Réttur - 01.06.1948, Page 7
RÉTTUR
95
ur-Evrópu og víðar í þann hóp, og mun nú láta nærri, að
fjórðungur mannkynsins vinni að því að byggja upp sósíal-
isma í lönduin sínum. — Og í þeim löndum, sem auðvaldið
ræður enn, fylkja sér nú milljónir undir merki hinna marx-
ísku flokka. Veldi Marx er nú orðið mikið og víðlent og
harla ólíkt því, sem var fyrir hundrað árum. „Veraldarsagan
er dómstóll mannkynsins," sagði Hegel einhverju sinni. —
Og hún liefur nú löngu dæmt á milli Marx og andstæðinga
hans, milli marxista og endurskoðunar-sinna. Allir spá-
dómar þeirra um friðsamlega og snurðulausa þróun auð-
valdsþjóðfélagsins liafa reynzt hjóm og froða. Gasprið um
hið hlutlausa eðli horgaralegs ríkisvalds hefur komið þeim
sjálfum í koll í harmleiknum í Þýzkalandi, — valdatöku og
valdaafsali sósíaldemokrata þar. Hvert atriði úr sögu þessara
áratuga hefur staðfest gildi marxismans. — Undir leiðsögn
hans hefur sósíalisminn unnið þá sigra, er unnizt Iiafa.
Endurskoðunarstefnan var frá upphafi eins konar borgar-
legt afbrigði af sósíalismanum, — og eftir jjví sem auðvalds-
þjóðfélaginu hefur hrakað meir, hefur hún orðið samgrónari
borgarastéttinni. — En nóg um það, sagan hefur þegar
dæmt á milli hennar og marxismans —, og þeim dómi verður
vafalaust fullnægt.
En marxisminn hefur ekki aðeins aukið áhrif sín og veldi,
hann hefur sífellt auðgazt og vaxið með verkefnum sínum.
Honum var aldrei ætlað að verða nein kirkjukredda eða
lokað kenningakerfi, þar sem engu mætti hnika né auka
neinu við. Slíkt væri í mótsögn við eðli hans og hlutverk —
og viðhorf og starf höfunda lians. Sjálfir lærðu þeir Marx og
Engels sífellt af reynslnnni og má í því sambandi minna á
Parísaruppreistina og kenningu Marx um ríkisvaldið. Nýjar
aðstæður hafa þannig auðgað og dýpkað kenninguna og
bætt í hana nýjum þáttum, svo sem skilgreiningu Lenins á
heimsvaldastefnunni o. fl., o. fl., — og svo mun verða fram-
vegis. En slíkt er engin endurskoðun á fræðikenningu Marx,
heldur í fullu samræmi við allan anda hennar og frumskil-