Réttur - 01.04.1968, Síða 20
finnsku" UNCTAD og „kenningum doktors
Prebisch", til þess þannig að reyna að breiða
yfir að það er þjónusta þessarra ríkisstjórna
við hagsmuni auðhringa sinna, sem eyðilegg-'
ur möguleikana til endurbóta á aðstöðu þróun-
arlandanna.
Samstarf þróunarlandanna og sósíalistísku
ríkjanna var hinsvegar „ljósi punkturinn" í
ráðstefnunni. I ályktun þeirri, er gerð var 26.
marz, kom samstari þeirra bezt í ljós. Þar á-
kváðu þessir aðilar að auka viðskipti sín.
Sósialistísku löndin ákváðu að gera samninga
til margra ára við þróunarlöndin til þess að
festa verðlag og auka viðskipti og laga tolla-
kerfi sitt þróunarlöndunum í hag, selja þeim
vélar og verkfæri gegn lánum er greiðist með
vörum viðkomandi lands, aðstoða þau tækni-
lega o. s. frv.
Neue Ziiricher Zeitung segir að þróunarlönd-
in hafi alla ástæðu til þess að álíta þessa á-
lyktun þá mikilvægustu, er gerð var á ráð-
stefnunni.
Þá var og gerð ályktun um aukningu verzl-
unar milli „austurs" og „vesturs".
Ef það á að veita þróunarlöndunum raun-
verulega hjálp, þarf að herða baráttuna gegn
auðdrottnum stóriðjulandanna og vekja al-
menningsálitið þar til meðvitundar um vald
þess til að knýja fram breytingar í þessum
efnum. Auðhringimir þurfa að óttast, að bylt-
ingarhættan vaxi í þróunarlöndunum og þeim
takist ekki að hindra hana með nýjum Viet-
nam-stríðum, — nema þeir gerbreyti um stefnu
og verði neyddir til raunverulegrar hjálpar við
þróunarlöndin: hækki verð á hráefnum þeim,
er þau framleiða, — lækki vexti á lánum og
lengi lánstíma o. s. frv. Til þess að ná þessum
árangri er m. a. nauðsynlegt aukið samstarf
þróunarlandanna annarsvegar og ríkja sósíal-
ismans, alþjóða verkalýðsins og kommúnista-
hreyfingarinnar hinsvegar.
Samtímis versna svo öll lánskjör frá auð-
valdsríkjunum, vextir hækka, lán minnka o. s.
frv.
Þróunarlöndin urðu fyrir miklum vonbrigð-
um með ráðstefnuna. „Financial Times" orðaði
það svo.: „Mikilvægastur einstakra árangra
var sá að „menn gera sér ekki lengur þær tál-
vonir, er áður höfðu verið skapaðar, um mögu-
leika á árangursríkum viðræðum þróaðra og
þróunarlanda um að leysa vandamál hinna
síðarnefndu."
90