Réttur - 01.04.1968, Side 37
PERRY ANDERSON:
RÍKIÐ
OG
NÝKAPÍTALISMINN
PERRY ANDERSON er jœddur 1938. Hann
stundaði nám við háslcólann í Oxford og út-
skrifaðist þaðan 1959. Ilann varð ritstjóri
„New Lejt Review“ 1962 og hajði þá verið
starjandi í pólitík í 2 ár. Tvœr merkar marxis-
tiskar ritgerðir voru ejtir hann í rnjög út-
hreiddri enskri bók, „Towards Socialism“
(„Til sósíalisma“), sem út kom 1965. Hann
hejur ferðast mikið í pólitískum erindum, m.
a. til Sovétríkjanna og jleiri Evrópulanda, til
Brasilíu, Bolivíu og Kúbu. Hann liefur og
komið til Islands og dáist mjög að landi voru.
Meðal bóka hans er rit um Portúgal og lok
nýlendukúgunarinnar.
Perry Anderson er af ýmsum talinn bezti marx-
isti hinnar ungu kynslóðar. Grein sú, sem hér
birlist eftir hann, kom í norrœna sósíalista-
tímaritinu „Zenith“. Er þar að jinna hug-
myndir lians um þjóðfélag og ríkisvald, eink-
urn í Vestur-Evrópu, og er nauðsynlegt að
kynnast þeim, ef menn vilja brjóta þau vanda-
mál til mergjar, hvort sem menn kunna að
vera sammála hugmyndum hans eða ekki.
Greinin er þýdd með leyfi höjundar.
Hlutverk ríkisins
Hlutvcrk ríkisins í þróuðu þjóðfélagi okkar tíma
er kjarninn í öllum umræðum um sósíalíska baráttu-
list sem og í markverðustu fræðihugleiðingum um
byltingu í Vesturevrópu. Ríkið er brennidepill þar
sem öll grunnvandamál verkalýðshreyfingarinnar sker-
ast. Ilvert er eðli þinglýðræðis? Hverskonar eru í
raun afskipti ríkis af efnahagslífinu? Er til íriðsam-
leg leið til sósíalisma? Er framför að takmarkaðri
þjóðnýtingu? Hver eru einkenni viðreisnarkapítal-
isma áranna eftir stríðið?
Fræðikenning um ríkisvaldið er forsenda að svör-
um við þessum spurningum öllum, en slíka fræði-
kenningu skortir verkalýðshreyfingu Evrópu einmitt
á sjöunda áratug þessarar aldar. Allt og sumt sem
við eigum völ á eru dreifð atriði, sum frá Lenín og
önnur frá Gramsci, og oftast sett í rangt samhengi eða
villandi. Allajafna umlykur þokubakki reikullar liugs-
unar viðfangsefnið í heild, jafnvel einföldustu skýr-
ingar vantar og skilgreiningar. Hér er óhemju mikið
óunnið og við þessar aðstæður er aðeins hægt að
drepa á höfuðdrætti í stuttri grein, en ekki gera efn-
inu tæmandi skil. Þegar litið er til hinnar almennu
þagnar getur jafnvel hráðabirgða athugun gert nokk-
urt gagn.
107