftlúga. Ný 35" dekk.
Breyttur fyrir 38" með læsingum,
hlutföllum og lofti. Bein sala.
Uppl. í 825 8500.
COOL torfærugrind. Til sölu er
torfærugrindin COOL ásamt vara-
hlutum og viðgerðarbíl. Grindin
er klár í keppni. Tilboð sendist á:
cool@icecool.is. Uppl. gefnar í
síma 862 2261 á kvöldin milli 20.00
og 23.00.
Ford Explorer Sport Track
Premium, árg. '02. Leður, topp-
lúga, reyklaus o.fl. Einn m/öllu.
Bílalán 1.000 þús. kr. Ek. 37 þ. km.
Skipti á ódýrari. Verð 2.690 þús.
S. 693 0802. Sjá uppl. og myndir
á www.fordexp.tk
Óska eftir góðum bíl á góðu
staðgreiðsluverði. T.d. Almera,
Golf eða Yaris.
Uppl. í síma 692 3634.
Ökukennsla
Ökukennsla, endurhæfing,
akstursmat og vistakstur.
Upplýsingar í símum 892 1422 og
557 6722, Guðbrandur Bogason.
Driver.is
Ökukennsla, aksturs-
mat og endurtökupróf.
Subaru Legacy, árg. 2004 4x4.
Björgvin Þ. Guðnason,
sími 895 3264 www.driver.is
Hjólhýsi
LMC hjólhýsi. Þau eru komin til
landsins þýsku LMC hjólhýsin.
Verða til sýnis um helgina. Opið
12-16 laugard. og sunnudag.
Víkurverk, Tangarhöfða 1,
sími 567 2357.
Almennar viðgerðir ehf.
Langar þig að taka í gegn inni
eða úti? Múra, sparsla, mála,
glerja eða smíða?
Tilboð eða tímavinna, s. 894 5251
- hermannf@simnet.is
Sætaáklæði. Verð 7.900. Hita-
mottur á framstóla 12 V. Verð
3.800-4.400. Hlífar á framstóla,
vatnsheldar. Verð 3.600. Raf-
magnsmiðstöðvar, 12 V. fyrir báta
og húsbíla.
G.S. Varahlutir,
Bíldshöfða 14. S. 567 6744.
Alternatorar og startarar í
fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar og
bátavélar. Á lager og hraðsend-
ingar. 40 ára reynsla.
Bílaraf, Auðbrekku 20,
sími 564 0400.
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum,
niðurföllum, þak- og drenlögnum
Ford Econline '95 powerstr.
Dísel, 14 manna, ek. 300 þús.
Mikið endurn. Verð 1.320.000. Til-
boð 970.000 þús. Upplýsingar í
síma 896 0859.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
hópi stofnfjáreigenda í Sparisjóði
Hólahrepps. Aðalfyrirsögnin er
Morgunblaðsins.
„Hinn 27. janúar sl. úrskurðaði
Héraðsdómur Norðurlands vestra
að lögbann skyldi lagt á ákvarðanir
um aukningu stofnfjár, sem teknar
voru á fundi stofnfjáreigenda Spari-
sjóðs Hólahrepps hinn 24. nóv.
2004. Deilt hefur verið um vinnu-
brögð og atkvæðisrétt æðstu
stjórnenda Kaupfélags Skagfirð-
inga og fyrirtækja þess á síðustu
misserum gagnvart Sparisjóðnum.
Hafa þeir beitt öllum brögðum til að
ná Sparisjóðnum undir sig.
Á fyrrgreindum fundi tókst þeim
þetta ætlunarverk sitt eftir að
stofnfjárhlutir Kaupfélagsfyrir-
tækjanna höfðu verið færðir yfir á
nokkra af lykilstjórnendum Kaup-
félagsins og fjölskyldur þeirra.
Þannig tókst tiltölulega fámennum
hópi stórra stofnfjáreigenda að
bera hina smærri og fjölmennari of-
urliði í krafti atkvæðisréttar síns.
Teljum við að ólöglega hafi verið
staðið að málum er stofnbréfin
skiptu um eigendur á stjórnarfundi
Sparisjóðsins hinn 23. nóv sl.
Við, svo kallaðir eldri stofnfjár-
eigendur, höfum viljað starfa á
grundvelli hugsjóna sparisjóðanna.
Grundvallarsjónarmið okkar er að
eignaraðild Sparisjóðsins verði
dreifð á höndum einstaklinga, en
einstök fyrirtæki nái ekki ráðandi
hlut í sjóðnum né geti ráðskast með
hann. Höfum við viljað að starfað sé
í anda laga um sparisjóði með það
að markmiði að efla sjóðinn sem
sjálfstæða fjármálastofnun sem geti
þjónað einstaklingum og smærri
fyrirtækjum í heimabyggð. Stofn-
fjáraukning hefur verið á dagskrá
undanfarin misseri, en fulltrúar
Kaupfélagsins í stjórn Sparisjóðs-
ins stóðu lengi vel í vegi fyrir henni
meðan þeir töldu aukninguna ekki
þjóna sínum hagsmunum. Nú þegar
þeir telja sig hafa náð yfirráðum yf-
ir sjóðnum og breytt nafni hans eru
þeir reiðubúnir að auka stofnféð á
sínum forsendum.
Ársreikningar Sparisjóðs Hóla-
hrepps hafa sýnt að hann hefur ver-
ið í öruggum vexti síðustu ár undir
farsælli stjórn sparisjóðsstjórans
Kristjáns Hjelm. Um mitt síðasta
ár kröfðust fulltrúar Kaupfélagsins
í stjórn Sparisjóðsins þess að Krist-
ján yrði látinn víkja, en hann hafði
varað við yfirtöku Kaupfélagsins á
sjóðnum. Með stuðningi stjórnar-
formannsins Magnúsar Brandsson-
ar var Kristján látinn víkja og
stjórnendur Kaupfélagsins fengu
ráðið hver var ráðinn í stól spari-
sjóðsstjóra. Þessu fylgdu þeir svo
eftir með stofnfjárfundinum 24.
nóv. síðastliðinn, þar sem þeir yf-
irtóku Sparisjóð Hólahrepps með
fyrrgreindum hætti og breyttu
nafni hans.
Við mótmæltum þessum yfir-
gangi harðlega og nú hefur Héraðs-
dómur Norðurlands vestra staðfest
lögbann á ákvarðanir fundarins. Við
leggjum áherslu á að unnið sé sam-
kvæmt lögum og á grunni þeirra
hugsjóna sem sparisjóðirnir byggja
tilveru sína á. Markmið okkar er að
Sparisjóðurinn fái að dafna sjálf-
stæður á eigin forsendum og á fé-
lagslegum grunni. Erum við þess
fullvissir að sá er vilji meginþorra
Skagfirðinga og fyrir því munum
við berjast.“
Bréf frá hópi stofnfjáreigenda í Sparisjóði Hólahrepps
Unnið verði á grunni
hugsjóna sparisjóðanna
OPIÐ hús verður hjá Holtablóminu –
104 listgallerí á horninu á Lang-
holtsvegi og Skeiðarvogi í dag,
sunnudag, klukkan 13–18, en breytt
hefur verið um áherslur í starfsem-
inni.
„Aukið hefur verið við úrval list-
muna eftir íslenska listamenn sem
hafa starfsaðstöðu á efri hæð versl-
unarinnar. Blóm, skreytingar og
kerti verða áfram til sölu og hinn
frábæri blómaskreytir Uffe Balslev
mun áfram útbúa gullfallegar
skreytingar og veita faglega ráðgjöf
í sambandi við fermingar, brúðkaup,
afmæli, útfarir, sýningar, útskriftir
og fleira,“ segir í fréttatilkynningu.
Listamennirnir sem verða með
vinnuaðstöðu á efri hæð verslunar-
innar eru Ásdís Þórarinsdóttir
myndlistarmaður, Inga María
Sverrisdóttir myndhöggvari og
Ingibjörg Klemenzdóttir leirlist-
armaður.
Holtablómið – 104 listgallerí er við Langholtsveg.
Opið hús í Holtablóm-
inu – 104 listgallerí