Réttur - 01.06.1948, Blaðsíða 30
118
RÉTTUR
kosti kr. 10,30. Nú eru horfur á, að um liríð verði ekkert
kjöt fáanlegt nema fyrir hærra verðið. Bætist þar enn við
nærri 24 stiga fölsun. Ef aðeins þessar tvær skekkjur, sem
nefndar eru sem dæmi af fjölmörgum, yrðu leiðréttar,
mundi vísitalan vera skráð um 370 stig. Væri mánaðarlaun
manns með 600 kr. grunnlaun reiknuð samkvæmt því.
rnyndi þau hækka um 420 krónur.
En jafnvel þó ekki væri öllum þessum prettum stjórnar-
valdanna til að dreifa og vísitalan væri reiknuð samvizku-
samlega út samkvæmt hinu skráða verðlagi, væri mjög fjarri
því, að hún gæfi rétta mynd af verðlaginu í landinu.
Við skilyrði þeirrar óstjórnar, sem nú ríkir í viðskiptamál-
unum, og vaxandi einokun örfárra stjórnargæðinga
hverfa vörurnar einhvern veginn af markaðinum, enda þótt
flutt sé inn fyrir allháar upphæðir samkvæmt innflutnings-
skýrslum. hað vantar flest. sem til lífsins þarf, nema nokkrar
algengustu matvörur. Verðlag og viðskipti bera því á sér
flest einkenni almennrar vöruþurrðar, eins og í landi, sem
er þrotið að kröftum eftir styrjöld. Margar vörur fást alls
ekki nema á svörtum markaði, með afarkostum. Fjölmarg-
ar af nauðsynjavörum þeim, sem laldar eru í búreikning-
unum, sem vísitalan byggist á, eru ófáanlegar með öllu. I
stað þeirra verða menn oft að kaupa margfalt dýrari vörur
til að bæta úr brýnni þörf. í stuttu máli: Hin opinbera
vísitala er orðin hlægileg firra'.
Sókn verkalýðssamtakanna gegn kaupþvingunarlögun-
um héldur áfram, fast og öruggt. í síðustu Víðsjá er skýrt frá
17 verkalýðsfélögum, sem hækkað höfðu kaup sitt, frá því
þvingunarlögin gengu í gildi, flest um 15 og allt upp í 45
grunnaura á klukkustund.
Síðan hafa eftirtalin 14 verkalýðsfélög bætzt í hópinn:
Verkamannaíél. Valur Búðardal, Félag afgreiðslustúlkna i
mjólkur. og brauðasölubúðum í Rvík., Iðja á Akureyri, Fé-
lag garðyrkjumanna, Verkamannafél. Húsavíkur, Verka-
kvennáfélag Húsavíkur, Verkalýðsfélag Norðfirðinga, Bak-