Réttur


Réttur - 01.04.1968, Side 31

Réttur - 01.04.1968, Side 31
500000 twttmmm mmm Z500Q00 Europa Arnerlka w,m 80000 343000 Asien vj ♦Immtt^ti (ömmtm ■ wttm 20000 3800000 Vöxtur heimshreyfingar kommúnista í löndum utan sósíalistisku ríkjanna fró 1939—1966. Nefnd sú, sem kosin var í Búdapest, vinnur að því að hafa samband við alla bræðraflokka, einnig þá, sem ekki voru með í febrúar. Áherzla var á það lögð af fulltrúunum að ekki kæmi til mála að „bannfæra" neinn flokk. Til- gangur komandi funda væri samheldni og eining. Kommúnisiaflokkar hafa áhrif á öllum svið- um mannfélagsins. Styrkleiki og eining Sovét- ríkjanna og annarra sósíalistiskra landa er aðalvaldið, sem heldur aftur af árásarseggjum heimsvaldastefnunnar. Þjóð Víetnam berst af hetjumóði og logar þjóðfrelsisins breiðast út til baklanda heimsvaldasinna. í mörgum lönd- um eru kommúnistaflokkarnir öflugir og vís- indalegur sósíalismi gerist æ meir aflgjafi þjóð- frelsishreyfinga í ýmsu formi. Nýir bandamenn bætast í sjálfstæðishreyfingarnar. Skilyrðin fyr- ir samvinnu gegn imperíalismanum aukast í sífellu. Hinir ýmsu, ólíku þættir tvinnast saman í baráttunni gegn heimsvaldastefnunni og sann- leikann um þessa þróun er að finna hjá verka- lýðnum og því brautryðjendaliði hans, sem er sér þess meðvitandi hvert stefnt er. Og það lið mun kappkosta að yfirvinna alla erfiðleika, styrkja einingu kommúnistisku hreyfingarinnar og sameina öll öfl sósíalisma og lýðræðis í baráttunni gegn heimsvaldastefnunni, fyrir þjóðernislegu og félagslegu frelsi og friði. Um- ræðuefni ráðstefnunnar, sem undirbúin er, verður aðeins eitt: núverandi stig baráttunnar gegn heimsvaldastefnunni og samstarf komm- únista- og verklýðsflokka og allra afla, sem andvíg eru imperíalismanum. 101

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.