Réttur - 01.10.1931, Side 57
Kjettur]
TILBÚINN ABURÐUR
249
Þessi banki er nú kominn í mjög náið samband við I.
G. F. Slíkir hringir sem I. G. F. eru í Frakklandi, Eng-
landi og Ameríku og eru þeir stöðugt að nálgast hverir
aðra, eru að verða að æ heilsteyptari arðránsfyrirtækj-
um, sem setja neytendum þá kosti,erþeim þóknast. Um
allan heim berjast hundruð miljónir bænda í bökkum.
Með óheyrilegum þrældómi og gæðasnauðu lífi, ár út
og ár inn, hafa þeir varla ofan í sig og á eða sínar
fjölskyldur. Hvar er árangurinn af öllu okkar striti?
Villimenn frumskóganna hafa nóg í sig og á, ef þeir
hafa boga sinn og spjót; við búum við erfiði og meiri
og minni skort, en höfum ekki við. Já, hvar lendir arð-
urinn af öllu okkar starfi? Heimsveldin, auðhringirnir,
sem selja bændum þessa nauðsynlegu og óhjákvæmi-
legu vörur til búrekstursins, svo sem áburð og verk-
færi, og bankastofnanir þeirra, útbýta arði í öllum
mögulegum myndum svo mörgum hundruðum miljóna
nemur árlega. Aldrei í sögu mannkynsins hafa aðrir
eins auðjötnar verið til sem nú. Eignir þeirra og völd
ná yfir heil lönd og álfur. En hundruð miljónir verka-
manna og bænda búa við verri og verri kjör.
Þess var getið hér að framan að alment hefði verið
búist við verðlækkun á tilbúnum áburði árið 1931,
ennfremur að sú von brást. I. G. F., sem hér hefir ver-
ið reynt að gefa mönnum nokkra hugmynd um, og
enskur hringur, Brunner Mond & Co., sem náði yfir
samskonar iðngreinar og I. G. F. hafa gjört samkomu-
lag með sér um það að halda uppi verði áburðarins og
öðrum afurðum efnaiðnaðarins á hverju sem veltur.
Orsökin til þess að samsteypa þessará auðhringa gekk
svo greiðlega var sú, að I. G. F. var búinn að ná svo
miklum ítökum í National City Bank of New York,
sem er banki Standard Oil Co., olíuhringsins ameríska,
en Brunner Mond & Co. styðst meira og minna við fé
frá miðstöð Bandaríkjaauðvaldsins í hinu alkunna
Wall Street í New York. Tengdirnar voru orðnar svo