Réttur


Réttur - 01.10.1931, Side 22

Réttur - 01.10.1931, Side 22
214 HVERSVEGNA ERU LÆRÐIR MENN.. [Rjettur urinn, að þeir, sem þekkja nákvœmlega margt fólk í einu sjávarplássi, og hafa veitt því samskonar athygli og mentaskólanemendum ber að veita veraldarsögunni, vita ætt þess, persónusögu, öll þeirra sambönd inn á við og út á við, og þúsund persónuleg andóf þeirra gagnvart fyrirbærum lífsi'ns, eru miklu fróðari menn en hinir, sem einhverntíma hafa lært »veraldarsögu« í mentaskóla, þeir búa yfir miklu lífrænni og lærdóms- ríkari mentun, — fróðleik síns eigin samfélags. Þetta vita þeir best af eigin reynslu, sem hafa hleypidóma- laust borið saman mannþekkíngu skólagengins manns og greinds alþýðumanns, sem hefur lifað með opin augu í sínu samfélagi og dregið óhjákvæmilegar álykt- anir af þeim fyrirbærum lífsins, þar sem sagan er að gerast í raun og sannleika, — saga mannlífsins. Það er misskilníngur að halda, að »veraldarsaga« sé víðtæk- ara hugtak, þaðan af síður lærdómsríkari, en það, sem gerist í einu sjávarplássi meðal vanalegs fólks, þótt í hinni fyrri sé minst á nokkra konúnga og þeirra tagl- hnýtínga, sem lifað hafa í Suður- og Mið-Evrópu á tvö þúsund árum. Ef við köllum plássið a og »veröldina« b, þá verður rúmtakshlutfallið á milli plássins og »ver- aldarinnar« þó aldrei annað en a deilt með óendanlegri stærð: b deilt með óendanlegri stærð (—^ Svipuðu máli gegnir um bókmentaþekkíngu þá, sem lærðir menn hljóta í forskólum borgarastéttarinnar, hinum svonefndu almennu mentaskólum. Þeir eru látn- ir grúska eitthvað i útlendum túngumálum, svo sem leggja út (mjög hátíðlega!) nokkra kviðlínga úr latínu, nokkrar barnasögur úr ensku og þýsku og kannske eitt leiðinlegt lefkrit eftir Shakespeare, en vandlega gerð nefsneiðíng hjá bókum, sem hafa nokkurt raunhæft gildi. Greindir alþýðumenn hafa miklu meiri þekkíngu á því lífi, sem endurspeglast í bókmentum, heldur en menn, sem leingi meltast í skólum, og það er eingin

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.