Réttur


Réttur - 01.06.1948, Síða 34

Réttur - 01.06.1948, Síða 34
RÉTTUR 122 því, live sterk tök erlends auðvalds voru orðin hér á íslandi fyrir síðasta stríð. Bankar landsins voru orðnar innheimtu- stoí'nanir fyrir brezku stórbankana, Hambros- og Barclays- l)anka. Okurvextirnir, sem ísland varð að greiða ensku lánardrottnunum, 5—6%, lögðust með öllum sínum þunga á atvinnulíf íslendinga og ollu því m. a., að útgerðin varð að borga um 9% í vexti. Reið það smáútgerðinni að fullu og olli stórtapi togaraútgerðarinnar, enda er það kunnugt, að tapið á togaraútgerð 1930—39 samsvaraði nokkurn veginn greiðslu okurvaxtanna. Og þetta ok á atvinnulífinu kom svo fram í Jaunalækkunum, atvinnuleysi, skömmum útgerðar- tíma: lélegri lífsafkomu hjá þjóðinni í heild. — Samsvarandi rán erlendra auðhringa var svo framkvæmt í verzluninni. Þegar danska deildin úr Standard-Oil-lningnum ameríska missti sín okurtök á smáútgerðinni, tóku brezku hringarnir við. Brezki fiskimjölshringurinn korn sér upp „innlendri" deild: „Fiskimjöl h.f.“ til þess að arðræna íslenzka fiski- menn áratugum saman með einokunaraðstöðu sinni til kaupa á beinum og úrgangi. Brezka stjórnin hélt togaraút- gerð íslendinga á heljarþröminni með hinum harðvítugu takmörkunum á löndun í Englandi og knúði nreð því stein. bítstaki fram hvers konar ívilnanir og undanlát undan kröf- um Breta. Spánskt auðvald fyrirskipaði íslendingum laga- breytingar í viðkvæmum innanlandsmálum í skjóli valds síns yfir saltfiskmarkaðnum. Brezk-hollenzki feitmetishring- urinn („Unilever") einokaði síldaroliuframleiðslu íslend- inga og arðrændi oss um milljónir punda, eftir að síldarolíu- verksmiðjurnar komu upp. — Og þannig mætti lengi rekja skattlagningu erlends auðvalds á íslendinga þessa áratugi, — með arðráni á útflutningsafurðum, innfluttum vörum og lánsfé. Og það vantaði heldur ekki tilraunir hinna ýmsu anga af erlendu auðvaldi til þess að sölsa fossana undir sig. Heilar ár voru keyptar upp, ýmsir „eigendur" þeirra féllu fyrir freistingum gullsins og seldu, — jafnvel Gullfoss. Stundum barg ættjarðarást alþýðunnar beinlínis slíkum

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.