Morgunblaðið - 30.04.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 57
MENNING
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Árskógar 4 | Handverkssýning frá kl.
13 til 16.30. Kaffi og gott meðlæti frá
kl. 14. Skemmtiatriði. Allir velkomnir.
Breiðfirðingabúð | Fundur verður
haldinn mánudaginn 2. maí kl. 20.
Efni fundarins er um fyrirhugaða vor-
ferð félagsins.
Ellimálaráð Reykjavíkurprófasts-
dæma | Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastsdæma og Ellimálanefnd
Þjóðkirkjunnar efna til sumardvalar
fyrir eldri borgara á Löngumýri í
sumar. Boðið er upp á fimm daga dvöl
frá mánudegi til föstudags. Um er að
ræða tvo hópa í júní og einn í júlí.
Upplýsingar á skrifstofu Ellimálaráðs
f.h. virka daga, s. 557 1666.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Nokkur sæti laus vegna forfalla í Fær-
eyjaferð 24. maí. Almennur fé-
lagsfundur FEB verður á Grand hóteli
þriðjudaginn 3. maí n.k. kl. 13.30–
16.30. Skráning á skrifstofu FEB í s.
588 2111.
Félagsstarf Gerðubergs | Mánudag-
inn 2. maí kl. 13.30 heimsókn frá Ár-
túnsskóla, Pétur Finnbogason og
Saga Unnsteinsdóttir, þátttakendur í
stóru upplestrarkeppninni, lesa sjálf-
valið efni. Elínborg Friðriksdóttir
syngur nokkur lög.
Hraunsel | Þriðjudaginn 3. maí verð-
ur farin ferð í Krýsuvík og Bláa lónið.
Lagt af stað kl. 12 frá Hraunseli.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Í dag er námskeið í list-
þæfingu kl. 9–12. Gönguhópur Háa-
leitishverfis leggur af stað í göngu kl.
10. Boðið upp á teygjuæfingar og
vatn að lokinni göngu. S. 568 3132.
Kvenfélagið Heimaey | Lokakaffi
verður í Súlnasal Hótels Sögu sunnu-
daginn 1. maí kl. 14.
SÁÁ félagsstarf | Síðasta spilakvöld
vetrarins verður laugardaginn 30.
apríl kl. 20 í sal I.O.G.T að Stangarhyl
4. Að lokinni spilamennsku verður
dansað.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu | Félagsheimilið, Há-
túni 12. Aðalfundur Sjálfsbjargar, fé-
lags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu,
kl. 14.
Vesturgata 7 | Flóamarkaður verður
miðvikudaginn 4. maí og föstudaginn
6. maí frá kl. 13–16 báða dagana.
Kirkjustarf
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund alla laugardaga kl. 20.
Einnig er bænastund alla virka
morgna kl. 7–8. Allir velkomnir.
Kristniboðssambandið | Hin árlega
kaffisala Kristniboðsfélags kvenna
verður í Kristniboðssalnum að Háa-
leitisbraut 58–60 sunnudaginn 1. maí
kl. 14–18. Kaffiveitingar. Ágóðinn
rennur til kristniboðsins.
Í FRÉTT blaðsins í gær um Nýja söngskólann Hjartansmál urðu þau mis-
tök að í texta með mynd af nemendum skólans var sagt að þar væru kenn-
ararnir. Hér birtist rétta myndin af kennurunum og er beðist velvirðingar
á mistökunum.
Morgunblaðið/Þorkell
Kennarar við Nýja söngskólann
DÓMKIRKJUKÓR Gautaborgar
heldur þrenna tónleika á Íslandi og
verða fyrstu tónleikarnir í Lang-
holtskirkju sunnudaginn 1. maí kl.
17.00. Þriðjudaginn 3. maí syngur
kórinn í Reykholtskirkju kl. 20.30 og
miðvikudaginn 4. maí verða tón-
leikar í Norræna húsinu kl. 20.00.
Dagskráin verður breytileg eftir
tónleikastöðum og sérstök dagskrá
verður afhent á hverjum tónleika-
stað fyrir sig. Auk þessara tónleika
syngur kórinn við hátíðarmessu í
Hallgrímskirkju á uppstigning-
ardag, 5. maí, kl. 11.00.
Dómkirkjukórinn í Gautaborg
undir stjórn Ann-Marie Rydberg er
stór þáttur í tónlistarlífi Gautaborg-
ar. Efnisskrá kórsins spannar yfir
tónlist frá mismunandi tímabilum,
bæði söngverk og stærri kirkjuleg
verk með hljómsveit. Kórinn syngur
einnig nýleg norræn kórverk.
Norræn lýrik einkennir tónleika-
dagskrána sem Dómkirkjukór
Gautaborgar mun flytja á Íslandi.
Meðal tónskálda eru Stenhammar,
Sven-Eric Johanson og Söderman
ásamt nýsaminni tónlist fyrir orgel
og dansara eftir dómorganistan
Bengt Nilsson. Dansarinn Jantje
Groenwold er með í för. Kórinn hef-
ur sungið inn á nokkra hljómdiska
og ferðast m.a. um Bandaríkin og
mörg Evrópulönd, síðast til Frakk-
lands sumarið 2004.
Dómkirkjukór Gautaborgar
í heimsókn
Í NÁTTÚRUFRÆÐISTOFU
og Bókasafni Kópavogs stendur
nú yfir samsýning sjö íslenskra
listamanna sem ber heitið Ís-
lensk samtímaglerlist.
Listamennirnir eru Brynhild-
ur Þorgeirsdóttir, Jón Jóhanns-
son, Jónas Bragi Jónasson, Pía
Rakel Sverrisdóttir, Rakel
Steinarsdóttir, Sigríður Ás-
geirsdóttir og Sigrún Ó. Ein-
arsdóttir og eiga þau það sam-
eiginlegt að vinna verk sín að
miklu eða öllu leyti í gler. Sýn-
ingin hefur hlotið mikið lof og
verður hún framlengd til loka
maí.
Afgreiðslutími náttúru-
fræðistofu og bókasafns er sem
hér segir:
Mánudaga – fimmtudaga kl.
10–20, föstudaga kl. 11–17 og
laugardaga og sunnudaga kl.
13–17.
Samsýning sjö ís-
lenskra listamanna
framlengd í Kópavogi
KÓR Akureyrarkirkju fagnaði 60
ára afmæli sl. sunnudag með hátíð-
artónleikum á Kirkjulistaviku 2005 í
Akureyrarkirkju.
Á efnisskránni var m.a. Messa í
fís-moll op. 36 fyrir tvo kóra og tvö
orgel. Flytjendur voru auk kórsins;
Kammerkór Norðurlands, sönghóp-
urinn Voces Thules, organistarnir
Björn Steinar Sólbergsson og Eyþór
Ingi Jónsson og gestastjórnandi var
Hörður Áskelsson.
Messan verður flutt öðru sinni í
heild við messu kl. 11 í Hallgríms-
kirkju í Reykjavík sunnudaginn 1.
maí.
Kór Akureyrarkirkju var form-
lega stofnaður árið 1945. Stjórnandi
frá upphafi og til ársins 1986 var
Jakob Tryggvason, fyrrverandi org-
anisti Akureyrarkirkju. Arftaki hans
og núverandi stjórnandi er Björn
Steinar Sólbergsson. Kórinn syngur
við reglulegt helgihald í Akureyr-
arkirkju. Annar mikilvægur þáttur í
starfi kórsins er sjálfstætt tónleika-
hald sem hefur borið hann víðsvegar
um landið með þátttöku m.a. í
kirkjuvikum og kirkjulistavikum
bæði á Akureyri og í Reykjavík.
Einnig hefur kórinn farið í tónleika-
ferðir til Danmerkur, Kanada,
Frakklands, Slóveníu og Þýska-
lands. Mikil áhersla er lögð á flutn-
ing á „a capella“ tónlist (kórsöngur
án undirleiks) en auk þess flytur
kórinn reglulega stærri verk og hef-
ur m.a. flutt messur eftir Haydn,
Mozart, Schubert, Kodály og Goun-
od, Requiem eftir Gabriel Fauré,
Magnificat eftir J.S. Bach, Gloriu
eftir Francis Poulenc, Missa di
Gloria eftir Puccini og Sköpunina
eftir Haydn. Kórinn hefur sungið
inn á tvær hljómplötur og haustið
1997 kom út geisladiskurinn Dýrð –
Vald – Virðing, í samvinnu við Skál-
holtsútgáfuna.
Kór Akureyrarkirkju ásamt stjórnanda, Birni Steinari Sólbergssyni.
Kór Akureyrarkirkju
í Hallgrímskirkju
Hjolalestin
Fimmtudaginn, 5. maí
Nauthólsvík – Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Hjólað til Nauthólsvíkur frá eftirtöldum stöðum.
Lagt af stað kl. 12.00.
Frá Spönginni - viðkoma á Gullnesti/Olís kl. 12:30
Frá Smáratorg - viðkoma við Sundlaug Kópavogs kl. 12:30
Frá Mjódd til Nauthólsvíkur
Klukkan 13.00 leggur hjólalestin af stað
í fylgd vetnisstrætó úr Nauthólsvík
Leiðin Nauthólsvík - Húsdýragarður
Nauthólsvík – Suðurgata – Aðalstræti – Grófin – Geirsgata –
Kalkofnsvegur – Sæbraut – Kringlumýrarbraut –Sundlaugarvegur
– Reykjavegur - Húsdýragarður
Dagskrá í Fjölskyldu- og húsdýragarði kl. 14
Stutt og hressileg ávörp lestarstjóra
Lína langsokkur kíkir við og sprellar og dregur í happa-
drætti um glæsileg hjólreiðaverðlaun frá Húsasmiðjunni.
Landsbjörg verður með ráðleggingar varðandi öryggisatriði
í umferðinni.
Ókeypis ferðir með vetnisstrætó úr Húsdýragarðinum
kl. 15:30 í Nauthólsvík, Spöngina, Mjódd og á Smáratorg.
Allir þeir sem mæta á hjóli með hjálm í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinn fá ókeypis aðgang og happdrættismiða.
Allir velkomnir!
Í tilefni af fyrirtækjakeppninni Hjólað í vinnuna 2.-13. maí