Morgunblaðið - 30.04.2005, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Kirkjudagur
aldraðra
UPPSTIGNINGARDAGUR er
kirkjudagur aldraðra í kirkjum
landsins. Þá er eldri borgurum og
fjölskyldum þeirra boðið til guðs-
þjónustu. Aldraðir taka virkan
þátt í guðsþjónustunni með söng
og upplestri. Á eftir er boðið upp á
veitingar. Í nokkrum kirkjum eru
sýningar á verkum sem eldri borg-
arar hafa unnið í vetrarstarfinu.
Útvarpsguðsþjónusta þennan dag
verður frá Grensáskirkju.
Ellimálanefnd þjóðkirkjunnar
hvetur alla til að koma í kirkju á
uppstigningardag. Þar geta þeir
kynnt sér það sem er í boði fyrir
eldri borgarana og notið dagsins
með þeim.
10 ára vígsluafmæli
Vídalínskirkju
UM þessar mundir eru 10 ár liðin
frá því að Vídalínskirkja í Garða-
bæ var vígð af biskupi Íslands,
herra Ólafi Skúlasyni. Kirkjan ber
nafn Jóns Vídalíns (1666–1720) en
hann var prestur í Görðum á Álfta-
nesi áður en hann varð biskup í
Skálholti.
Í tilefni af vígsluafmæli Vída-
línskirkju efnir Garðasókn til Ví-
dalínshátíðar sem hefst með hátíð-
armessu sunnudaginn 1. maí kl. 11
f.h. Vígslubiskupinn í Skálholti,
herra Sigurður Sigurðarson mun
prédika og prestar Garðasóknar,
Hans Markús Hafsteinsson og
Friðrik J. Hjartar munu þjóna
ásamt biskupi.
Tónlist sem flutt verður í mess-
unni verður öll eftir tónskáld sem
uppi voru á sama tíma og Jón Ví-
dalín. Flytjendur tónlistar verða
Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran,
víólukvartett, Peter Tompkins
óbóleikari, Jóhann Baldvinsson
organisti og Kór Vídalínskirkju.
Sigurður Sigurðarson, vígslu-
biskup predikar.
Fundur með
foreldrum
fermingarbarna
SUNNUDAGINN 1. maí verður
fundur með foreldrum ferming-
arbarna vorsins 2006. Guðsþjón-
usta verður kl. 11.00 og í beinu
framhaldi af henni verður fundur
þar sem foreldrum/aðstandendum
fermingarbarna vorsins 2006 verð-
ur kynnt fræðsluáætlun vetrarins.
Á eftir fundinn verður skráning í
fermingarnámskeiðið.
Námskeið
um meðvirkni
ÍSLENSKA Kristskirkjan heldur
námskeið um meðvirkni laug-
ardaginn 30. apríl frá kl. 10–12.
Fjallað verður um: Hvað er með-
virkni? Var Jesús meðvirkur?
Hvernig verður maður meðvirkur?
Er hægt að losna undan með-
virkni? Fyrirlesari er Ingunn
Björnsdóttir. Námskeiðið er öllum
opið og kostar ekkert.
Lokahátíð
barnastarfs
Langholtskirkju
LOKAHÁTÍÐ barnastarfs Lang-
holtskirkju verður sunnudaginn 1.
maí kl. 11 og af því tilefni verður
margt til gamans gert og m.a. boð-
ið upp á grillaðar pylsur í lokin.
Við guðsþjónustuna mun einn af
kórum Langholtskirkju, Graduale
Nobili syngja, en kórinn, sem er
skipaður ungum konum á aldr-
inum 18–26 ára.
Grafarvogskirkja –
1. maí – uppstigning-
ardagur – námskeið
ÖGMUNDUR Jónasson, alþing-
ismaður og formaður BSRB, stígur
í stólinn í Grafarvogskirkju,
sunnudaginn 1. maí nk. Messan
hefst kl. 11. Prestur er sr. Bjarni
Þór Bjarnason. Organisti er Hörð-
ur Bragason. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur.
Uppstigningardagur er dagur
eldri borgara. Guðsþjónusta verð-
ur kl. 14.00. Ath. breyttan messu-
tíma. Séra Sigurður Sigurðarson
vígslubiskup prédikar.
Allir prestar safnaðarins þjóna
fyrir altari: séra Vigfús Þór Árna-
son, séra Bjarni Þór Bjarnason,
séra Lena Rós Matthíasdóttir og
séra Elínborg Gísladóttir. Kór
Grafarvogskirkju syngur, org-
anisti er Hörður Bragason. Opnuð
verður handavinnusýning eldri
borgara. Að lokinni guðsþjónustu
verður kaffi og veitingar sem
Safnaðarfélagið og sóknarnefndin
býður upp á.
Grafarvogskirkja heldur nám-
skeið fyrir starfsfólk leikskólanna
í Grafarvogi í dag kl. 10–13.15.
Námskeiðið er í boði Grafarvogs-
kirkju og er því starfsfólki leik-
skólanna að kostnaðarlausu. Nám-
skeiðið fer fram í
Grafarvogskirkju. Ingileif Malm-
berg, sjúkrahúsprestur flytur fyr-
irlestur um áfallahjálp í leik-
skólum og hagnýtar leiðbeiningar
til starfsfólks. Þá mun sr. Sigurður
Pálsson, sóknarprestur og fyrrver-
andi námsstjóri í kristnum fræð-
um, fjalla um leikskólann í fjöl-
menningarsamfélagi.
Strandarkirkja,
opin um helgar
STRANDARKIRKJA verður opin
allar helgar og frídaga í maí-
mánuði. Frá og með 1. júní verður
hún opin alla daga vikunnar.
Sunnudaginn 1. maí kl. 15.00 mun
sóknarpresturinn séra Baldur
Kristjánsson fræða um kirkjuna og
umhverfi hennar. Í Selvoginum er
rekið lítið kaffihús, listasmiðja og
pylsuvagn þar sem einnig fást
handunnir munir.
Vorhátíð í Fella-
og Hólakirkju
VORHÁTÍÐ barna- og unglinga-
starfsins kl. 11.00. Prestar sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson og sr.
Svavar Stefánsson. Barnakórar
kirkjunnar ásamt barnakór
Hvassaleitisskóla flytja tónlist.
Stjórnendur Lenka Mátéová, Þór-
dís Þórhallsdóttir og Kolbrún Ás-
grímsdóttir.
Öll börn og unglingar sem tekið
hafa þátt í starfi kirkjunnar í vetur
eru boðin velkomin ásamt fjöl-
skyldum sínum.
Kaffisala Kristniboðs-
félags kvenna
HIN árlega kaffisala Kristniboðs-
félags kvenna verður í Kristni-
boðssalnum á Háaleitisbraut 58–60
sunnudaginn 1. maí kl. 14–18.
Kaffiveitingar.
Félagið hefur stutt starfið í Eþí-
ópíu og Kenýa dyggilega, ein af
fjáröflunarleiðum þess er hin ár-
lega kaffisala.
Vorferðalag
Hafnarfjarðarsóknar
SUNNUDAGINN 1. maí fer Hafn-
arfjarðarsókn í vorferðalag í Skál-
holt. Ferðalagið er uppskeruhátíð
foreldramorgnanna, barnastarfs-
ins, starfs tíu til tólf ára barna,
barna- og unglingakóra kirkj-
unnar og annarra sem taka þátt í
kirkjustarfinu. Lagt af stað frá
Hafnarfjarðarkirkju kl. 11.00 og
ekið í Skálholt. Kl. 12.00 verður
fjölskylduguðþjónusta í Skálholts-
kirkju þar sem leiðtogar í barna-
og æskulýðsstarfi leiða söng. Eftir
fjölskylduguðsþjónustuna er boðið
til pitsuveislu í Skálholtsskóla. Að
því búnu verður farið í leiki á Skál-
holtstúninu ef veður leyfir. Áætluð
heimkoma er kl.15.30. Leið-
sögumaður er sr. Þórhallur Heim-
isson. Börn yngir en 8 ára komi í
fylgd með fullorðnum.
Messa
á Þingvöllum
HINN almenni bænadagur er
fimmti sunnudagur eftir páska.
Hann ber að þessu sinni upp á 1.
maí, dag verkalýðsins, sem einnig
er sérstakur bænadagur þar sem
beðið er fyrir öllu vinnandi fólki og
fyrir atvinnulausum. Þessa verður
minnst við messu í Þingvallakirkju
kl. 14.00. Prestur er sr. Kristján
Valur Ingólfsson og organisti Guð-
mundur Vilhjálmsson. Guðmundur
stjórnar einnig lítilli blásarasveit
barna sem eru nemendur í Skóla-
lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts.
Þau leika við upphaf og endi mess-
unnar. Þegar messu er lokið verð-
ur gengið í skrúðfylkingu á Lög-
berg og að Öxarárfossi. Á þessum
stöðum leikur lúðrasveitin, og end-
ar á því að leika Öxar við ána við
Öxarárfoss, en í ár (27. júní) eru
einmitt 120 ár síðan það lag var
frumflutt á þeim stað.
Kirkjudagur
Kálfatjarnarkirkju
KIRKJUDAGURINN hefst með
guðsþjónustu í kirkjunni kl. 14, en
þar mun Ólafur Egilsson sendi-
herra flytja hugvekju, kór Kálfa-
tjarnarkirkju leiðir söng ásamt
Veru Steinsen fiðluleikara undir
stjórn Frank Herlufsen organista.
Prestur sr. Carlos Ferrer.
Kirkjukaffi verður í félagsheim-
ilinu Glaðheimum, Vogum, að
guðsþjónustu lokinni.
Dagur aldraðra
í Grensáskirkju
UPPSTIGNINGARDAGUR er dag-
ur aldraðra í kirkjunni. Að þessu
sinni ber hann upp á næstkomandi
fimmtudag, 5. maí.
Þann dag verður guðsþjónustu í
Grensáskirkju í umsjá sókn-
arprestsins, sr. Ólafs Jóhanns-
sonar. Auk aðildar kirkjukórs og
organista að helgihaldinu syngur
Furugerðiskórinn undir stjórn
Ingunnar Guðmundsdóttur.
Að guðsþjónustu lokinni verður
sameiginlegur málsverður í safn-
aðarheimili. Þátttaka í honum
kostar kr. 1.500.
Málfundur um
líðan stráka og
ungra karlmanna
„LÍÐAN drengja og ungra karl-
manna“ er yfirskrift málþings á
vegum KFUM og KFUK í Reykja-
vík sem haldið verður í húsi félags-
ins, Holtavegi 28, laugardaginn 30.
apríl kl. 11–13. Fyrirlesarar verða
Ingólfur V. Gíslason jafnrétt-
isfulltrúi sem mun m.a. fjalla um
breytingar á karlmannsímyndum
sl. 30 ár og Gunnar J. Gunnarsson,
lektor við Kennaraháskóla Íslands,
er mun m.a. ræða um drengi og
trúariðkun. Auk þess munu Ragn-
ar Snær Karlsson, æskulýðsfulltrúi
KFUM og KFUK, og Ársæll Að-
albergsson, framkvæmdastjóri
sumarbúðanna í Vatnaskógi, fjalla
um líðan stráka eins og hún birtist
á vettvangi KFUM og KFUK.
Kjartan Jónsson mun segja stutt-
lega frá nýlegum rannsóknum á
líðan stráka.
Gospelkórinn
og hljómsveit í
Léttmessu
í Árbæjarkirkju
Sunnudagskvöldið 1. maí kl. 20.00
er komið að síðustu Léttmessu
starfsársins í Árbæjarkirkju.
Gospelkór Árbæjarkirku leiðir
sönginn undir stjórn Krisztina
Kalló Szklenár. Egill Antonsson
spilar á flygil, Sigurjón Alexend-
ersson á gítar og Jón Óskar Jóns-
son sem slær húðir. Sr.
Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir
altari og flytur hugvekju en fé-
lagar úr Gospelkórnum lesa ritn-
ingarlestra og leiða almenna
kirkjubæn. Eftir messu verður
gospelkórinn svo með í kaffihlað-
borð í boði fyrir 500 kr. á manninn,
í safnaðarheimilinu.
Fræðslu- og sam-
ræðukvöld í Fríkirkj-
unni í Reykjavík
MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 2. maí kl.
20.00 verður fræðslu- og sam-
ræðustund í Safnaðarheimilinu.
Verður þetta fjórða og síðasta
fræðslukvöldið á þessari vorönn.
Umfjöllunarefnið 2. maí verður:
„Eru konur skapaðar með minni
dómgreind en karlar?“ Fjallað
verður almennt um stöðu kon-
unnar í kristinni trúarhefð og í
ritningunum.
Sumarhátíð barna-
og æskulýðsstarfs
Laugardaginn 30. apríl kl. 13.00
verður sumarhátíð barna- og
æskulýðsstarfs Lágafellskirkju.
Þangað eru allir velkomnir sem
tekið hafa þátt í safnaðarstarfi
kirkjunnar þetta starfsár. Sum-
arhátíð þessi er lokasamvera
sunnudagaskóla, kirkjukrakka,
TTT-starfsins og æskulýðsfélags-
ins. Farið verður í leiki og pylsur
grillaðar handa öllum þátttak-
endum. Í lok samverunnar verður
stutt söng- og bænastund í safn-
aðarheimilinu. Sumarhátíðin verð-
ur eins og áður segir í og við safn-
aðarheimili kirkjunnar. Allir
velkomnir.
Safnaðarstarf Lágafellskirkju,
Mosfellsbæ.
Hátíðarmessa
í Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 1. maí verður há-
tíðarmessa og barnastarf í Hall-
grímskirkju kl. 11.00. Flutt verður
Messa í fis moll op. 36 eftir Charles
Marie Widor.
Messan var flutt sl. sunnudag í
Akureyrarkirkju á listahátíð þar,
en verður endurflutt í Hallgríms-
kirkju með sömu flytjendum, en
þeir eru Kór Akureyrarkirkju,
Kammerkór Norðurlands og Söng-
hópurinn Voces Thules. Organist-
arnir Björn Steinar Sólbergsson
og Eyþór Ingi Jónsson leika á bæði
orgel kirkjunnar en stjórnandi
verður Hörður Áskelsson kantor.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari ásamt
sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur.
Magnea Sverrisdóttir hefur um-
sjón með barnastarfinu. Eftir
messu verður boðið upp á kaffi-
sopa.
Gospelkór Árbæjarkirkju ásamt
hljómsveit í Léttmessu.
Morgunblaðið/SverrirÞingvallabærinn og kirkjan.