Réttur - 01.10.1931, Síða 47
ítjettui'] SOVJET-KÍNA 239
landið hýru auga, því að þeim var það ljóst, að út úr
slíkri þjóð mætti sjúga álitlegan gróða. Hétu kapi-
talistarnir í stórveldunum nú á prestastéttina til
hjálpar sér, og hún var ekki sein að hlýða kallinu.
Félög voru stofnuð, er söfnuðu meðlimum og fé um
alla víða veröld. Á yfirborðinu var látið heita svo að
tilgangurinn væri að kenna Kínverjum kristna trú, en
í rauninni var hann enginn annar en sá, að brjóta út-
lendum kapítalisma braut. Trúboðsleiðangrar voru út
gerðir og ekkert til sparað. Eigi var það ótítt, að trú-
boðar þessir væru ribbaldamenni, líkt og Þangbrandur
sá, er ólafur Tryggvason sendi til íslands í sama til-
gangi forðum daga, enda var kapítalistunum ekkert
kærara en að trúboðarnir yrðu svo illa liðnir af lands-
mönnum, að þeir dræpu þá sem flesta, því það gaf þeim
ástæðu til að fara með her manns á hendur þessu ill-
þýði, sem ekki skirraðist við að leggja hendur á þjóna
sjálfs guðs almáttugs. í kjölfar hvers trúboðsleiðang-
urs lagði því vopnaður refsileiðangur, sem lagði landið
miskunarlaust undir kapítalistana, sem nú tóku að
stofna þarna allskonar fyrirtæki og píndu landsmenn
til að vinna hjá sér fyrir enn miklu ömurlegri kjör,
en þeir gátu boðið verkalýðnum heima í sínu eigin
landi. Nú er svo komið, að allflest stórveldin eiga mikil
fyrirtæki í Kína, sem sjúga árlega miljarðagróða út úr
kínversku þjóðinni, og til þess að vernda hagsmuni
sína, hafa þau þar stöðugan her, bæði sjóher og land-
her. Með gýligjöfum trygði hvert þeirra sér fylgi og
aðstoð innlendra fursta og hershöfðingja, sem toga
skækil hver síns mútugjafa, en allir beita sömu hörk-
unni og grimdinni gagnvart alþýðunni.
Það eru óaldarflokkar þessara manna, sem fara her-
skildi yfir landið í umboði stói-veldanna, breyta hreys-
um bændanna í rjúkandi öskuhauga, en myrða með
pindingum og limlestingum alla, sem ekki geta forðað
sér í tíma, en það eru helst börn og ellihrum gamal-