Réttur - 01.04.1968, Qupperneq 31
500000
twttmmm
mmm
Z500Q00
Europa
Arnerlka
w,m
80000 343000
Asien vj
♦Immtt^ti
(ömmtm
■ wttm
20000 3800000
Vöxtur heimshreyfingar kommúnista í löndum utan sósíalistisku ríkjanna fró 1939—1966.
Nefnd sú, sem kosin var í Búdapest, vinnur
að því að hafa samband við alla bræðraflokka,
einnig þá, sem ekki voru með í febrúar.
Áherzla var á það lögð af fulltrúunum að ekki
kæmi til mála að „bannfæra" neinn flokk. Til-
gangur komandi funda væri samheldni og
eining.
Kommúnisiaflokkar hafa áhrif á öllum svið-
um mannfélagsins. Styrkleiki og eining Sovét-
ríkjanna og annarra sósíalistiskra landa er
aðalvaldið, sem heldur aftur af árásarseggjum
heimsvaldastefnunnar. Þjóð Víetnam berst af
hetjumóði og logar þjóðfrelsisins breiðast út
til baklanda heimsvaldasinna. í mörgum lönd-
um eru kommúnistaflokkarnir öflugir og vís-
indalegur sósíalismi gerist æ meir aflgjafi þjóð-
frelsishreyfinga í ýmsu formi. Nýir bandamenn
bætast í sjálfstæðishreyfingarnar. Skilyrðin fyr-
ir samvinnu gegn imperíalismanum aukast í
sífellu.
Hinir ýmsu, ólíku þættir tvinnast saman í
baráttunni gegn heimsvaldastefnunni og sann-
leikann um þessa þróun er að finna hjá verka-
lýðnum og því brautryðjendaliði hans, sem er
sér þess meðvitandi hvert stefnt er. Og það lið
mun kappkosta að yfirvinna alla erfiðleika,
styrkja einingu kommúnistisku hreyfingarinnar
og sameina öll öfl sósíalisma og lýðræðis í
baráttunni gegn heimsvaldastefnunni, fyrir
þjóðernislegu og félagslegu frelsi og friði. Um-
ræðuefni ráðstefnunnar, sem undirbúin er,
verður aðeins eitt: núverandi stig baráttunnar
gegn heimsvaldastefnunni og samstarf komm-
únista- og verklýðsflokka og allra afla, sem
andvíg eru imperíalismanum.
101