Réttur - 01.10.1931, Blaðsíða 18
210 HVERSVEGNA ERU LÆRÐIR MENN............. [Rjettuv
legri sannfæríngu. Af viðurkenníngu þessarar stað-
reyndar leiðir hin marxistíska kenníng um nauðsyn
öreiga-alræðisins, sem um óákveðinn tíma hljóti að
vera eftirfari hverrar hepnaðrar verklýðsbyltíngar.
Byltíngin sjálf er ekki nema einn áfángi á gerbótaleið-
inni, því þótt verkalýð einhvers lands hafi á hinu hag-
kvæma augnabliki tekist að bylta af sér ræníngjaok-
inu, fer því fjærri, að hægt sé að gera ráð fyrir, að þar
með sé alt orðið sósíalistiskt eða allir orðnir sósíalistar
á nokkrum dögum. Þessvegna þykir mestu varða, hvar
sem byltíng á að gerast, að til sé í landi því, sem hlut
á að máli, sterkur flokkur lærðra sósíalista, sem geti
beitt sér með tiltölulega óhvikulli vísindalegri öryggi
að þeim nýskipunum innan þjóðfélagsns, sem sósíal-
isminn miðar að á hverju sviði mannlegs lífs, og í sem
fylstu samræmi við anda kenníngarinnar, eða kunni a.
m. k. að hagnýta sósíalistiskt hvert það meðal, sem lík-
legt er, að miði til fullnaðarárángurs, jafnvel, þótt
meðölin séu í eðli sínu kapítalistisk. Þetta alræði til-
tölulega fámenns flokks lærðra sósíalista stendur sem
sagt enn þá í Rússlandi og hlýtur að standa meðan sú
kynslóð er ekki útdauð, sem uppalin var til heimsku,
þrældóms og óal'máanlegs ræfilsháttar undir hinu
heilaga og kristilega oki auðvaldsfyrirkomulagsins. úr-
ættun, öfugsnúður og niðurlægíng er uppeldisins vegna
orðið annað eðli þessa fólks, og það eru ekki líkindi til,
að neinn sósíalismi geti bætt þar um.
Þegar maður lítur svo til hinna borgaralegu ríkja,
þar sem maður lifir og hrærist sem öreigi, þá er sú
spurníng sanngjörn eða að minsta kosti réttlætanleg,
og ekki síst hér á landi, hvernig því skuli vikja við, að
lærðir menn í þessum löndum, sem venjulegast eru
verkamenn, hver á sínu sviði, aðhyllist ekki einróma
þá kenníngu, sem fer fram á það með lærðum röksemd-
um, að kjör einstaklínganna í þjóðfélaginu með tilliti
til hinna frumstæðustu og sjálfsögðustu lífsþarfa,