Morgunblaðið - 30.04.2005, Blaðsíða 54
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
VERIÐ VELKOMIN AFTUR
Í BRANDARAR MEÐ
HUGSANAFLUTNINGI
ÉG HEF HEYRT
HANN ÁÐUR
ÉG ER AÐ
FRJÓSA ÚR
KULDA...
FÆTURNIR Á
MÉR HAFA
BREYST Í KLAKA
EKKI FURÐA... RAFHLÖÐURNAR
Í HITASOKKUNUM
MÍNUM ERU BÚNAR
VÁ! ÞRJÚ NÝ TÍMARIT
HANDA MÉR Í DAG!
ÞAÐ ER SVO GAMAN AÐ FÁ
NÝ BLÖÐ! ÉG FÉKK FIMM
BLÖÐ Í GÆR
AF HVERJU ERTU
AÐ FÁ ÖLL ÞESSI
TÍMARIT SEND HEIM?
ÉG FÓR Á BÓKASAFNIÐ Í GÆR
OG FYLLTI ÚT ÖLL BLÖÐIN
SEM MAÐUR FINNUR Í MIÐJU
TÍMARITINU OG MERKTI VIÐ
“FÁ REIKNING HEIM”
Svínið mitt
© DARGAUD
MAMMA ÞÍN ER
KOMIN GULLI.
KOMDU
JÁ
BLESS.
ÞÚ ERT
VELKOMINN
HVENÆR
SEM ER
TAKK
TENGDÓ
BLESS
ELSKAN
SJÁUMST
BRÁÐUM
BLESS ELSKAN MÍN
ÓGEÐSLEGT!
ÓGEÐSLEGT!
ÞETTA VAR BARA
SMÁ KOSS
BLESS, BLESS
VINIR ÓFYRIR-GEFANLEGT
RÓLEG MAMMA.
ÞAU ENDURTAKA
BARA ÞAÐ SEM
ÞAU SJÁ Í
SJÓNVARPINU
JÁ, ÞETTA
ER EKKI
ALVARA
?
! ÉG VIL FÁ TYGGJÓIÐMITT AFTUR GULLI!!
Dagbók
Í dag er laugardagur 30. apríl, 120. dagur ársins 2005
Víkverji er nokkuðhugsi þessa dag-
ana, rétt eins og flesta
aðra daga, og nú yfir
auglýsingum sem
dynja á hlustum hans
og augum sýknt og
heilagt nú um stundir.
Í þeim er reynt að
sannfæra Víkverja um
það hversu auðvelt
það er nú að spara
peninga. Víkverji
hleypti brúnum yfir
þessum skilaboðum í
fyrstu, enda sjálfur
búinn að berjast í
bökkum í mörg ár og
ekki getað lagt til hliðar túskilding
með gati af laununum sínum.
„Hvernig er hægt að eyða í sparn-
að,“ hugsaði Víkverji og rann satt
best að segja nokkuð í skap yfir vit-
leysunni.
En fór síðan að leggja við hlustir.
Og varð síðan fyrir dálítilli opinber-
un. Víkverji er sem sagt búinn að
komast að því undanfarna daga að
það er ekkert auðveldara en að
spara peninga og er eiginlega alveg
rasandi yfir því að það þurfi auglýs-
ingar í öllum miðlum til að minna
fólk á að spara.
Og málið er í raun alveg grátlega
einfalt. Galdurinn er bara að skipta
sér ekki af málinu,
heldur láta aðra um að
spara fyrir sig. Vík-
verji komst að því að
það ríður ekki bagga-
muninn hvort hann
fær nokkrum þús-
undköllum minna af
laununum sínum um
hver mánaðamót til að
eyða í einhverja bölv-
aða vitleysu. Hann lét
bankann sinn þess í
stað taka peninginn og
geyma og eftir nokkra
mánuði var hann bú-
inn að steingleyma því
að það var tekin
ákveðin upphæð af honum í sparnað.
Og allt í einu situr Víkverji uppi
með dágóðan slatta af peningum
sem hann satt best að segja veit ekk-
ert hvað hann á að gera við. Það er
vandamál sem Víkverji hefur ekki
staðið frammi fyrir í annan tíma og
er nú að velta fyrir sér hvort ekki sé
nú kominn tími til að kaupa loksins
garðhúsið eða fara í laxveiði eða end-
urnýja hjól dótturinnar og nú er víst
málið að kaupa hlutabréf og svo eru
tilboðin frá ferðaskrifstofunum hag-
stæð, það er víst líka gaman að eiga
svona fellihýsi og bíllinn er orðinn
gamall og þarf ekki líka að kaupa
parket á stofuna …
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Gegn vímuefnum | Barna- og unglingakórar Breiðholtskirkju flytja
söngleikinn Með hamingjuna í handarkrikanum eftir Janeen Brady í dag
kl. 17. Söngleikurinn, sem verður fluttur á sviði Breiðholtsskóla, fjallar
um hættuna við að ánetjast eiturlyfjum, vináttuna og mikilvægi góðs
sjálfsmats. Börnin leika á als oddi í leik, söng og dansi ásamt því að
koma góðum boðskap til skila til áhorfenda. Stjórnandi er Ásta Bryndís
Schram, stjórnandi kóranna, en hún þýddi og staðfærði einnig söngleik-
inn. Undirleikari er Keith Reed, en tækni- og ljósamaður er Jónas
Sturla Gíslason.
Með hamingjuna
í handarkrikanum
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Halt þú þeirri trú, sem þú hefur með sjálfum þér fyrir Guði. Sæll er sá,
sem þarf ekki að áfella sig fyrir það sem hann velur. (Róm. 14, 22.)