Morgunblaðið - 30.04.2005, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
KEAHÓTEL ehf. hafa tekið Hótel Borg á
leigu til 15 ára og gengið til samstarfs við
veitingastaðinn Einar Ben. um veitinga-
þátt hótelsins. Ólafur Þorgeirsson hefur
verið ráðinn hótelstjóri Hótels Borgar.
Páll L. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri
Keahótela ehf., segir að fyrirtækið sé að
fjölga hótelum í keðjunni og að færa út
kvíarnar á höfuðborgarsvæðinu, með leig-
unni á Hótel Borg. Keahótel komu inn á
Reykjavíkurmarkaðinn 2002 með Hótel
Björk. Keahótelin eru með sameiginlega
bókunarmiðstöð, en að sögn Páls verður
lögð áhersla á að Hótel Borg haldi sér-
stöðu sinni, enda hótelið með sterka ímynd
og markaðsstöðu.
„Bókunarstaða hótelsins er mjög góð og
hefur verið það undanfarin ár. Nýting
Hótels Borgar hefur verið langt yfir með-
altali fjögurra stjörnu hótela í Reykjavík.
Staðsetningin og orðsporið hjálpa þar til,
þetta er elsta og rótgrónasta hótelið. Eins
konar flaggskip í hótelgeiranum,“ sagði
Páll. „Okkur finnst mikill heiður að fá að
reka Hótel Borg. Það eru spennandi tímar
framundan hvað varðar breytingar á hót-
elinu.“
Hótel Borg stækkar
Efstu hæð Hótels Borgar verður breytt
og hefjast framkvæmdir í nóvember næst-
komandi. Svítum og herbergjum verður
fjölgað þannig að eftir breytingarnar
verða hótelherbergin 56, þar af tíu svítur.
Svíturnar verða með glæsibrag og sú
stærsta getur verið allt að 150 m2 og með
setustofu í turni hótelsins. Einnig er verið
að kanna möguleika á stækkun Hótels
Borgar inn á baklóð. Með því mun her-
bergjum fjölga um rúman helming. Sú
stækkun er til skoðunar hjá borgaryfir-
völdum.
Hótel Borg er nú í meirihlutaeigu Aðal-
steins Karlssonar, Guðmundar Birgissonar
og Lárusar Blöndal. Keahótel ehf. er í
eigu Greifans eignarhaldsfélags ehf. á Ak-
ureyri. Það á einnig Veitingahúsið Greif-
ann ehf., Endurhæfingarstöðina ehf. og
Fasteignafélag Greifans ehf. Keahótel
reka nú sex hótel. Auk Hótels Borgar eru
það Hótel Kea, Hótel Harpa og Hótel
Norðurland, sem öll eru á Akureyri, Hótel
Björk í Reykjavík og Hótel Gígur í Mý-
vatnssveit.
Keahótel leigja Hótel Borg til 15 ára
Hótel Borg, fyrir og eftir breytingu. Minni
myndin sýnir þakhæðina fyrir breytingu en á
þeirri stærri má sjá hvernig búið er að stækka
rishæðina við kvistina. Páll Hjaltason arkitekt
hjá + arkitektum hannaði breytinguna.
Tölvumynd/+ arkitektar
„MEÐ þessu sýnum við landsmönnum öllum
að ofbeldi er eitthvað sem við viljum ekki
láta bjóða okkur,“ sagði Valdís Anna Jóns-
dóttir, einn Birtingarfélaga, en Birting, hóp-
ur ungs fólks á Akureyri, stóð síðdegis í gær
fyrir mótmælastöðu á Ráðhústorgi. Þessi
næstsíðasti dagur aprílmánaðar var í kald-
ara lagi, en Akureyringar létu það ekki á sig
fá, þeir fjölmenntu á torgið og tóku við rauð-
um spjöldum sem dreift var á svæðinu. Tón-
listarmaðurinn KK lék nokkur lög en síðan
sameinuðust þátttakendur í þriggja mínútna
þögn, með rauð spjöld á lofti.
Með mótmælastöðunni vildi unga fólkið
senda stjórnvöldum og almenningi skýr
skilaboð og vekja menn til umhugsunar um
hversu víðtækur vímuefnavandinn er.
Mikil umræða hefur verið á Akureyri und-
anfarna daga í kjölfar frétta um hrotta-
fengnar líkamsárásir þar sem fíkniefni koma
við sögu. Nú hefur áhugahópur um forvarnir
boðað til borgarafundar í Ketilhúsinu á
þriðjudag, þar sem ræða á með hvað hætti
hægt er að draga úr eða stöðva ofbeldi og
vímuefnavandann.
Morgunblaðið/Kristján
Yfir eitt þúsund Akureyringar, sem mættu á Ráðhústorg í gær, voru sammála um að gefa ofbeldinu rauða spjaldið.
Ofbeldið
fékk rauða
spjaldið
FORSVARSMENN Straums Fjárfestingar-
banka hf. hafa sent Fjármálaeftirlitinu er-
indi þar sem óskað er eftir því að Fjármála-
eftirlitið taki til skoðunar þá atburðarás sem
átti sér stað er stjórn Íslandsbanka seldi ein-
um stjórnarmanna bankans stóran hlut í
Sjóvá.
Sem kunnugt er hafði Straumur áður lýst
áhuga bæði skriflega og munnlega við for-
svarsmenn Íslandsbanka á því að fá að bjóða
í eignarhlut bankans í Sjóvá.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
sendir Straumur sem hluthafi í Íslandsbanka
þetta erindi til Fjármálaeftirlitsins með það
fyrir augum að fá úr því skorið hvort eðli-
lega og réttlátlega hafi verið að sölunni stað-
ið og að hún sé í samræmi við lög sem varða
málið.
Óska úr-
skurðar um
sölu Sjóvár
KOSTNAÐUR við rekstur Land-
spítala – háskólasjúkrahúss
(LSH) á föstu verðlagi hefur stað-
ið í stað frá sameiningu sjúkra-
húsanna árið 2000, að sögn Önnu
Lilju Gunnarsdóttur, fram-
kvæmdastjóra fjárreiðna og upp-
lýsinga á LSH, en hún skýrði frá
ársreikningi spítalans fyrir árið
2004 á ársfundi í gær. Voru gjöld
spítalans 23.870 milljónir árið
2000 og 24.028 milljónir á síðasta
ári. Er þá frádreginn kostnaður
vegna S-merktra lyfja sem færð-
ist til LSH frá Tryggingastofnun
ríkisins árið 2001 og kostnaður við
byggingu Barnaspítala Hrings-
ins. Þetta gerist, að sögn Önnu
Lilju, þrátt fyrir fjölgun aðgerða,
fækkun á flestum biðlistum, fjölg-
un aldraðra um 6,5% á tímabilinu
og þjóðarinnar almennt um 3,6%.
Hlutfall LSH af heildar-
útgjöldum ríkisins lækkað
Þá sagði Anna Lilja hlutfall
heildarútgjalda ríkisins sem LSH
væri ætlað á hverju ári hafa lækk-
að síðustu fimm árin. Árið 2004
var 9,06% af heildarfjárlögum rík-
isins varið til reksturs spítalans
en 9,32% á árinu 2000.
„Stjórnendum og starfsmönn-
um Landspítala – háskólasjúkra-
húss hefur því tekist að ná árangri
í að auka framleiðslu spítalans á
mjög hagkvæman hátt,“ sagði
Anna Lilja.
Í ársreikningi LSH kemur
fram að uppsafnaður rekstrar-
halli samkvæmt efnahagsreikn-
ingi var 1.032 m.kr. um áramótin.
„Greiðslustaða spítalans er því af-
ar erfið sem gerir það að verkum
að spítalinn þarf að greiða umtals-
verða fjármuni í dráttarvexti
vegna vanskila við birgja,“ sagði
Anna Lilja.
Ársfundur LSH var haldinn í
Salnum í Kópavogi í gær en nú
eru liðin fimm ár frá sameiningu
sjúkrahúsanna í Reykjavík og
voru þau tímamót, auk hugmynda
um framtíðarsjúkrahúsið, þema
ársfundarins.
Rekstrarkostnaður
LSH sá sami í fimm ár
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Ársfundur LSH/14–15
Uppsafnaður halli spítalans
rúmlega milljarður um áramótin