Réttur


Réttur - 01.07.1966, Side 39

Réttur - 01.07.1966, Side 39
A. FARHADI : Ofsóknir gegn föðurlandsvinum r í Iran Fyrir rúmum átján mánuSum voru handteknir átta menn úr Judeh flokknum (AlþýSuflokknum) í Iran, flestir þeirra verka- menn. Síðan hafa þeir setið í fangelsi og verið pyndaðir — hin al- gengu örlög pólitískra fanga í Iran. Afbrot þeirra er félagsaðild að hinum bannaða Tudeh flokki. Samkvæmt stjórnarskrá Irans er þar tryggt málfrelsi, ritfrelsi, fundafrelsi og samtakafrelsi. Auk þess hefur ríkisþingið samþykkt Mannréttindayfirlýsinguna. En sá frelsisréttur sem er yfirlýstur í stjórnarskránni hefur verið fótum troðinn. Það er bannað að stofna stjórnmálaflokk, að gefa út lýðræöissinnuð blöð eða tímarit og ósjaldan beitir lögreglan skotvopnum gegn kröfugöngum og fjölda- íundum. Þegar ríkisstjórn dr. Mossadeghs féll í ágúst 1953 og einræöis- stjórn hersins komst til valda með aðstoð bandarískra og brezkra heimsvaldasinna færðust ofsóknir gegn Tudeh flokknum í aukana og síðan hafa þær orðið daglegur viðburður. Stundum lætur ríkis- stjórnin aftökur pólitískra fanga fara fram með leynd af ótta við teiði almennings og fréttablöðin segja aðeins að dómar hafi verið kveðnir upp yfir ónafngreindum mönnum og framkvæmdir. Nýver.ið tók herdómstóll fyrir mál 14 manna. Tveir þeirra höfðu tvisvar áður veriö dæmdir til dauða, en almenningsálitið bæði heima og erlendis neyddi shahinn til að ógilda dauðadómana. Arið 1950 dæmdi herdómstóll hóp manna úr Tudeh flokknum að þeim fjar- verandi, átta hlutu dauðadóm. Snemma á þessu ár.i var annar hópur dæmdur, einnig fjarverandi. Þá voru tólf dæmdir til dauða án minnstu lagalegra röksemda. Nýlega fóru fram réttarhöld yfir 55 rnönnum úr flokki sem kallar sig „Þjóð íslams“, flestir háskóla- L

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.