Réttur - 01.10.1931, Side 60
252
TILBÚINN ÁBURÐUR
[Rjettur
um borð í skipinu Liitzow í Adríahafinu vorið 1928
talaði meðal annara forstjóri Norsk Hydro, Axel Au-
bert. Kvað hann meiri hluta mannkynsins búa við
skort. Hin aukna vélanotkun við framleiðsluna á sök á
stöðugt vaxandi atvinnuleysi og minkandi kaupgetu
hjá verkalýðnum. Auðvaldið heldur fast í hin fram-
leiddu verðmæti fjöldans, verkalýðsins, og vill ekki
láta þau af hendi nema með því okurverði, sem gjörir
þeim fært að greiða rentur til bankaauðvaldsins og á-
góða til iðjulausrar auðmannastéttar. Þeim er engin
þægð í að koma vörunum til bændanna annars.
Og nú er svo komið að hundruð þúsundir tonna af
hinum dýrmæta áburði liggja óseld, en hringnum dett-
ur ekki í hug að lækka verðið. Hann minkar bara
framleiðsluna, gerir verkalýðinn atvinnulausan og tek-
ur gróðann með okurverði af bændum. En alt, sem
áburðarverksmiðjurnar gætu framleitt með hægu móti,
myndi samt ekki, ef það væri notað í landbúnaði Ev-
rópu, gera meir en auka kornframleiðsluna um 3%!
En þessa litlu framleiðsluaukningu þolir kornverðið
ekki, því alþýðan í Evrópu hefir orðið að minka við
sig kornkaup sakir atvinnuleysis og eymdar auðvalds-
skipulagsins. Þannig rekur hvað annað. Drotnun auð-
valdsins yfir afurðunum er orðin bölvun, sem fordæm-
ir verkalýðinn til atvinnuleysis og skorts, og bændurna
til skorts, þrælkunar og eymdar, — og verðlaunar auð-
mennina fyrir að minka framleiðsluna.
En þar sem drotnun auðvaldsins er afnumin, í ráð-
stjórnarríkjunum, þar eykst áburðarframleiðslan
geysilega, eins og eftirfarandi tafla sýnir:
• Áætl-
Framleitt var: að:
1913 1922 1927 1933
Superfosfat (í þús. tonna) 55 5 150 3400
Kali-áburður (í þús. tonna) 150 35 208 1450
Alls á framleiðsla »kemisks« áburðar að vera 8 milj.