Réttur - 01.07.1966, Side 13
Réttur 213
Hefði í för með sér harðvítugar aðgerð.ir lögregluríkisins, m. a.
væru leiðtogar blökkumanna hafðir í haldi á Robbin-eyju.
Kommúnistaflokkurinn hefði aldrei haft á stefnuskrá sinni að
koma á harðstjórn eða alræði öreiganna. Flokkurinn hefði aldrei
borið sósíalismann á borð sem fyrstu lausn á vandamálum Suður-
Afríku. Hann aðhylltist útvíkkað lýðræði með því að auka pólitísk
réttindi og frelsi.
Fischer sagði, að það væri alltaf erfitt að brjóta í bága við sett
lög, sérstaklega erfitt þó fyrir lögfræðinga. Samt sem áður væru til
svo knýjandi kringumstæður, að margir af landsins beztu og vitr-
ustu sonum hefðu brotið gegn lagabókstafnum og það ekk.i af neinni
tilviljun.
Lög um að útrýma kommúnisma væru ekki einasta til þess gerð
að útrýma kenningum marxismans í S.-Afríku, beldur til að bæla
niður þær hugsjónir, sem þættu sjálfsagðar um heiin allan — utan
S.-Afríku. Þessar hugsjónir væru, að allir ættu að hafa rétt til
þátttöku í stjórn landsins, og að svartir og hvít.ir hefðu jafnan rétt
í friði og sátt. I dag eru 3.000 manns í fangelsi, sem börðust fyrir
jafnrétti kynþátta. ÍAths.: Aðaleftirlitsmaður fangelsa í S.-Afriku
sagði nýlega, að 8.500 manns væru nú fangelsaðir af stjórnmála-
ástæðum.). Ef svo virtist, að kyrrð ríkti í kynþáttamálum í landinu,
gæfi það ekki rétta mynd af ástandinu, þar sem öll hreyfing er bæld
niður með kúgunaraðgerðum. Aðgerðir stjórnar lögregluríkisins
gælu að vísu leitt til ládeyðu um stundarsakir en síðan kæmi frain-
búðarhatur.
Stefna S.-Afríku-stjórnar gæti aðeins leitt til borgarastyrjaldar
af verstu tegund, sem livítir menn gætu aldrei unnið. Hefð.i rétt
leið verið farin í kynþáttavandamálum S.-Afríku, hefði land vort
getað liaft forystu um farsæla lausn vandatnálanna í Afríku allri.
En sú leið hefði verið farin að einangra 200 millj. manna frá öðr-
um Afríkumönnum. Kommúnistaflokkurinn hefði einn ver.ið fær
um að taka að sér leiðtogahlutverkið; hann gæti einn vísað á rétt-
ar brautir.
Fischer sagði, að hann hefði ekki liafnað dómkvaðningu til að
bjarga sjálfum sér, því ef svo hefði verið, hefði liann getað flú.ið
land og dvalizt í Englandi áfram, sem hann var, þegar liann var
fyrst kallaður fyrir rétt. Ástæðan hefði verið sú, að hann hefði talið
liað skyldu sína að halda áfram því starfi, sem hann hefði hafið.
Þegar hann hefði svo gengið fyrir dómara. hefðu þær orsakir, sem
ollu því, að hann gekk í Kommúnistaflokkinn, margfaldazt.