Réttur - 01.04.1968, Qupperneq 49
fornum velskum hætti. Og báðir heimta sjálf-
stæðar áætlanir fyrir þjóðarbúskap landanna
og sjálfstjórn þeirra á efnahagssviðum í eigin
þágu. — En sérstaklega er eftirtektarvert að
öllum þessum efnahagslegu kröfum fylgir and-
leg og menningarleg, — þjóðleg — reisn hinna
keltnesku ibúa.
KOMMÚNISTAR
OFSÓTTIR
Af um 80 kommúnistaflokkum heims verða
um fjörutíu að starfa í banni laganna og sœta
ofsóknum og ógnarstjórn.
Valdhafar Grikklands, Spánar, Portúgal,
Paraguay, Argentínu, Haiti, Suður-Afríku o.
fl. gera ofsóknir gegn kommúnistum að aðal-
atriði í stjórnarstefnu sinni. Gríska herfor-
ingjaklíkan framdi valdrán sitt eftir beztu
bandarísku fyrirmynd úr „bananalýðveldun-
um“ og beitti síðan öllum kúgunartækjum
sínum gegn kommúnistunum, beztu sonum
Grikklands.
Blóðbaðið í Indónesíu stendur enn fyrir
hugskotssjónum heimsins sem eitt hryllilegasta
níðingsverk allra alda.
En einnig í fleiri löndum þar sem kommún-
istar hafa staðið í fylkingarbrjósti í frelsis-
baráttu þeirra, sæta þeir nú ofsóknum. Svo
er um Algier — og hefur „l’Humanite“, blað
franska Kommúnistaflokksins nýlega skrifað
um ofsóknir þar. Og samt þykjast leiðtogarnir
í Alsír vilja skapa flokk, sem „sameini virka
og sannfærða baráttumenn, sem trúi á sósíal-
isma“. En ef slíkir valdhafar ofsækja komm-
únistana, þá eru þeir að gefa afturhaldsöflun-
um byr undir báða vængi og brjóta niður til-
trú verkalýðsins til þeirra.
Mótmælunum gegn ofsóknum á hendur
kommúnistum og öðrum lýðræðissinnum
fjölgar nú mjög um heim allan.
Kommúnistaofsóknir byrjuðu snemma:
Karl Marx handtekinn í Brússel 1848.
SAUDI-ARABÍA
Faisal konungur er einvaldur í Saudi-Ara-
bíu, ríkasta Arabalandinu. Þjóðin er svift öllu
frelsi og mannréttindum. Engin stjórnarskrá
til.
Föðurlandsvinir og lýðræðissinnar heyja
þar erfiða baráttu. Þeir berjast fyrir frelsi
landsins og brottrekstri afturhalds- og heims-
valdasinna, lýðræðisstjórn, mannréttindum,
jöfnuði í eignum, velferð fólksins og framför-
um í þjóðfélaginu.
Öllum kúgunartækjum ríkisvaldsins, leyni-
lögreglu og her, fangelsunum og aftökum, er
beitt gegn frelsissinnum. Frá í júní til des-
ember 1967 var 967 þjóðfrelsissinnum varpað
í fangelsi. Alls eru 30.000 pólitískir fangar í
dýflissum einveldisstjórnarinnar, margir und-
irorpnir pyntingum. í fjögur ár hefur 25 föð-
urlandsvinum verið haldið í dýflissunni í
119
L