Morgunblaðið - 13.02.2005, Qupperneq 54
54 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
CLOSER
Frumsýnd
17. feb. Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
ÍSLANDSBANKI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Kl. 2 og 4. Tilboð 400 kr
VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ
20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I Í
I I
Óskarsverðlauna
Áður en hún finnur frið verður hún að heyja stríð
Fædd til að berjast þjálfuð til að drepa
Frá þeim
sem færðu
okkur X-
Men
kemur
fyrsta
stórmynd
ársins
i
f
-
f
i
Svakalega
flott
ævintýraspen
numynd með
hinni
sjóðheitu og
sexý Jennifer
Garner
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 14 ára
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i.16 ára.
Frá
fram
leiða
nda
Tra
ining
day
Þeir
þur
fa a
ð st
and
a sa
man
til a
ð ha
lda
lífi!
Fráb
ær s
pen
nutr
yllir!
Yfir 30.000 mannsfir .
Ó.Ö.H. DV
11
Sýnd kl. 10.20. Sýnd kl. 2 og 4. ÍSL TAL.
LEONARDO DiCAPRIO
Sýnd kl. 3, 5.45 og 8.
ATH! VERÐ KR. 500
Ein vinsælasta
grínmynd allra tíma
þrjár vikur á toppnum í
USA!
H.L. Mbl. Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20.
Ó.S.V. Mbl.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára
kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
3000km. að heiman. 10 eftirlifendur.
Aðeins eitt tækifæri!
Mögnuð spennumynd um baráttu
upp á líf og dauða
3000km.
að heiman.
10 eftirlifendur.
Aðeins eitt tækifæri!
Æðisleg ævintýramynd!
Baldur Popptíví Ó.H.T Rás 2
Vinsælasta myndin á Íslandi
tilnefningar til skarsver launa
.Æ.m. Besta mynd, besti leikstjri, besti
leikari-Leonardo Dicaprio, bestu aukaleikarar-
Cate Blanchett og Alan Alda.
CLOSER
Frumsýnd
17. feb.
CLOSER
Frumsýnd
17. feb.
ATRIÐI úr myndinni Ghost, þar sem elskend-
urnir Demi Moore og Patrick Swayze sitja
saman og móta leirpott, löðrandi í leirleðju á
höndunum, þykir það rómantískasta sem sést
hefur í kvikmyndunum, ef marka má nið-
urstöður könnunar sem gerð var meðal við-
skiptavina Blockbuster leigumyndakeðjunnar.
Næstrómantískasta atriðið (eða vemmileg-
asta – eftir því hversu kaldranalegur viðkom-
andi er) þykir vera þegar Leonardo DiCaprio
lyftir Kate Winslet upp í stafni Titanic og hún
lætur sem hún fljúgi.
Drottning rómantísku gamanmyndanna,
Meg Ryan, var áberandi á listanum og kom við
sögu í atriðunum sem höfnuðu í þriðja og
fjórða sæti. Í þriðja sæti varð atriðið þegar
þau Tom Hanks hittast í fyrsta sinn eftir að
hafa fallið fyrir hvort öðru á Netinu í You’ve
Got Mail og í fjórða sæti hafnaði nýárskoss-
inn hennar og Billy Crystal í When Harry
Met Sally.
Saman í fimmta sæti lentu atriði úr Sweet
Home Alabama – með Reese Witherspoon og
Josh Lucas á ströndinni – og The Wedding
Singer þegar Adam Sandler syngur með að-
stoð Billy Idol til Drew Barrymore í loka-
atriðinu í flugvélinni.
Lítið bar á atriðum úr gömlum sígildum
myndum á borð við Gone With The Wind og
Casablanca, sem þykir benda til lágs aldurs
þeirra sem þátt tóku í könnuninni.
Nú er bara að fara út á leigu og finna sér
leðjuslaginn hjá Moore og Swayze fyrir Val-
entínusardaginn sem er á morgun.
Kvikmyndir | Rómantískustu atriði kvikmyndanna
Draugarómantíkin
Ghost naut mikilla
vinsælda um gervalla
heimsbyggðina 1990.
Ást er … að drullumalla saman
Í MINNINGUNNI er talsverð reisn
yfir Árás á stöð 13, B-myndinni sem
John Carpenter gerði árið 1976. Hún
minnti meira en lítið á Rio Bravo,
gamlan og góðan vestra eftir John
Ford og vestratilfinningin er rík í
þessari endurgerð Árásarinnar á
stöð 13. Hún stendur að flestu ef
ekki öllu leyti að baki frummyndinni
(sem gaman væri að kíkja á aftur við
tækifæri.)
Að þessu sinni fer Hawke með
hlutverk Jakes Roenick, stjórans á
lögreglustöðinni í hverfi 13. Hann er
í niðurníðslu, líkt og bæði stöðin og
hverfið. Það er gamlárskvöld, síðasti
dagur lögreglustöðvarinnar sem
verður lokað á miðnætti og vaktin
býr sig undir að detta í það og hafa
það notalegt síðustu samverustund-
irnar. Þær áætlanir verða að engu
þegar veðrið versnar og stjórnendur
fangaflutningabíls leitar afdreps fyr-
ir þá og farþega sína á stöðinni. Á
meðal þeirra er Bishop (Fishburne),
svæsinn glæpaforingi og löggubani.
Meginmunurinn á mynd Carpent-
ers og Richets er einkum sá að nú
eru þeir sem ráðast á stöðina spilltir
lögreglumenn sem vilja ekki aðeins
loka túlanum á Bishop heldur verða
þeir að þagga niður í starfsbræðrum
sínum áður en borgin vaknar. Bish-
op er miskunnarlaus níðingur og
tækifærissinni sem hætt hefur sam-
vinnu við glæpagengið innan lög-
reglunnar en leggur löggunum á
stöðinni lið til að bjarga eigin skinni.
Ofbeldið minnir á sláturhús í gor-
mánuði, blóðið flýtur viðstöðulaust
og erfitt að greina í sundur löggur og
bófa. Myndin fer bærilega af stað
uns gamalkunnugir byssuhvellir og
ófrumlegt blóðbaðið tekur gjör-
samlega yfirhöndina.
Hawke er einn vonlausasti leikari
kvikmyndaborgarinnar og rann-
sóknarefni hvernig stendur á að hon-
um er falið burðarhlutverk í spennu-
mynd. Fishburne er lítið skárri en
þeim til málsbótar skal þess getið að
línurnar sem þeir fá eru ekki minn-
isstæðar. Aukahlutverkin eru betur
mönnuð, Bello og Leguizamo eru
kraftmikil að venju og gaman að sjá
þá Byrne og Dennehy, sem báðir
komu við sögu myndar Carpenters
fyrir hartnær 30 árum.
Þrátt fyrir subbuskapinn er
myndin þolanleg afþreying en til-
gangurinn óljós.
Ethan Hawke og Laurence Fish-
burne í Árásinni á stöð 13 sem minn-
ir um margt á vestrann Rio Bravo.
Löggur,
bófar og
löggubófar
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn
Leikstjóri: Jean-François Richet. Aðal-
leikendur: Ethan Hawke, Laurence Fish-
burne, John Leguizamo, Maria Bello,
Drea de Matteo, Brian Dennehy, Gabriel
Byrne. 110 mín. Bandaríkin. 2005.
Árás á stöð 13 (Assault on Precinct 13)
Sæbjörn Valdimarsson