Réttur - 01.04.1968, Blaðsíða 30
JURI FRANZOW:
FRAM
TIL SAMHELDNI
OG EININGAR
Kommúnistaflokkar og aðrir verklýðsflokkar,
sem saman komu í Budapest, stefna að því að
skapa samstarf allra þeirra flokka, er fylgja
kenningum Marx og Leníns.
Heimsvaldastefnan er mannlegum framför-
um og friði Þrándur í Götu. Hún beitir fram-
leiðslu og vísindum nútímans til þess að tor-
tíma mannlífi, þurrka út frelsi, eyða löndum
og undiroka þjóðir.
Hálfrar milljón manna amerískur her jafnar
þorp og borgir Víetnam við jörðu, eyðir og
saurgar landið sjálft. Stríðsógnin vofir yfir Laos
og Kambodíu. Bandarískir leiðtogar heimta
beitingu kjarnavopna í Víetnam. Það er enn
ein ógnun þessara árásarseggja, eins og und-
irstrikað var í Sofíu-yfirlýsingu Varsjá-veld-
anna. í nálægari Austurlöndum hóta heims-
valdasinnar Aröbum stríði. í rómönsku Ame-
ríku beitir bandarískt auðvald ógnaraðferðum
gegn frelsishreyfingum, og undirbýr hið sama
í Afríku. Og í hjarta Evrópu undirbúa þýzkir
hemaðarsinnar og nýnasistar endurreisn „ný-
skipanar" Hitlers og eru ógn öllum þjóðum.
Fyrirætlanir heimsvaldasinna — og þá fyrst
og fremst bandarísku auðhringanna, — eru
miðaðar við allan heiminn sem heild, þótt þeir
reyni að dylja það.
Þess vegna er líka nauðsynlegt að flokkar
verkalýðs og þjóðfrelsis mæti þessum árásar-
fyrirætlunum á sama hátt.
Baráttan gegn heimsvaldastefnunni krefst
góðrar rannsóknar og skipulagningar á al-
þjóðaástandinu á hinum ýmsu sviðum. Wilhelm
Liebknecht, samstarfsmaður Marx, gaf verk-
lýðsflokkunum það ráð að sameina í sífellu
þrjár starfsaðferðir: rannsókn, áróður og skipu-
lagningu. Og Lenín hafði miklar mætur á því
ráði — og er það í góðu gildi ennþá.
Rannsókn og skilgreining ástandsins krefst
þess að hvert land, hvert svæði, hver álfa sé
tekin sérstaklega — og um leið bardagaað-
ferðir og stjórnlist á heimsmælikvarða. Þannig
þurfa kommúnistar að undirbúa og móta heims-
baráttuna gegn imperíalismanum, heimsvalda-
stefnu auðmannastéttanna. Og tilgangur alls
þessa er að skipuleggja fjöldann til baráttu.
Allt frá upphafi reit Marx á fána verklýðs-
flokkanna: „Oreigar allra landa, sameinist!"
Það var og inntak Búdapestarfundarins 120 ár-
um eftir útkomu Kommúnistaávarpsins. Form
samtakanna breytist með breyttum tímum.
Þeim verður nú ei stjórnað frá einni miðstöð.
Jafnréttháir flokkar verða nú að ráða ráðum
sínum á lýðræðislegan hátt. Gagnkvæm virð-
ing, vilji til sameiginlegrar niðurstöðu, leit að
grundvelli, er allir flokkar viðurkenna sem
höfuðatriði, — það eru skilyrðin til þess að
alþjóðlegt samstarf kommúnista takist.
100