Morgunblaðið - 30.04.2005, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞESS er minnst í Víetnam í dag að
þrjátíu ár eru liðin frá lokum Víet-
namstríðsins en borgin Saigon, sem
nú heitir Ho Chi Minh, féll í hendur
kommúnistum á þessum degi árið
1975. Fara aðalhátíðahöld vegna
þessara tímamóta einmitt fram í Ho
Chi Minh í dag.
Phan Van Khai, forsætisráðherra
Víetnams, lýsti því yfir í ræðu í gær
að Víetnamar vildu horfa til fram-
tíðar og að ríkisstjórn hans vildi
gjarnan eiga góð samskipti við
„árásaraðilana“ á næstu árum, þ.e.
þær þjóðir sem hlut hefðu átt að
stríðinu í landinu.
Þykir þetta til marks um þíðu í
samskiptum Bandaríkjanna og Víet-
nams. Er einmitt gert ráð fyrir því
að Khai heimsæki senn Bandaríkin
og yrði hann fyrsti forsætisráðherra
landsins til að koma þangað eftir lok
Víetnamstríðsins.
Talið er að þrjár milljónir Víet-
nama hafi beðið bana í hernaðar-
átökunum og 58 þúsund bandarískir
hermenn.
Þrjátíu
ár frá
stríðs-
lokum
> 9
6789:
?@AB$%
&&
89*96.$'9.6.$;)
4
% 8)3(
%
++'Y<$
7+
<9'*'* $3+-6*'$
=*61+.4 * 5
.
* 9.($+
*6*
;
<
<,-65
.
% T
8
9
$
;*
4*
' $
O. '*
;*
<*?9
<.
'
'9
+4
8 7
+
*(.
O.
*
'*
'9
8
*
%*
' .
'(
CDEFD G> : ( FEFDG>:(
H<" "& # !"$ 9
> 9G # $!"I 9&
& # 9 # ; &" )
:@J'(DEDK:?L 6(('=,'6' :+
8.596' 8-()
N? *'32+3' 8-() '. 8*'3*
6(('=)6'-3*.'5*6'*
'%*
' ./
;)
4 '3(*?4')'45
4'5*6'/'=
*8806.
96.$;)
4 '39(,'* ')'3.6.+.4
+ 83* 3' *6.'<9'*'* $3+-6
-+1'7=3. 8'= 8)3(*'
606,1
.')'.6.$;)
4 '
'7'
'(9*6'32.
9'* '*
'193
4'.6.$;)
4
34
?4'1'34-+*'
6'34.6 * *'% 8)(, /
< '9'=-6*' 3'9'* '.'4*
% 8)(* '=,'+914003*')'96.$;)
4
82 .+*6'4*+'' ')'3'134.
= 8)3(.'=8
* *')';)
4
/'= 8)3(*'
')';)
4
-49+*'
'34)6* .'
1,34'5
34
4$3-( * /'$;)
4 '9'+*63
'+*63
';)
4
9 '0634'0'5)*'% 8)(, ')'3.6.+.4 ./
% 8)3(*'
'8
?' '5)
4 3('=9
)''*'+914003.'0'$;)
4 '944
!*8'*>9 '% 8)(,193
4*'=,'6
(++'
*'
/'
*+
'+914003*')
=-8).'
1,34
Z<9'*'* [$3-( * /'%9*'$;)
4 3
1++'(9= *34.')'3(.4'
* '1' *
. 3';)
4'9 '4
(.'*9 '/'?)+
*
*
*
*
*%
*
*
%
8
(*1 3(' 8-() 7'4*+')',=+)'
4
=
?
A
?
B
? ! "
C
>
C B
B
!
C '
1 59? '3
% 8)(,
'9'.6.$
;)
4 '8
*16.'
$
8++*'75)'6'7=3. 8*' '1
.
(==
* '70'1988.34'
* *
2'=2 '124+.6'
6'5 3(2?.6/
Y//'$ 946'4*+'6
8
*1'
4'8
ÁKAFLEGA fallegur, amerískur
fugl, spætutegund, sem talin var hafa
dáið út 1920, er aftur kominn fram á
sjónarsviðið sprelllifandi. Hefur þetta
vakið furðu fuglafræðinga, sem líkja
þessu við að rekast á dúdúfuglinn í
fullu fjöri.
Frá þessu er sagt í Science og þar
kemur fram, að leitin að spætunni
hafi tekið nokkurn tíma eftir að fugla-
fræðingar fengu óljósa ábendingu
um, að til hennar hefði sést. Hefur
fundurinn vakið vonir um, að hugs-
anlega séu fleiri „útdauðir“ fuglar
enn á kreiki á einangruðum stöðum.
„Eins og að mæta sjálfum Elvis“
„Þessi fundur er svo merkilegur,
að það er erfitt að lýsa því með orð-
um,“ sagði Alistair Gammel hjá kon-
unglega, breska fuglaverndarfélag-
inu í viðtali við BBC, breska
ríkisútvarpið. „Því miður eigum við
ekki eftir að rekast á dúdúfuglinn en
þessu má næstum líkja við það.“
„Þetta er stór-, stórmerkilegt. Eins
og að mæta sjálfum Elvis á götu,“
sagði Frank Gill hjá bandaríska
fuglaverndarfélaginu.
Spætan, sem er mjög litfögur,
svört, hvít og rauð, var áður útbreidd
í suðausturhluta Bandaríkjanna og á
Kúbu. Lifði hún á og bjó um sig í
öldnum trjám en skógarhögg og vax-
andi landbúnaður þrengdu smám
saman að heimkynnum hennar.
Talið var, að fuglinn hefði dáið út
um 1920 þótt raunar hefði sést
nokkru síðar til eins kvenfugls í rúst-
um skógar, sem búið var að fella. Í
nokkra áratugi voru fuglafræðingar
og fuglaáhugamenn að svipast um
eftir spætunni fögru en vonir um að
sjá hana aftur voru löngu horfnar.
11. febrúar í fyrra var maður að
nafni Gene Sparling í kajakróðri á
friðuðu svæði, sem heitir Stóru skóg-
ar eða Big Woods í Arkansas, og þá
sá hann óvenjulega stóra spætu
fljúga að sér og setjast á nálægt tré.
Kannaðist hann ekkert við fuglinn og
hafði því samband við Tim Gallagher,
ritstjóra tímarits um fugla, sem
Cornell-háskóli gefur út.
Þegar fuglafræðingar höfðu spurt
Sparling spjörunum úr fór þá að
gruna, að þarna væri um stórtíðindi
að ræða. Fór Gallagher á vettvang og
innan mánaðar hafði hann komið
auga á fyrsta fuglinn. „Bara tilhugs-
unin um, að þessi fugl skuli hafa lifað
af, fær hárin til að rísa á höfði mér,“
segir hann. „Það er eins og líkklæð-
inu hafi verið svipt burt, eins og að sjá
Lazarus stíga upp frá dauðum.“
„Þetta er töfrafugl“
Spætan var meðal sex fuglateg-
unda, sem eru taldar hafa dáið út í N-
Ameríku eftir 1880, og ástæðan alltaf
maðurinn og eyðilegging hans á nátt-
úrunni. Þykir fundurinn undirstrika
þörfina fyrir aukna náttúruvernd og
fyrir nauðsyn þess að virða rétt ann-
arra tegunda til lífs. „Við höfum feng-
ið annað tækifæri til að tryggja fram-
tíð þessa stórkostlega fugls og þeirra
miklu skóga, sem eru heimkynni
hans,“ sagði John Fitzpatrick við
Cornell-háskóla. „Þetta er töfrafugl.“
„Eins og að sjá
Lazarus stíga
upp frá dauðum“
Fuglafræðingar ofsakátir eftir að
amerísk spæta, sem var talin útdauð
1920, kom í leitirnar sprelllifandi
Fuglinn fagri, spætan, sem var talin
útdauð í meira en 80 ár.
Washington. AP, AFP. | George W.
Bush, forseti Bandaríkjanna, hvatti í
gær þingið til að styðja breytingar á
eftirlaunakerfinu, sem hann sagði
stefna í gjaldþrot á næstu áratugum.
Ljóst er þó, að stuðningur við hugs-
anlegar breytingar er lítill, jafnt með-
al almennings sem þingmanna, þar á
meðal flokksbræðra forsetans.
Bush, sem ætlar að gera breyting-
ar á lífeyriskerfinu að einu helsta bar-
áttumálinu á síðara kjörtímabili sínu,
sagði á fréttamannafundi, sem var
sjónvarpað, að hann vildi tryggja, að
bætur láglaunafólks ykjust hraðar en
þeirra, sem betur mættu sín. Svaraði
hann þeirri gagnrýni, að allt of
áhættusamt væri að láta hluta lífeyr-
isiðgjalda renna inn á einkareikninga,
markaðsreikninga, og sagði, að þess í
stað mætti festa féð í ríkisskuldabréf-
um, sem eru öruggari en hlutabréf.
Hörð andstaða demókrata
Demókratar saka Bush um að ætla
að einkavæða eftirlaunakerfið, sem er
eins og heilög kýr í augum flestra
Bandaríkjamanna. Segja þeir líka, að
tillögur Bush muni litlu breyta um
þann vanda, sem kerfið stendur óneit-
anlega frammi fyrir, en á næstu árum
munu útgjöld þess stóraukast. Þá
munu stóru eftirstríðsáraárgangarnir
fara á eftirlaun auk þess sem vinnandi
fólki á móti hverjum lífeyrisþega fer
fækkandi í Bandaríkjunum.
Bush sagði, að vissulega ættu þess-
ar breytingar mestan þátt í hvernig
nú horfði og hann hefur viðurkennt,
að hugmyndir um einkareikninga
nægja ekki einar til að leysa vandann.
Til að vinna fylgi við tillögurnar
hefur Bush farið um landið þvert og
endilangt, haldið ræður í 60 borgum á
60 dögum, en ekkert bendir til, að það
hafi neinu breytt. Gaf hann í skyn í
gær, að hann myndi láta á málið
reyna á þingi en demókratar segjast
algerlega andvígir því, að einkareikn-
ingar verði hluti af lausninni. „Það
verða þeir þó að vera,“ sagði Bush.
Bush ver stefnu sína
í eftirlaunamálum
AÐ MINNSTA kosti 31 maður féll í fjölmörgum árásum
í Írak í gær, þar af meira en 20 í 10 bílsprengingum í
Bagdad og nágrenni. Um 100 manns særðust. Talið er,
að helsta tilefnið hafi verið myndun fyrstu lýðræðis-
lega kjörnu stjórnarinnar í Írak.
Þrettán manns týndu lífi, þar á meðal sjö hermenn
og tveir lögreglumenn, og 50 særðust í fjórum
samhæfðum bílsprengjuárásum í tveimur hverfum
Bagdadborgar í gærmorgun. Talið, að menn hafi ekið
einhverjum bílanna. Sá ljósmyndari AFP-fréttastof-
unnar leifar af hendi, sem hlekkjuð var við stýri eins
bílflaksins. Níu létust í þremur sprengjuárásum í bæn-
um Al-Madain fyrir sunnan Bagdad og einn maður í
tveimur árásum í austurhluta Bagdad.
Tíunda bílsprengjan sprakk síðan við eina mosku
sjíta á svipuðum slóðum. Olli hún litlu tjóni. Sprengjur
aðrar en bílsprengjur sprungu víða um landið og urðu
nokkrum að bana.
AP
Meira en 30 féllu í árásum í Írak