Réttur - 01.04.1968, Síða 34
Myndin synir fró vinstri: Pungan sendiherra, Gavrilescu, Dalea og Buzor.
FULLTRIJAR RÚMENSKA KOMML AISTA-
FLOKKSl\S I HEIMSÓKN A tSLANDI
Dagana 18. til 22. júní dvaldi á íslandi
sendinefnd frá Kommúnistaflokki Rúmeníu og
var sendiherra Rúmeníu á íslandi, Vasile
Pungan, sem aðsetur hefur í London, með í
förinni. Formaður nefndarinnar var Mihai
Dalea, einn af riturum miðstjórnar flokksins,
en hinir voru Sion Buzor, deildarstjóri í mið-
stjórn, og Nicolae Gavrilescu, aðalritari Sibiu-
flokksdeildarinnar.
Sendinefndin var hér í boði Sósíalistaflokks-
ins, en sendinefnd frá honum heimsótti Rúm-
eníu á síðasta ári. Atti rúmenska nefndin við-
ræður við fulltrúa Sósíalistaflokksins, svo og
fulltrúa Alþýðusambandsins, Máls og menn-
ingar o. fl. Ennfremur tók Gylfi Þ. Gíslason
ráðherra á móti þeim.
Rúmenska sendinefndin skýrði frá ýmsu
eftirtektarverðu í framkvæmd sósíalismans í
Rúmeníu. Framkvæmd þeirrar 5-ára áætlunar,
er ákveðin var á flokksþinginu 1965, gengur
vel. Framleiðsluaukning síðasta ár varð 12,6%
104
eða hærri en áætlað var. Fjárfesting er mikil,
30% af þjóðartekjunum, eða með hæstu í
heimi. Vaxa þjóðartekjurnar um 8—9% á ári.
Það hefur verið komið á allmiklu lýðræði
á vinnustöðunum. Verkamenn kjósa 5—7
menn í stjórn hvers fyrirtækis og hafa þeir
síðasta orðið um ýmsar félagslegar ákvarðan-
ir: skiftingu ágóða, félagslega fjárfestingu o.
s. frv.
Stórhuga fyrirætlanir eru á döfinni um fé-
lagslegar framfarir. Lífskjörin eiga að batna
um 25% á tímabili 5-ára áætlunarinnar. Hefur
hækkunin komizt upp í 6% eitt árið.
Lágmarkslaun hafa verið hækkuð, eru um
570—700 lei á mann. Eflirlaun hafa og verið
hækkuð ,einkum þeirra lægst launuðu, þannig
að þeir fá nú oft jafnmikið í eftirlaun og þeir
áður höfðu í laun. Er þetta greitt beint frá
ríkinu, engin framlög frá launþegum sjálfum.
Meðalaldur hefur hækkað úr 42 árum í 68
ár í Rúmeníu. Allir fá nú ókeypis kennslu á