Morgunblaðið - 13.02.2005, Side 42

Morgunblaðið - 13.02.2005, Side 42
42 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Erfidrykkjur Salur og veitingar Félagsheimili KFUM & KFUK Holtavegi 28, 104 Reykjavík. Upplýsingar í síma 588 8899. www.kfum.is Sími 551 3485 • Fax 551 3645 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 896 8284 Eyþór Eðvarðsson útfararstjóri Sími 892 5057 Vaktsími allan sólarhringinn Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj, s. 691 0919 Vönduð og persónuleg þjónusta Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Sverrir Olsen Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is MOSAIK af legsteinum gegn staðgreiðslu í janúar og febrúar Sendum myndalista 15% afsláttur Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Hjartkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SVEINBJÖRG PÁLÍNA VIGFÚSDÓTTIR frá Flögu í Skaftártungu, Sóltúni 2, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánu- daginn 14. febrúar kl. 13.00. Sigrún Þuríður Runólfsdóttir, Leifur Kristinn Guðmundsson, Runólfur Birgir Leifsson, langömmubörn og langalangömmubarn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BALDUR SIGURÐSSON frá Lundarbrekku, Hrafnagilsstræti 24, Akureyri, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 7. febrúar, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 14. febrúar klukkan 13:30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Minningarsjóð til styrktar Lundarbrekkukirkju (1110-26-65, kt. 530990-2149) eða líknarfélög. Amalía Jónsdóttir, Sigurður Baldursson, Jón Stefán Baldursson, Anna Marit Níelsdóttir, Jónas Baldursson, Kristín Aðalsteinsdóttir, Jóhanna Marína Baldursdóttir, Sigurpáll Ingibergsson og barnabörn. ✝ Reynir Lárus-son fæddist í Reykjavík 27. októ- ber 1933. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 22. des- ember síðastliðinn eftir erfið veikindi. Foreldar hans voru Lárus Sigmundsson Knudsen, f. 25. október 1891, d. 24. ágúst 1968, og Sig- ríður Jónsdóttir, f. 4. mars 1895, d. 25. maí 1987. Systkini Reynis eru Hrefna, f. 1926, Sig- mundur, f. 1928, Sigurður, f. 1930, Jón, f. 1932, d. 1997, og Anna María, f. 1936. Hinn 2. júní 1957 kvæntist Reynir Huldu Hjaltadótt- ur. Þau skildu. Börn þeirra eru Hjalti, f. 1958, Jóna Birna, f. 1960, og Arnar, f. 1965. Reynir var jarð- sunginn frá Foss- vogskirkju 10. janúar. Kæri bróðir, nú ertu horfinn frá okkur og laus við allar þjáningar síð- ustu ára. Við systkinin ólumst upp á Bakkastíg 10 í Reykjavík hjá mömmu og pabba. Húsið á Bakkastíg 10 er nú búið að rífa en húsið stóð þar sem nú er athafnasvæði Stálsmiðjunnar. Höfnin og svæðið þar í kring var kjör- ið leiksvæði fyrir okkur systkinin og nýttum við okkur það óspart til úti- leikja ýmiss konar. Á bernskuheimili okkar var oft margt um manninn. Bæði voru börnin mörg og mikil gestagangur af ættingjum og vinum úr sveitinni. Þar var alltaf líf og fjör og mikið um að vera, mikið skrafað og skeggrætt, kaffi drukkið og spilað á spil. Reynir hafði mjög gaman af því að spila á spil og gerðum við mikið af því en hann vildi helst ekki tapa og beitti ýmsum brögðum til þess að vinna okkur hin. Reynir var glæsilegur ungur mað- ur, glaðvær mjög, söngelskur og kunni öll nýju lögin strax. Mér er það minnisstætt þegar vin- konur mínar voru í heimsókn hjá mér, þá spiluðum við plötur á grammófón og þú kenndir okkur að dansa, enda mjög góður dansari. Svo liðu árin og við eignumst bæði okkar fjölskyldu, maka og börn. Vinfengi var mikið milli fjölskyldna okkar enda börnin á líku reki. Á sumrin fórum við oft í tjaldferðir með börn og buru – margar fjölskyldur saman og var þá oft glatt á hjalla og varst þú þá hrókur alls fagnaðar. Þú varst alltaf greiðvikinn og hjálpsamur. Seinna, þegar þú varst orðin alvarlega veikur og ósjálf- bjarga, þá sá ég hvað það er gott að hafa svona góða og létta lund eins og þú. Kæri bróðir, þá kveð ég. Hvíl þú í friði. Blessuð sé minning þín. Þín systir Anna María. REYNIR LÁRUSSON Í dag verður vinkona mín Veronika Her- mannsdóttir frá Hellis- sandi jörðuð. Ég átti því láni að fagna að kynnast fjölskyldunni á Svalbarða fljótlega eftir að fjölskylda mín fluttist búferl- um til Hellissands. Sigríður, ein dótt- irin, varð vinkona mín og með henni fór ég að venja komur mínar á heim- ilið. Það er skemmst frá því að segja VERONIKA HERMANNSDÓTTIR ✝ Veronika Her-mannsdóttir fæddist í Miðhúsum á Hellissandi 23. júní 1918. Hún lést á Hrafnistu í Reykja- vík laugardaginn 5. febrúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Ingjalds- hólskirkju 12. febr- úar. að Veja, en það var hún alltaf kölluð, varð vin- kona mín. Um tíma vann ég svo með Lúð- vík, eiginmanni Veiju, í Kaupfélagi Hellissands. Lúðvík var einstakt ljúfmenni og hallaðist þar ekki á með þeim hjónum. Ég hugsa að fátt sé meira mannbætandi en að umgangast fólk, sem sýnir hvort öðru jafn skilyrðislausa ást og virðingu og þau gerðu, Veija og Lúlli. Mér þótti frá fyrstu tíð afskaplega vænt um Veiju. Ekki minnkaði vænt- umþykjan þegar ég eignaðist eldri son minn, en engin amma hefði getað verið honum betri en Veija var, enda þótti honum afskaplega vænt um hana. Svo fluttist ég frá Hellissandi, en kom þar alltaf í fríum og hitti þá oftast nær þessa góðu vinkonu mín. Hún var alltaf sú sama og þegar ég svo kom í heimsókn til hennar með yngri son minn, tók hún honum eins og þeim eldri. Hún var honum jafn góð og blíð og hún bókstaflega töfraði strákinn eins og henni einni var lagið. Hún átti alltaf eitthvað til þess að gleðja litla munna og hún naut þess að gefa. Veija var einstaklega blíð mann- eskja. Hún hafði heitar tilfinningar og var ekkert að fela þær. Mér fannst hún óvenjuleg að því leyti að hún var ekki í nokkrum vandræðum með að segja fólki að henni þætti vænt um það. En mikið óskaplega var það notalegt að finna þessa hlýju, þessa umhyggju og þessa löngun til að gleðja. Það hefur oft hvarflað að mér að líklega væri heimurinn snöggtum betri ef fleiri kynnu þá list að tjá hlý- hug og umhyggju með jafn eðlilegum hætti og Veija gerði. Ég er viss um að Veiju er fagnað í nýjum heimkynnum. Ég veit að Lúlli hefur tekið á móti henni og hún hefur glaðst við að hitta hann Lúlla sinn. Ég er með þessum fátæklegu orð- um að reyna að senda ofurlita þökk fyrir allt, sem þessi gæðakona gaf mér og mínum í öll þau ár sem við þekktumst. Ég veit þó að það er sama hvað ég segi, ég get aldrei lýst með orðum hvað trygglyndi og vinátta gef- ur. Það vita þeir sem notið hafa. Við hjónin, ásamt sonum okkar Árna Friðrik og Ívari sendum ástvinum Veiju innilegar samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja þau. Ólöf Markúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.