Réttur - 01.04.1968, Side 1
léttur
5 1. árgangur
1968 — 2. hefti
Atburðarásin hér heima og erlendis síðustu mánuði ætti að íæra hverjum
Islending heim sanninn um hver nauðsyn honum er að þekkja það þjóðfélag,
er hann lifir við, og mannfélag veraldarinnar yfirleitt, — og þá þekkingu
reynir Réttur að miðla mönnum eftir getu.
í síðasta hefti var heimsveldastefna Bandaríkjanna gerð að aðalumræðu-
efni, en hún er höfuðbölvaldur heims, undirrót hungurs og styrjalda. Og
ítök hennar í stefnu efnahagslífs vors og yfirdrottnun í utanríkismálum eru
ógæfuvaldurinn hér. Ríkisstjórn íslands dansar dauðadans sjálfstæðs at-
vinnulífs undir pípublæstri Nato-velda, meðan efnahagsgrundvöllur þjóðar-
innar brestur vegna braskfrelsisins, sem erlent auðvald fyrirskipar. Alls-
herjarverkfallið marz var mene tekel, sem ríkisstjórnin ekki skildi. En það
sló felmtri á háembættisvaldið í landinu og embættaðan forystulýð valda-
flokka við úrslit forsetakosninganna í júní. Það höfðu losnað úr læðingi
sterkari öfl en höfðingjarnir héldu, er flokkaböndunum var sleppt. En al-
menningur úr öllum flokkum fagnaði.
Réttur ræðir í þessu hefti ýms vandamál sósíalisma í Vesturlöndum og nokk-
uð íslenzk efnahagsmál, en mun í haust einkum helgaður hinum brýnustu
vandamálum þjóðlífs vors. En nú minnir hann vini sína og velunnara á
nauðsyn enn meiri útbreiðslu — og enn fá allir nýir áskrifendur síðasta
árgang í kaupbæti.
71